Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Síða 37
Helgarblað 28.–31. mars 2014 Fólk Viðtal 29
leiklistarkennarinn minn í MH og
gaf mér rosalega gott veganesti.
Í MH fékk ég mína fyrstu alvöru
reynslu af faginu. Hugtakið var svo
sprengt út fyrir mér. Ég varð fyrir
sterkri upplifun og fór að sprengja
þægindarammann. Ýta mér lengra
og lengra. Þá kynnist maður sjálf
um sér betur og betur.“
Þrotlausar æfingar gegn hroka
Ilmur er þekkt fyrir auðmýkt gagn
vart hæfileikum sínum. Það er þó
fátt leiðinlegra fyrir leikara en að
vera spurður hvort hann sé auð
mjúkur gagnvart list sinni enda
snýst eiginleikinn við um leið og
hann er orðaður.
„Mér hefur alltaf fundist svo
skrýtið að tala um að vera með
hæfileika. Auðmýkt er svona and
orð, um leið og maður segir það,
þá hættir það að vera til: Það er
það sama og að segjast vera kald
hæðinn. Um leið og maður segir:
Ég er svo kaldhæðinn. Þá er maður
það bara alls ekki.
Listum verður samt að fylgja
auðmýkt. Maður finnur það bara,
þegar maður er í hrokanum sín
um, sem maður á til eins og all
ir. Þá er ekki sköpun í gangi. Þess
vegna er svo erfitt að segja að þetta
sé hæfileiki manns, af því mað
ur finnur að þetta er eins og æð.
Þetta er sköpunarkraftur sem er
eiginlega ekki manns eigin. Frekar
eitthvað sem maður getur tengst.
Málið er að allir geta það, eða ég
trúi því að minnsta kosti. Leikari
þarf því kannski að gera þrotlaus
ar æfingar í því að vera ekki hroka
fullur.“
Saman í sturtu
Ilmur komst leikandi létt inn í leik
listarskólann með veganestið góða.
Það segja að minnsta kosti þeir sem
þekkja til.
Með Ilmi í bekk voru auk Björns;
Davíð Guðbrandsson, Þorleifur Örn
Arnarsson, María Heba Þorkelsdótt
ir, Maríanna Lúthersdóttir, Esther
Thalía og Bryndís Ásmundsdótt
ir. Oft er talað um árin í leiklistar
skólanum sem ákaflega krefjandi ár.
Voru þau það fyrir Ilmi?
„Það er margt krefjandi við leik
listarnám og helst það að horfast í
augu við sjálfan sig í öllum skilningi.
Erfiðast var að vera í litlum bekk.
Vera fjölskylda en samt ekki fjöl
skylda. Þurfa að að taka tillit til allra
en taka sér samt pláss. Þetta er rosa
legur skóli í samskiptum.“
Alræmdar eru sögur af því upp
átæki nemenda að fara kviknaktir í
sturtu saman á námstímanum. Eru
þær sannar?
Ilmur kinkar kolli. „Já, já. Það er
oft sagt að fólk opinberi sig þegar
það fer á fjöll. Eins er það með nám
ið, þú felur þig ekkert í því. Að fara
með þessu fólki í sturtu er bara pís
of keik. Það gerðist að mig minnir
bara einu sinni.“
Drakk til að vera í kringum fólk
Æska Ilmar og uppvöxtur leiðir af
sér að hún hefur haft sterka sjálfs
virðingu. En henni tapaði hún þó
um tíma á fullorðinsárum. „Það er
erfitt að segja nákvæmlega til um
hvað brást. En þegar fer að reyna á
alla þessa ramma, þá gerir maður
fullt af mistökum. Á tímabili var ég
orðin mjög kvíðin.
Ég tók á kvíðanum með því að
hætta að drekka. Það er bara olía á
eld að drekka við slíkar aðstæður og
við það brenglaðist sjálfsmyndin. Ég
hef alltaf verið rosalega félagslynd
og finnst gott að vera með fólki.
Ilmur í framboði„Ég var
farin að
halda að ég
þyrfti að vera
alltaf full á
barnum
m
y
n
D
ir
S
ig
tr
y
g
g
u
r
a
r
i