Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Qupperneq 50
Helgarblað 28.–31. mars 201442 Sport
E
den Hazard, leikmaður
Chelsea, er öruggasta víta
skytta Evrópu ef litið er til
þriggja síðustu tímabila
í stærstu deildarkeppn
um Evrópu. DV tók saman upplýs
ingar um vítaskyttur liða og árangur
þeirra undanfarin þrjú tímabil í sex
deildum; ensku, ítölsku, spænsku,
þýsku, frönsku og hollensku. Hafa
ber í huga að hér er aðeins um að
ræða deildarkeppnir og því er ekki
í þessum tölum árangur í Evrópu
keppnum eða leikjum með lands
liðum. Hazard er eini leikmaðurinn
í þessum deildum sem hefur tekið
fleiri en tíu vítaspyrnur og skor
að úr þeim öllum. Undanfarin þrjú
tímabil, með Lille og Chelsea, hefur
hann tekið 15 vítaspyrnur og aldrei
brugðist bogalistin. Hazard skoraði
úr níu vítaspyrnum í röð tímabil
ið 2011/2012 með Lille og hefur
skorað úr sex í röð með Chelsea.
12 af 14 hjá Gerrard
Miðað var við leikmenn sem hafa
tekið að lágmarki fimm vítaspyrnur
síðustu þrjú tímabil. Á Englandi hef
ur Steven Gerrard, leikmaður Liver
pool, tekið flestar spyrnur undan
farin þrjú tímabil, eða 14 talsins.
Fyrirliði Rauða hersins í Liverpool
hefur skorað úr 12 spyrnum, sem
gerir 85,7 prósenta árangur.
Frank Lampard hefur skorað úr
9 af 12 spyrnum og Wayne Roon
ey 8 af 10. Robin van Persie hefur
skorað úr 7 af 9 spyrnum á með
an Leighton Baines hefur skorað
úr 7 af 7. Þá hefur Yaya Toure skor
að úr öllum fimm spyrnum sínum á
þessu tímabili.
Messi og Ronaldo öruggir
Á Spáni bera Lionel Messi og Crist
iano Ronaldo höfuð og herðar yfir
aðra leikmenn deildarinnar. Messi
hefur skorað úr 19 af 20 spyrnum
undanfarin þrjú tímabil á meðan
Ronaldo hefur skorað úr 24 af síð
ustu 26 spyrnum sínum í La Liga. Á
Ítalíu hefur Antonio Di Natale, leik
maður Udinese, skorað úr 12 af 13
spyrnum en Arturo Vidal, miðju
maður Juventus, 8 af 10. Mario Balo
telli hefur skorað úr 12 af 14 spyrn
um, þar af 9 af 11 á Ítalíu undanfarin
tvö tímabil.
Alfreð með þeim bestu
Zlatan Ibrahimovic er ein öruggasta
vítaskytta Evrópu samkvæmt úttekt
DV. Hann hefur skorað úr 21 af 22
spyrnum, þar af úr öllum tíu spyrn
um sínum með AC Milan tímabilið
2011/2012. Edinson Cavani, fyrr
verandi leikmaður Napoli og nú
verandi liðsfélagi Zlatans hjá PSG,
kemst ekki með tærnar þar sem ör
uggustu vítaskyttur Evrópu hafa
hælana. Hefur hann klúðrað 6 af 18
síðustu spyrnum sínum.
Athyglisvert er að bera saman
árangur Alfreðs Finnbogasonar,
markahæsta leikmanns hollensku
úrvalsdeildarinnar, í samanburði
við þá bestu. Alfreð er nú á sínu
öðru tímabili með Heerenveen og
hefur hann skorað úr 12 af 13 spyrn
um síðan hann gekk í raðir liðsins,
þar af öllum 9 spyrnum sínum í vet
ur. Er þetta 92,3 prósenta árangur en
til samanburðar er Steven Gerrard
með 85,7 prósenta árangur, Mario
Balotelli 81,8 prósenta, Frank
Lampard 75 prósenta og Cristiano
Ronaldo 92,3 prósenta, eins og
Alfreð. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is England
n Eden Hazard, Chelsea, skorað 15 í 15 spyrnum = 100%
n Leighton Baines, Everton, skorað 7 í 7 spyrnum = 100%
n Ricky Lambert, Southampton, skorað 5 í 5 spyrnum = 100%
n Yaya Toure, Manchester City, skorað 5 í 5 spyrnum = 100%
n Mikel Arteta, Arsenal, skorað 7 í 8 spyrnum = 87,5%
n Steven Gerrard, Liverpool, skorað 12 í 14 spyrnum = 85,7%
n Wayne Rooney, Manchester United, skorað 8 í 10 spyrnum = 80%
n Robin van Persie, Manchester United skorað 7 í 9 spyrnum = 77,7%
n Frank Lampard, Chelsea, skorað 9 í 12 spyrnum = 75%
Ítalía
n Antonio Di Natale, Udinese, skorað 12 í 13 spyrnum = 92,3%
n Antonio Candreva, Lazio, skorað 8 í 9 spyrnum = 88,9%
n Mario Balotelli, Manchester City og AC Milan, skorað 12 í 14 spyrnum = 81,8%
n Arturo Vidal, Juventus, skorað 8 í 10 spyrnum = 80%
Spánn
n Lionel Messi, Barcelona, skorað 19 í 20 spyrnum = 95%
n Cristiano Ronaldo, Real Madrid, skorað 24 í 26 spyrnum = 92,3%
n Diego Costa, Atletico Madrid, skorað 6 í 8 spyrnum = 75%
Frakkland
n Zlatan Ibrahimovic, AC Milan og PSG, skorað 21 í 22 spyrnum = 95,5%
n Falcao, Atletico Madrid og Monaco, skorað 15 í 17 spyrnum = 88,2%
n Edinson Cavani, Napolo og PSG, skorað 12 í 18 spyrnum = 66,6%
Þýskaland
n Sejad Salihovic, Hoffenheim, skorað 19 í 21 spyrnu = 90,5%
n Arjen Robben, Bayern Munchen, skorað 6 í 7 spyrnum = 85,7%
n Thomas Muller, Bayern Munchen, skorað 5 í 6 spyrnum = 83,3%
n Robert Lewandowski, Dortmund, skorað 5 í 6 spyrnum = 83,3%
Holland
n Alfreð Finnbogason, Heerenveen, skorað 12 í 13 spyrnum = 92,3%
n Aron Jóhannsson, AZ Alkmaar,skorað 4 í 5 spyrnum = 80%
n Alfreð með þeim bestu n Eden Hazard með 100 prósenta árangur
Öruggastir
á vítapunktinum
Stórleikir
um helgina
Enska úrvalsdeildin heldur áfram
að rúlla um helgina þegar heil
umferð fer fram. Tveir stórleikir
eru á dagskránni í toppbarátt
unni og þá eru einnig athyglis
verðir leikir á dagskránni hjá
botnliðunum. Hér að neðan gef
ur að líta yfirlit yfir leiki umferð
arinnar.
Manchester United
- Aston Villa
United þarf
á sigri að
halda
til að
halda lífi
í voninni
um sæti
í Evrópu
keppni. Liðið er
í 7. sæti með 51 stig. Á meðan
siglir Aston Villa lygnan sjó í
12. sætinu með 34 stig.
Southampton
- Newcastle
Liðin í 8. og 9. sæti.
Evrópukeppni er fjar
lægur draumur hjá
þessum liðum og því að
eins heiðurinn í húfi.
Stoke - Hull
Stoke (10.
sæti) er nán
ast sloppið við
fall en Hull (13.
sæti) gæti þurft
nokkur stig til við
bótar. Stoke er ósigrað í síðustu
fjórum leikjum í deild.
Swansea - Norwich
Bæði lið eru í fallbaráttu í 14.
og 15. sæti. Swansea hefur ekki
unnið í síðustu sex leikjum.
WBA - Cardiff
Annar fallbaráttuslagur. WBA er
í 16. sæti með 28 stig en Cardiff í
19. sæti með 25 stig.
Crystal Palace
- Chelsea
Palace þarf
á stigum
að halda
enda liðið
í 17. sæti.
Chelsea þarf
sömuleið
is á stigunum að
halda, en liðið er sem stendur á
toppi deildarinnar með 69 stig,
stigi á undan Liverpool.
Arsenal - Man. City
Arsenal er svo gott
sem búið að
stimpla sig út
úr toppbar
áttunni, ólíkt
City. City er
í 3. sæti með
66 stig eftir 29
leiki og á tvo leiki
til góða á Liverpool og Chelsea.
Arsenal er með 63 stig eftir 31
leik.
Fulham - Everton
Fulham er á botninum með 24
stig og verður að vinna. Everton
getur sett mikla pressu á Arsenal í
baráttunni um 4. sætið með sigri.
Liðið er með 57 stig og á auk þess
leik til góða á Arsenal.
Liverpool - Tottenham
Liverpool getur
haldið áfram að
pressa að City
og Chelsea
með sigri.
Möguleik
ar Tottenham
á Meistara
deildarsæti
glæðast
heilmikið
með sigri.