Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Page 58
50 Menning Sjónvarp Helgarblað 28.–31. mars 2014
Hinsta kveðja
offitusjúklings
S
íðast þegar ég skrifaði helgar
pistil hafði baðvogin heima og
BMIþyngdarstuðulsformúlan
greint mig offitusjúkling. Um
áramótin vó ég um 109 kíló og hafði
ekki stundað líkamsrækt, ef nokkurra
mánaða hjólreiðar í vinnuna eru frá
taldar, í þrjú eða fjögur ár.
Ég hafði eiginlega gefist upp. Mér
leið illa sem offitusjúklingur því árum
saman átti ég bágt með svefn ef ég
hafði ekki hreyft mig yfir daginn. Að
vera offitusjúklingur sem lifir á fornri
„frægð“ sem íþróttamaður er
ömurleg sjálfsblekking.
Íþróttamenn þurfa ekki
að setja fót upp á hné
þegar þeir klæða sig í
sokk. Ég stefndi hrað
byri að heilsufarslegri
glötun, frómt frá sagt,
og var orðinn ónæm
ur fyrir ömurlegum undir
hökumyndum á Facebook.
Hræddur við að mistakast
Í haust, og sérstaklega í desember,
fann ég að óþolið fyrir ástandinu fór
vaxandi. Ég hafði lengi sagt við sjálf
an mig að einn daginn myndi ég taka
ákvörðun um að hrista af mér spikið
– nánast án fyrirhafnar. Ég fann að sú
róttæka aðgerð var í uppsiglingu en
sagði það ekki upphátt við nokkurn
mann. Ég var satt að segja hrædd
ur. Skíthræddur við að reyna en mis
takast. Hvað ef ég gæti þetta ekki? Ég
hafði, eins og þið öll, lesið ótal frá
sagnir um fólk sem hefur tekið sér
taki og misst tugi kílóa. Mér fannst
röðin vera komin að mér.
Um áramótin át ég á
mig gat. Ég hvolfdi í mig
kræsingum af öllu tagi hjá
tengdó. Mér leið eins og
áfengis fíklinum sem fer á
síðasta fylleríið – til að ná
botninum. Ég borðaði yfir mig,
enn einn hátíðardaginn.
Ég var þunnur á nýárs dag vegna
óhóflegrar neyslu hvers kyns mat
væla. Þunnur og berskjaldaður.
Frændi minn, 12 árum eldri og 25
kílóum léttari, hafði samband, nán
ast eins og himnasending. Spari
skyrturnar hans voru orðnar þröngar.
Á núlleinni sannfærði hann mig um
að koma í lokaðan hóp á Facebook
sem ber heitið „12 meistaramánuð
ir“ ásamt nokkrum fjölskyldumeð
limum. Árið 2014 yrði árið sem við
kæmum okkur í form. Þó markmið
einstaklinga innan hópsins væru
ólík voru reglurnar einfaldar. Keppt
var í hlutfallslegri breytingu BMI
þyngdarstuðuls og sex vikur voru
undir, í fyrstu lotu. Vigtun einu sinni
í viku. Í verðlaun fyrir besta árangur
inn var 18 þúsunda króna gjafabréf.
Þrjú markmið
Þetta var sparkið sem ég þurfti og lof
aði ég mér því að láta þetta ekki renna
mér úr greipum. Og þá hófst dans
inn. Ég viðurkenni að fyrstu dagarn
ir voru erfiðir. Ég hugsaði látlaust um
sælgæti sem ég vissi af víðs vegar um
húsið. Ég glímdi auk þess við við
stöðulausan höfuðverk fyrstu fjóra
eða fimm dagana. Líkaminn mót
mælti kröftuglega og öskraði á sykur.
Ég keypti mér kort í Reebok í Holta
görðum og datt fyrir rælni í tíma í
einhverju sem kallaðist Cardiofit.
Það small sem flís við rass við mín
ar þarfir – og nokkurra félaga minna
í hópnum. Þrátt fyrir að hafa gubb
að úr mér lungun í fyrsta tíma fann
ég fyrir staðfestu sem ég vissi ekki að
ég byggi yfir. Ég setti mér þrjú mark
mið. Fyrsta markmið var að komast
undir 100 kíló, annað markmiðið var
að komast niður úr offituflokknum
(97 kíló) og þriðja markmiðið, sem
ég er enn að vinna að, var að kom
ast undir 90 kíló. Óhætt er að segja
að mikið vatn – eða kannski mikil
fita – hafi runnið til sjávar síðan. Ég
mætti fyrst tvisvar til þrisvar í viku en
hef undanfarið hef ég alltaf mætt
fjórum sinnum. Að auki hjóla
ég oftast í vinnuna og stunda
körfubolta einu sinni í viku.
Á tilteknum tímapunkti,
snemma í febrúar, varð innra
með mér sú grundvallar
viðhorfsbreyting að það hætti
að skipta mig máli hvort frændi
minn kæmist með í ræktina. Hvatinn
kom frá mér sjálfum.
Í dag er ég tæplega 13 kílóum létt
ari og félagar mínir í hópnum hafa
líka náð frábærum árangri. BMI
stuðullinn hefur lækkað úr 33,6 í
29,8 frá áramótum. Ég hef misst tugi
sentimetra af ummáli og fituprósent
an hefur hríðfallið. Fötin sem ég á
ýmist passa mér eða eru orðin of stór.
Í morgun mældist ég 96,6 kíló og
hef því kvatt offitusjúklinginn Bald
ur hinsta sinni. Nú er ég „bara“ í of
þyngd. Ég ætla aldrei aftur að verða
100 kíló. Ég býð ekki syndinni í kaffi
– ekki aftur.
Þrjár reglur
Mín skoðun er sú að mað
ur getur hamast eins og
hamstur í ræktinni án
þess að léttast, ef mað
ur tekur ekki mataræðið
föstum tökum. Ég er oft
spurður hvernig ég hafi „far
ið að þessu“. Ég setti mér því þrjár
einfaldar en öfgalausar reglur.
1) Ég hætti alveg að kaupa skyndibita
og sætindi.
2) Ég hætti að drekka hitaeiningar.
3) Ég minnkaði skammta og hætti að
borða mig pakksaddan.
Í fyrstu reglunni felst að ég má
þiggja sætindi, ef mér er boðið.
Ég kaupi mér ekki svoleiðis sjálf
ur og gæti þess að smakka – en ekki
háma. Á annarri reglunni eru örfá
ar undantekningar. Ég hef til dæm
is fengið mér 1–2 litla bjóra í viku.
Meginreglan er að drekka vatn eða
sódavatn án sykurs. Þriðja reglan
er ófrávíkjanleg. Ekkert annað er á
bannlista. Ég borða brauð og allan
heimilismat. Ég borða bara minna.
Sykurlöngunin gerir oft vart við sig
en sjaldnar ef ég gæti þess að verða
ekki sársvangur. Vatnsmelóna hefur
oft gert kraftaverk í þeim efnum.
Í dag líður mér á allan hátt betur,
þó nokkuð sé í land. Úthaldið hefur
tekið stakkaskiptum og ég er hættur
að þurfa að setja fótinn upp á hnéð
þegar ég klæði mig í sokk. Fleiri
undirhökumyndir verða ekki tekn
ar af mér. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Helgarpistill
Sjónvarpsdagskrá
RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport
Sunnudagur 30. mars
Stöð 2 Sport 2
Bíóstöðin
Gullstöðin
Stöð 3
ÍNN
07.00 Morgunstundin okkar
07.01 Smælki (25:26)
07.04 Háværa ljónið Urri (13:52)
07.14 Tillý og vinir (24:52)
07.25 Múmínálfarnir
07.35 Hopp og hí Sessamí
08.00 Ævintýri Berta og Árna
08.05 Sara og önd (26:40)
08.15 Kioka (2:52)
08.22 Kúlugúbbarnir (17:20)
08.45 Hrúturinn Hreinn (6:20)
08.52 Disneystundin (12:52)
08.53 Finnbogi og Felix (11:26)
09.15 Sígildar teiknimyndir
09.22 Herkúles (12:21)
09.45 Skúli skelfir (22:26)
09.55 Undraveröld Gúnda
10.08 Chaplin (38:52)
10.15 Melissa og Joey (3:15)
10.35 Minnisverð máltíð –
Sara Blædel (2:7)
10.45 Mótorsystur e
11.00 Sunnudagsmorgunn
12.10 Grínistinn (4:4) (Laddi eins
og hann leggur sig) 888 e
12.55 Heimur orðanna – Hver
erum við? (2:5) (Fry ś
Planet Word) Breski
leikarinn Stephen Fry segir
frá tungumálum heimsins,
fjölbreytileika þeirra og
töfrum. e
13.55 Dagfinnur dýralæknir
(Doctor Dolittle) e
15.20 Getur skordýraát bjarg-
að heiminum? e
16.20 Mótorsystur (Motor-
systarna) e
16.40 Leiðin á HM í Brasilíu
(4:16) e
17.10 Táknmálsfréttir
17.21 Stella og Steinn (6:10)
17.33 Friðþjófur forvitni (6:9)
17.56 Skrípin (4:52)
18.00 Stundin okkar 888
18.25 Hvolpafjör (1:6)
19.00 Fréttir
19.20 Veðurfréttir
19.25 Íþróttir
19.40 Englar alheimsins B
Bein útsending frá
lokasýningu verðlaunaupp-
setningar Þjóðleikhússins á
Englum alheimsins. Sagan
lýsir árekstri tveggja heima,
brjálseminnar og hvers-
dagsleikans og greinir frá
lífi listamannsins Páls sem
ungur að árum er orðinn
illa haldinn af geðveiki og
missir tökin á lífinu. Með
aðalhlutverk fer Atli Rafn
Sigurðarson, leikstjóri er
Þorleifur Örn Arnarsson og
leikgerðin er eftir Þorleif
Örn og Símon Birgisson.
Stjórn upptöku Egill Eð-
varðsson. Dagskrárgerð
Egill Eðvarðsson og Brynja
Þorgeirsdóttir.
22.25 Afturgöngurnar (7:8) (Les
Revenants) Dulmagnaðir
spennuþættir sem hlutu al-
þjóðlegu Emmy-verðlaunin
sem besti leikni mynda-
flokkurinn í nóvember á
síðasta ári. Einstaklingar
sem hafa verið taldir látnir
til nokkurs tíma, fara að
dúkka upp í litlu fjallaþorpi
eins og ekkert hafi í skorist.
23.15 Sunnudagsmorgunn Gísli
Marteinn Baldursson fær til
sín gesti og ræðir við þá um
málefni líðandi stundar. e
00.25 Útvarpsfréttir í dag-
skrárlok
07:30 Formula 1 2014 (Malasía) B
10:30 Hamburg - Fuchse Berlin
11:50 Espanyol - Barcelona
13:30 Formula 1 2014 (Malasía)
16:10 Meistarad. Evr. - fréttaþ.
16:40 R. Madrid - Rayo Vallecano
18:20 Njarðvík - Haukar
19:50 Formula 1 2014 (Malasía)
22:10 A. Bilbao - Atletico Madrid
23:50 Evrópudeildin
(Anzhi - AZ Alkmaar)
01:30 Meistaradeild Evrópu
(Real Madrid - Schalke)
09:00 Crystal Palace - Chelsea
10:40 Arsenal - Man. City
12:20 Fulham - Everton B
14:50 Liverpool - Tottenham B
17:00 Man. Utd. - Aston Villa
18:40 Fulham - Everton
20:20 Liverpool - Tottenham
22:00 Swansea - Norwich
23:40 Stoke - Hull
07:40 The Object of My
Affection
19:50 In Her Shoes
22:00 Magic MIke
23:50 The Dark Knight Rises
02:30 Brighton Rock
04:20 Magic MIke
16:30 Amazing Race (5:12)
17:15 Lying Game (2:10)
17:55 Men of a Certain Age (6:12)
18:40 The New Normal (19:22)
19:00 Bob's Burgers (8:23)
19:25 American Dad (11:18)
19:45 The Cleveland Show
20:10 Unsupervised (11:13)
20:50 Bored to Death (2:8)
21:10 The League (5:13)
21:35 Deception (4:11)
22:20 The Glades (13:13)
23:00 The Vampire Diaries
23:45 Bob's Burgers (8:23)
00:05 American Dad (11:18)
00:25 The Cleveland Show
00:45 Unsupervised (11:13)
01:30 Bored to Death (2:8)
01:50 The League (5:13)
02:15 Deception (4:11)
02:55 Tónlistarmyndb. Popptíví
18:05 Strákarnir
18:35 Friends (6:25)
19:00 Seinfeld (5:13)
19:25 Modern Family
19:50 Two and a Half Men (1:23)
20:15 Viltu vinna milljón?
21:00 Game of Thrones (810)
21:55 Krøniken (21:22)
23:00 Ørnen (21:24)
00:00 Ally McBeal (22:23)
00:45 Viltu vinna milljón?
01:25 Game of Thrones (8:0)
02:20 Krøniken (21:22)
03:20 Ørnen (21:24)
04:20 Ally McBeal (22:23)
05:05 Tónlistarmyndb.Popptíví
14:00 Frumkvöðlar
14:30 Eldhús meistaranna
15:00 Vafrað um Vesturland
15:30 Stormað um Hafnarfjörð
16:00 Hrafnaþing
17:00 Stjórnarráðið
17:30 Skuggaráðuneytið
18:00 Björn Bjarnason
18:30 Tölvur,tækni og kennsla.
19:00 Fasteignaflóran
19:30 Á ferð og flugi
20:00 Hrafnaþing
21:00 Auðlindakistan
21:30 Suðurnesjamagasín
22:00 Hrafnaþing
23:00 Reykjavíkurrölt
23:30 Eldað með Holta
07:00 Barnatími Stöðvar 2
07:01 Waybuloo
07:21 Strumparnir
07:45 Ævintýraferðin
08:00 Algjör Sveppi
09:35 Ben 10
09:55 Tom and Jerry
10:05 Victorious
10:30 Nágrannar
10:50 Nágrannar
11:10 Nágrannar
11:30 Nágrannar
11:50 Nágrannar
12:15 60 mínútur (25:52)
13:00 Mikael Torfason - mín
skoðun
13:50 Spaugstofan
14:15 Spurningabomban
15:05 Heimsókn
15:30 The Big Bang Theory
16:05 Um land allt
16:40 Léttir sprettir
17:10 Geggjaðar græjur
17:30 Ísland Got Talent
18:23 Veður
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:55 Sportpakkinn (31:50)
19:10 Steindinn okkar - brot af
því besta
19:45 Ísland Got Talent
21:00 Mr. Selfridge (7:10) Önnur
þáttaröðin auðmanninn
Harry Selfridge, stofnanda
stórverslunarinnar
Selfridges og hún gerist
á róstursömum tímum í
Bretlandi þegar fyrri heims-
styrjöldin setti lífið í Evrópu
á annan endann.
21:45 Shameless (2:12) Bráð-
skemmtileg þáttaröð um
skrautlega fjölskyldu. Fjöl-
skyldufaðirinn er forfallinn
alkóhólisti, mamman
löngu flúin að heiman og
uppátækjasamir krakkarnir
sjá um sig sjálfir.
22:40 The Following 8,8 (10:15)
Önnur þáttaröðin af
þessum spennandi þáttum
en síðasta þáttaröð endaði
í mikilli óvissu um afdrif
fjöldamorðingjans Carroll
einnig hvað varðar sögu-
hetjuna Ryan Hardy. Eitt er
víst að nýtt illmenni verður
kynnt til leiks í þessari
þáttaröð en það er ekki þar
með sagt að Joe Carroll
hafi sungið sitt síðasta.
Nýr sértrúarsöfnuður er að
myndast og leiðtogi hóps-
ins er jafnvel hættulegri en
Carroll.
23:25 60 mínútur (26:52)
00:10 Mikael Torfason - mín
skoðun
00:55 Nashville (12:22)
01:35 The Politician's Husband
02:35 The Americans (3:13)
03:20 American Horror Story:
Asylum (11:13)
04:05 Mad Men (13:13)
04:55 Platoon 8,2 Mögnuð mynd
sem hlaut 4 Óskarsverð-
laun í leikstjórn Olivers
Stone og fjallar um ungan
hermann í Víetnam sem
lendir í siðferðislegri
kreppu þegar hann upplifir
hryllinginn í stríðinu. Með
aðalhlutverk fara Charlie
Sheen og Johnny Depp.
06:00 Pepsi MAX tónlist
12:30 Dr. Phil
13:10 Dr. Phil
13:50 Dr. Phil
14:30 Once Upon a Time (12:22)
15:15 7th Heaven (12:22)
15:55 90210 (12:22)
16:40 Parenthood (12:15)
17:25 Friday Night Lights (11:13)
18:05 Ice Cream Girls (1:3)
18:50 The Good Wife (7:22)
19:40 Judging Amy (9:23)
20:25 Top Gear (3:6)
21:15 Law & Order (8:22)
Spennandi þættir um störf
lögreglu og saksóknara í
New York borg. Skilnað-
arlögfræðingar finnast
myrtir í íbúð sinni og þegar
líður á rannsóknina virðast
þau hafa haldið hlífiskildi
yfir hræðilegum glæpa-
manni.
22:00 The Walking Dead
(13:16) Þættir sem hafa
slegið öll fyrri áhorfsmet
áskriftarstöðva í Banda-
ríkjunum. Rick Grimes og
félagar þurfa að glíma við
uppvakninga utanfrá og
svikara innanfrá í þessum
hrollvekjandi þáttum sem
eru alls ekki fyrir viðkvæma.
22:45 The Biggest Loser -
Ísland (10:11) Stærsta
framleiðsla sem SkjárEinn
hefur ráðist í frá upphafi.
Tólf einstaklingar sem
glíma við yfirþyngd ætla
nú að snúa við blaðinu og
breyta um lífstíl sem felst
í hollu mataræði og mikilli
hreyfingu.
23:45 Elementary (12:24) Sher-
lock Holmes og Dr. Watson
leysa flókin sakamál í
New York borg nútímans.
Síðustu þáttaröð lauk með
því að unnusta Sherlocks,
Irine Adler var engin önnur
en Moriarty prófessor.
Moriarty prófessor kemur
við sögu í þessum þætti
þar sem hann aðstoðar
lögregluna við dularfullt
mannrán.
00:35 Scandal (11:22) Við höldum
áfram að fylgjast með
Oliviu og félögum í Scandal.
Fyrsta þáttaröðin sló í
gegn meðal áskrifenda en
hægt var að nálgast hana í
heilu lagi í SkjáFrelsi. Olivia
heldur áfram að redda
ólíklegasta fólki úr ótrú-
legum aðstæðum í skugga
spillingarstjórnmálanna í
Washington.
01:20 The Walking Dead (13:16)
02:05 Beauty and the Beast
(1:22) Önnur þáttaröðin
um þetta sígilda ævintýri
sem fært hefur verið í nýjan
búning. Aðalhlutverk eru
í höndum Kristin Kreuk og
Jay Ryan. Þremur mánuð-
um eftir að Vincent var
numinn á brott af Muirfield
sameinast þau Catherine á
ný en Vincent er ekki eins og
hann á að sér að vera. Örið
er farið, minni hans hefur
verið þurrkað út og Caterine
líst ekkert á blikuna.
02:50 The Bridge (13:13)
03:30 The Tonight Show
04:20 Pepsi MAX tónlist
SkjárGolf
06:00 Motors TV
12:25 AFC Ajax - FC Twente
14:25 AFC Ajax - FC Twente
16:25 FC Bayern Munchen - 1899
Hoffenheim
18:25 Vitesse - Heerenveen
20:25 Borussia Dortmund - FC
Schalke 04
22:25 Motors TV
É
g held að ég geti svarað fyrir
okkur bæði þegar ég segi að
þetta leggist bara stórvel í okk
ur. Það eru nýir tíma á RÚV og
það á að nýta allt til mergjar sem er
hið besta mál enda er okkar annað
nafn „multitask“,“ segir Andri Freyr
Viðarsson sem ásamt Guðrúnu Dís
Emilsdóttur hefur gengið til liðs
við Kastljós á RÚV. Þau eru, líkt og
kunnugt er, umsjónarmenn Virkra
morgna á Rás 2. Þau munu halda
áfram að gleðja hlustendur í útvarp
inu og mun Sólmundur Hólm, sem
hefur verið þeirra hægri hönd í þátt
unum, sjá um að leysa þau af þegar
þau taka upp fyrir Kastljós. „Þar sem
að Kastljósið hefur rækilega fund
ið fyrir niðurskurðinum eins og flest
annað á RÚV þá þótti það rökrétt
að fá okkur Gunnu, sem bæði höf
um unnið smá í sjónvarpi líka, til
að vera með innslög í Kastljósinu,“
segir Andri. „Þessi innslög munu
fjalla um allan fjandann,“ svarar
Andri aðspurður hver umfjöllunar
efni þeirra í þættinum verði. Gunna
og Andri hafa bæði reynslu úr sjón
varpi, Andri úr Andralandi og Andri
á flandri og Gunna hefur einnig stýrt
þáttum og kynnt Eurovision svo eitt
hvað sé nefnt. n viktoria@dv.is
Andri og Gunna Dís í Kastljósið
„Hið besta mál enda er okkar annað nafn „multitask““
Á skjáinn Gunna Dís og Andri eru gengin til
liðs við Kastljósið.