Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Side 38
38 ættfræði umsjón: kjartan gunnar kjartansson kjartan@dv.is 22. október 2010 föstudagur
80 ára á laugardag
Ingi Bergþór Jónasson
bifvélavirki í Mosfellsbæ
Ingi fæddist á Skógum í Þorskafirði
en ólst upp á Múla í Þorskafirði og
víðar. Hann flutti til Reykjavíkur um
tvítugt þar sem hann starfaði við
bílaverkstæði, lengst af sjálfstætt.
Árið 1984 flutti Ingi til Noregs ásamt
fjölskyldu sinni og starfaði þar í Rasta
og víðar. Ingi flutti aftur heim 1997
og hefur verið búsettur í Reykjavík og
síðan Mosfellsbæ. Hann starfaði hjá
Bílaleigu Flugleiða á árunum 1997–
2000 og síðan á Réttingaverkstæði
Þórarins til 2008.
Ingi starfaði með Alþýðuflokkn-
um um árabil og síðan í Bandalagi
jafnaðarmanna.
Fjölskylda
Eiginkona Inga er Kristrún G. Gests-
dóttir, f. 16.6. 1946, sjúkraliði. Hún er
dóttir Gests Óskars Friðbergssonar, f.
7.10. 1902, d. 30.4. 1982, vélstjóra hjá
Eimskip, og Önnu Maríu Friðbergs-
son, f. Andreasen 12.2. 1908, í Fær-
eyjum, d. 19.12. 2004, húsmóður.
Börn Inga og Kristrúnar eru
Jónas Rafnar Ingason, f. 27.2. 1964,
viðskiptafræðingur í Mosfellsbæ,
kvæntur Synthiu Trililane og eiga
þau þrjá syni, Inga Benedikt, Jónatan
Jópie og Óliver Aradana; Anna Björg
Ingadóttir, f. 29.7. 1965, húsmóð-
ir í Mosfellsbæ, var gift Páli Borgari
Guðjónssyni húsasmið og eiga þau
fjögur börn, Alexöndru, Áróru, Jak-
ob og Júlíu Rún; Óskar Ingi Ingason,
f. 6.7. 1969, sóknarprestur í Búðar-
dal, en kona hans er Guðrún Krist-
insdóttir og eru börn hennar Erla,
Kristinn og Hlöðver en börn þeirra
eru Kristrún Inga og Jónas Vilberg;
Fanney Kristrún Ingadóttir, 19.11.
1970, vinnur að hjálparstörfum í
Kenía, gift Jóni Fjölni Albertssyni
húsasmið og eru synir þeirra Daní-
el, Markús Salómon Sandel og Dav-
íð Pálmi.
Bróðir Inga er Kristján Jón Jónas-
son, f. 5.3. 1938, d. 4.1. 2010, vélvirki
og eignaðist hann eina dóttur, Guð-
björgu, og uppeldisson, Guðmund.
Auk þess misstu foreldrar Inga
tvo drengi nokkurra vikna gamla.
Foreldrar Inga voru Jónas Aðal-
björn Andrésson, f. á Þórisstöðum
27.3. 1905, d. 14.7. 1974, bóndi á
Skógum, Múla í Þorskafirði og víðar,
og s.k.h., Guðbjörg Bergþórsdóttir
frá Alheim í Flatey á Breiðafirði, f.
21.6. 1917, d. 29.6. 1943, húsmóðir.
Fyrri kona Jónasar var Ketilríð-
ur Gísladóttir, f. 1.10. 1897, d. 12.12.
1932, ljósmóðir. Þau áttu ekki börn
saman en hún átti fjögur börn frá
fyrra hjónabandi.
Sambýliskona Jónasar og fóstur-
móðir þeirra bræðra var Ingibjörg
Helga Guðmundsdóttir, f. 3.7. 1904,
d. 5.8. 1988, ljósmóðir.
Ætt
Jónas var sonur Andrésar, b. á Þór-
isstöðum Sigurðssonar, í Múla Jóns-
sonar, á Hólum Björnssonar. Móðir
Andrésar var Jóhanna Magnúsdótt-
ir, Andréssonar í Veiðileysu.
Móðir Jónasar var Guðrún Sig-
ríður, húsfreyja á Þórisstöðum
Jónsdóttir, á Kleifastöðum í Kolla-
firði Jónssonar, á Galtará Guðna-
sonar. Móðir Jóns á Kleifastöðum
var Helga Guðmundsdóttir. Móð-
ir Guðrúnar Sigríðar var Valgerður
Hafliðadóttir en hún og Jón, maður
hennar, voru bræðrabörn.
Guðbjörg, móðir Inga, var dóttir
Bergþórs, sjómanns í Flatey Einars-
sonar, í Flatey Sveinssonar. Móðir
Bergþórs var Björg Sólmundsdóttir,
úr Dölum.
Móðir Guðbjargar var Ingibjörg
Jónsdóttir, í Flatey Árnasonar, á Bæ
á Bæjarnesi Jónssonar, á Bæ Árnar-
sonar, á Vattarnesi Jónssonar. Móð-
ir Ingibjargar var Sigurrós Jónsdóttir
frá Litlalóni á Snæfellsnesi.
70 ára á sunnudag
Þórdís fæddist i Hafnarfirði og
ólst þar upp. Hún lauk gagn-
fræðaprófi frá Flensborg 1946 og
síðar stúdentsprófi þaðan 1992.
Auk heimilisstarfa vann Þórdís
við bókhald hjá heildverslun Ól-
afs Gíslasonar & Co og á bæjar-
skrifstofu Hafnarfjarðar í þrjátíu
ár.
Þórdís starfaði mikið í skáta-
hreyfingunni á æsku- og ung-
lingsárunum, starfaði með
Kvenskátafélagi Hafnarfjarðar
og starfar með eldri skátum, St.
Georg gildinu.
Fjölskylda
Þórdís giftist 24.12. 1948 Bene-
dikt Sveinssyni, f. 23.3. 1926, sem
starfrækti innrömmunina Gallerí
jörð. Hann er sonur Sveins Bene-
diktssonar, f. 28.1. 1881, d. 16.4.
1962, útvegsbónda frá Borgareyri
í Mjóafirði, og k.h., Steinunnar
Þorsteinsdóttur, f. 21.6. 1892, d.
26.10. 1969, húsmóður.
Börn Þórdísar og Benedikts
eru Kristinn Helgi, f. 4.10. 1948,
ljósmyndari, búsettur í Grinda-
vík, og eru börn hans Hildur
Sigrún, Jóel og Rakel; Steinunn
María, f. 23.4. 1952, sérfræðingur
hjá Teris, búsett í Hafnarfirði, gift
Sverri Bergmann Friðbjörnssyni,
f. 21.4. 1951, svæðisstjóra hjá Ís-
landspósti og er dóttir þeirra
Þórdís en sonur Sverris er Þór-
hallur; Svava Björk, f. 25.1. 1957,
starfsmaður hjá Flugleiðum, bú-
sett í Kópvogi, gift Gesti Kristj-
ánssyni, f. 15.5. 1952, fararstjóra
og starfsmanni hjá Olíudreif-
ingu og er dóttir hennar frá fyrra
hjónabandi Lísa Ragnoli en börn
Gests frá fyrra hjónabandi eru
Anna Dóra og Ívar.
Systkini Þórdísar: Magnús, f.
18.2. 1917, d. 14.3. 1991; Bertha
Helga, f. 29.2. 1929, d. 23.3. 1997;
Kristjana Ósk, f. 3.6. 1921, lengst
af húsmóðir á Raufarhöfn; Gísli
Sigurður Bergmann, f. 27.8.
1922, nú látinn, málarameistari
í Hafnarfirði; Sigurbjörn Óskar,
f. 5.3. 1924, listmálari í Garðabæ;
Albert Júlíus, f. 4.6. 1926, fyrrv.
verkstjóri í Hafnarfirði.
Foreldrar Þórdísar: Kristinn
Jóel Magnússon, f. 25.2. 1893,
d. 28.12. 1983, málarameistari
í Hafnarfirði, og k.h., María Al-
bertsdóttir, f. 9.11. 1893, d. 28.5.
1979, húsmóðir.
Þórdís Kristinsdóttir
húsMóðir og fyrrv. skrifstofuMaður
30 ára á föstudag
Unnur fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp til átta ára aldurs en síðan í
Svíþjóð. Hún var í barnaskóla í Sví-
þjóð, stundaði nám við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti og lauk þaðan
stúdentsprófi árið 2000, lauk BS-
prófi í tölvunarfræði frá Háskól-
anum í Reykjavík og M.Sc.-prófi í
viðmótshönnun frá Chalmers-há-
skólanum í Gautaborg 2008.
Unnur var í unglingavinnunni,
starfaði hjá Myndvali í Mjódd í
eitt ár, starfaði hjá Landsbankan-
um 2004–2008 og hefur starfað hjá
Skýrr frá því nú í ársbyrjun.
Fjölskylda
Maður Unnar er Elías Raben
Gunnólfsson, f. 27.7. 1979, múr-
arameistari.
Sonur Unnar og Elíasar er Andri
Hrafn, f. 12.1. 2009.
Systkini Unnar eru Helga María
Guðmundsdóttir, f. 9.3. 1984,
menntaskólakennari í Svíþjóð;
Davíð Erik Mollberg, f. 16.5. 1994,
framhaldsskólanemi.
Foreldrar Unnar eru Karen
Garðarsdóttir, f. 8.10. 1957, hús-
móðir í Svíþjóð, og Guðmundur
Hafsteinsson, f. 1.7. 1955, ráðgjafi.
Unnur K. Guðmundsdóttir
vefsíðuforritari
30 ára á mánudag
Hildur fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Kópavoginum. Hún var í
Hjallaskóla, stundaði nám við
Menntaskólann í Kópavogi og
Keili en stundar nú matsveinanám
við MK. Þá hefur hún lokið prófum
fyrir kennararéttindi í Fit Pilates.
Hildur var starfsmannastjóri
hjá Bakarameistaranum í Mjódd í
nokkur ár en hefur verið kennari í
Sporthúsinu frá 2008.
Fjölskylda
Maður Hildar er Henry Birgir
Gunnarsson, f. 18.5. 1977, íþrótta-
fréttastjóri Fréttablaðsins og rit-
höfundur.
Börn Hildar og Henry Birgis eru
Ísak Daði Henrysson, f. 9.3. 2003;
Ísabella Henrysdóttir, f. 5.8. 2005.
Systur Hildar eru Una Björk Sig-
urðardóttir, f. 4.3. 1983, listamaður
í Reykjavík; Sigrún Ýr Sigurðar-
dóttir, f. 30.9. 1990, tamningakona
í Árnessýslu.
Foreldrar Hildar eru Sigurð-
ur Leifsson, f. 9.5. 1955, pípu-
lagningameistari í Kópavogi, og
Hallfríður Ólafsdóttir, f. 8.7. 1958,
leikskólastjóri.
Hildur Sigurðardóttir
fit pilates-kennari við sporthúsið
Erlendur Magnússon
fyrrv. vitavörður og oddviti
Erlendur fæddist á Siglunesi við Siglu-
fjörð og ólst þar upp í foreldrahúsum
við öll almenn landbúnaðarstörf þess
tíma og sjósókn. Erlendur tók við vita-
vörslu og veðurathugunum á Siglu-
nesi árið 1958 og gegndi því starfi,
ásamt búskap og sjósókn, þar til 1968.
Þá varð hann vitavörður á Dalatanga
og sinnti því starfi til 1994.
Þau hjónin fluttu þá til Egilsstaða
þar sem þau búa enn. Á Egilsstöðum
starfaði Erlendur hjá Kaupfélagi Hér-
aðsbúa.
Erlendur var oddviti Mjóafjarðar
1972–94. Þá er hann gjaldkeri í Félagi
eldri borgara á Egilsstöðum í tíu ár.
Fjölskylda
Erlendur kvæntist 29.6. 1951 Elfríð
Pálsdóttur, f. 26.5. 1930, þýsk-ættaðri,
en hún kom hingað til lands 1949, þá
ráðin kaupakona á Siglunesi í eitt ár.
Hún er dóttir Pauls Friedrichs Her-
manns Plötz, lögreglumanns í Lübeck
í Þýskalandi, og k.h., Magdalene Anna
Kristine Plötz, húsmóður og verslun-
armanns, en þau eru bæði látin.
Börn Erlends og Elfríðar eru Ant-
onía, f. 8.4. 1951, húsmóðir á Egils-
stöðum en eiginmaður hennar er
Guðmundur Baldursson og eiga þau
einn son en Antonía á þrjú börn úr
fyrri sambúð; Regína Magðalena, f.
30.9. 1952, húsmóðir í Mjóafirði, í
sambúð með Jóhanni Egilssyni og
eiga þau tvo syni, auk þess sem Jó-
hann á þrjú börn úr fyrri sambúð;
Helga Erla, f. 22.10. 1953, skólastjóri í
Borgarfirði eystra, gift Birni Gíslasyni
og eiga þau eina dóttur; Hörður, f. 6.6.
1956, vélstjóri í Neskaupstað, kvænt-
ur Guðrúnu Ásgeirsdóttur og eiga
þau þrjú börn; Marsibil, f. 20.2. 1960,
bóndi og vitavörður á Dalatanga,
gift Heiðari W. Jons og eiga þau tvö
börn, auk þess sem Heiðar á tvö börn
frá fyrra hjónabandi; Erna Jóhanna,
f. 17.6. 1962, starfrækir bílaleigu á
Egils stöðum og á hún einn son; Her-
dís, f. 23.5. 1967, bóndi og vitavörður
á Sauðanesi við Siglufjörð, gift Jóni
Trausta Traustasyni og eiga þau þrjú
börn. Systkini Erlends eru Baldvina,
f. 21.4. 1925, nú látin, var húsmóðir í
Reykjavík, var gift Snæbirni Pálssyni
og eignuðust þau tvo syni; Erla Guð-
laug, f. 16.5. 1926, nú látin, var hús-
móðir á Akureyri, vaf gift Lýð Bogasyni
sem er látinn og eignuðust þau tvær
dætur; Haraldur, f. 26.11. 1927, fyrrv.
starfsmaður KEA, búsettur á Akureyri,
var kvæntur Ásgerði Sigurbjörnsdótt-
ur sem er látin og eignuðust þau fimm
börn; Guðmundur, f. 24.2. 1929, fyrrv.
kaupmaður á Akureyri, var kvænt-
ur Sigríði Jónsdóttur sem er látin og
eignuðust þau fjögur börn; Hreinn, f.
20.5. 1932, fyrrv. starfsmaður á Kefla-
víkurflugvelli, nú búsettur á Siglufirði,
kvæntur Pálínu Sigurðardóttur og eiga
þau tvo syni.
Foreldrar Erlends voru Magn-
ús Baldvinsson, f. 5.11. 1895, d. 15.9.
1956, bóndi á Siglunesi, og k.h., Ant-
onía Vilhelmína Guðbrandína Er-
lendsdóttir, f. 5.5. 1901, d. 22.7. 1987,
húsfreyja.
Erlendur er að heiman.
80 ára sl. fimmtudag