Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2009, Síða 8
8 föstudagur 11. desember 2009 fréttir
Þönglabakka (Mjódd) 4 sími 557 4070
myndval@myndval.is
www.myndval.is
Myndadagatal
persónuleg jólagjöf
Verð frá 3.300kr.
Dagatölin okkar eru framkölluð
hágæða ljósmyndapappír
Sandkorn
n Meðal þeirra nýliða sem
hyggja á framboð hjá Sjálfstæð-
isflokknum í Reykjavík í vor er
Hildur Sverrisdóttir lögfræðing-
ur 365. Hildur hefur ekki tekið
þátt í hefðbundnu flokksstarfi
fram að
þessu og
ekki komið
hefðbundna
leið í gegn-
um Heim-
dall eða
SUS. Hún
er þekkt-
ur jafn-
réttissinni og starfaði á sínum
tíma sem framkvæmdastjóri V-
dagssamtakanna. Þá skemmir
væntanlega ekki fyrir að hún er
sambýliskona Teits Björns Ein-
arssonar og tengdadóttir Einars
Odds Kristjánssonar heitins frá
Flateyri. Heyrst hefur að hún
sækist eftir sæti ofarlega á lista.
n Mikil spenna er vegna prófkjörs
Samfylkingar í Borginni. Dagur B.
Eggertsson mun væntanlega ekki
fá mótframboð í fyrsta sætið og
því er spáð
að Oddný
Sturludóttir
hreppi annað
sætið. Hjálm-
ar Sveinsson
útvarps-
maður mun
væntanlega
blanda sér í
slaginn um þriðja sætið þar sem
mikill kvennafans sækir einnig
að. Óvissa er aftur á móti um
borgarfulltrúann Dofra Her-
mannsson sem ekkert hefur gefið
upp um það hvort hann gefi kost
á sér.
n Því var slegið upp í Fréttablað-
inu að bók Nönnu Rögnvaldar-
dóttur matargúrús hefði fengið
tilnefningu til „hinna virtu verð-
launa Gourmand World Cook-
book“ sem frumlegasta bókin og
best mynd-
skreytta árið
2009. Vefritið
Pressan vakti
athygli á því
að Nanna
hefði verið
ljómandi
hress með
tíðindin í
samtali við Fréttablaðið. Press-
umenn hafa síðan gúgglað og
komist að því að Nanna hafði
á bloggi sínu, 5. júní árið 2007,
fjallað um þessi verðlaun með af-
gerandi hætti: „Ég var að fá mat-
reiðslubók í póstinum áðan. Du-
bai New Arabian Cuisine. Fínt, ég
átti enga matreiðslubók frá Dubai
... Nema ég sé að hún er með lím-
miða. Winner Gourmand World
Cookbook Awards. Það eru nú
meiri brandaraverðlaunin,“ vitnar
Pressan í Nönnu og dáist síðan að
viðhorfsbreytingunni.
Lesendum DV gefst kostur á að velja Hetju ársins 2009:
Hetja ársins hjá DV
Hetja ársins hjá DV verður nú valin í
annað sinn. Lesendur eru beðnir um
að senda nafn eða nöfn þeirra sem
þeim finnst verðugir þess að bera
nafnbótina Hetja ársins 2009 fyrir
eitthvað sem viðkomandi afrekuðu á
árinu sem nú er senn á enda.
Allir Íslendingar og þeir sem búa
hér á landi koma til greina í valinu
og er öllum frjálst að senda inn til-
nefningar. Engu skiptir hvort fólk er
þjóðþekkt, minna þekkt eða alls ekk-
ert þekkt; ríkt, fátækt eða þar á milli;
útrásarvíkingur, fiskverkakona eða
meindýraeyðir - allir eru gjaldgeng-
ir í kjörinu. Ef viðkomandi hefur ekki
komist í fréttirnar fyrir afrek sitt verð-
ur að fylgja með lýsing á því hvern-
ig hinn tilnefndi lét gott af sér leiða
á árinu. Ritstjórn DV velur hetjuna
og tekur þar mið af innsendum til-
nefningum, án þess þó að vera alfar-
ið bundin af því að velja hetjuna úr
hópi tilnefndra.
Bæði er hægt að senda tilnefning-
ar á netfangið hetjaarsins@dv.is og
á Birtíngur útgáfufélag, Lynghálsi 5,
110 Reykjavík. Skilafrestur er til mið-
nættis 21. desember en niðurstaða
kosningarinnar verður kunngjörð í
kringum áramótin.
Hetja ársins 2008
Þráinn Bjarnason Farestveit
framkvæmdastjóri var
valinn hetja ársins hjá DV í
fyrra. Hann bjargaði manni
úr bifreið sem stóð í björtu
báli í september árið 2008.
Margir af núverandi framkvæmdastjórum Íslandsbanka eiga háar launakröfur í þrota-
bú gamla Glitnis. Þrír þeirra fengu samtals 2400 milljóna króna kúlulán til hlutabréfa-
kaupa í Glitni í maí 2008. Þeir eiga 140 milljóna króna launakröfu í þrotabúið. Athygli
vekur að Birna Einarsdóttir, bankastjóri Glitnis, er einungis með 12,5 milljóna króna
kröfu. Bjarni Ármannsson hefur greitt 1.020 milljónir króna til baka til gamla Glitnis.
HiminHáar kröfur
kúlulánakónga
Brynjólfur Þór Guðmundsson
fréttastjóri skrifar: brynjolfur@dv.is
Margir af núverandi stjórnendum Ís-
landsbanka auk fyrrverandi stjórn-
enda Glitnis gera háar kröfur í þrota-
bú Glitnis vegna launagreiðslna.
Skilanefnd Glitnis greindi frá því í
gær að fullnaðaruppgjör hefði verið
gert við Bjarna Ármannsson, fyrrver-
andi bankastjóra Glitnis. Greiðslur
Bjarna til bankans vegna starfsloka
hans hafa því numið um 1.020 millj-
ónum króna. Skilanefnd Glitnis þurfti
sem kunnugt er að afskrifa 800 millj-
ónir króna af skuldum félagsins Ima-
gine Investment sem er í eigu Bjarna.
DV greindi frá því í sumar að Lárus
Welding, sem tók við bankastjóra-
stöðunni af Bjarna, hefði gengið frá
fullnaðaruppgjöri við skilanefnd
Glitnis. Lárus er ekki á listanum yfir
kröfuhafa Glitnis. Slitastjórn Glitn-
is ákvað að hafna launakröfum allra
fyrrverandi starfsmanna bankans
sem sátu í framkvæmdastjórn hans.
Vísaði Steinunn Guðbjartsdóttir, for-
maður slitastjórnar Glitnis, til 112.
greinar gjaldþrotalaga.
Kúlulánakóngar með
himinháar kröfur
Jóhannes Baldursson, núverandi
framkvæmdastjóri fjárstýringar og
markaðsviðskipta Íslandsbanka, ger-
ir 68 milljóna króna kröfu í þrotabú
Glitnis. Jóhannes fékk 800 milljóna
króna kúlulán í gegnum félagið sitt
Gnóma ehf. í maí 2008. Kristinn Þór
Geirsson, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri og stjórnarmaður í Glitni, gerir
48 milljóna króna kröfu. Kristinn fékk
994 milljóna króna kúlulán í gegn-
um félagið sitt KÞG Holding ehf. til
að kaupa hlutabréf í Glitni. Kristinn
lét nýverið af stjórnarformennsku
bílaumboða Ingvars Helgasonar og
B&L.
Rósant Már Torfason, núverandi
framkvæmdastjóri áhættustýringar,
lánaeftirlits og lögfræðisviðs Íslands-
banka, gerir 37 milljón króna kröfu í
þrotabú Glitnis. Félag hans Stranda-
tún ehf. fékk 800 milljóna króna
kúlulán til hlutabréfakaupa í Glitni.
Vilhelm Már Þorsteinsson, núver-
andi framkvæmdastjóri fyrirtækja-
sviðs Íslandsbanka, gerir 33 milljóna
króna kröfu í þrotabú Glitnis. Félag
hans AB 154 ehf. fékk 800 milljóna
króna kúlulán til hlutabréfakaupa
í Glitni. Athygli vekur hversu lága
kröfu Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, gerir í þrotabú Glitn-
is. Einungis 12,5 milljónir króna. Fé-
lag hennar Melkorka ehf. fékk sem
kunnugt er 184 milljóna króna kúlu-
lán sem gufaði upp vegna mannlegra
mistaka.
fyrrverandi starfsmenn
líka kröfuháir
Sá sem gerir hæstu launakröfuna í
þrotabú Glitnis er Sigurgeir Örn Jóns-
son, eða 166 milljónir króna. Hann
starfaði um árabil hjá Bank of Amer-
ica en hóf störf í fjárstýringu Glitnis
nokkrum mánuðum áður en hann
fór í þrot. Magnús Bjarnason, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri alþjóðasviðs
Glitnis, gerir 130 milljóna króna kröfu
í þrotabúið. Magnús starfar í dag sem
framkvæmdastjóri Capacent Glac-
ier. Hann keypti jarðhitastarfsemi
Glitnis út úr bankanum fljótlega eft-
ir hrun og fór sú starfsemi til Capac-
ent. Einar Örn Ólafsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri hjá fyrirtækjaráð-
gjöf Íslandsbanka gerir 32 milljóna
króna kröfu í þrotabúið. Hann starf-
ar í dag sem forstjóri olíufélagsins
Skeljungs.
Birna Einarsdóttir
Bankastjóri Íslandsbanka
Gerir 12,5 milljóna króna kröfu í þritabú Glitnis
Félag hennar Melkorka ehf. fékk 184 milljóna kúlulán
jóhannes Baldursson
Framkvæmdastjóri fjárstýringar og markaðsviðskipta
Gerir 68 milljóna króna kröfu í þrotabú Glitnis
Félag hans Gnómi ehf. fékk 800 milljóna kúlulán
rósant már Torfason
Framkvæmdastjóri áhættustýringar, lánaeftirlits og
lögfræðisviðs
Gerir 37 milljóna króna kröfu í þrotabú Glitnis
Félag hans Strandatún ehf. fékk 800 milljóna kúlulán
Vilhelm már Þorsteinsson
Framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Íslandsbanka
Gerir 33 milljóna króna kröfu í þrotabú Glitnis
Félag hans AB 154 ehf. fékk 800 milljóna kúlulán
Kristinn Þór Geirsson
Fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Glitni
Gerir 48 milljóna króna kröfu í þrotabú Glitnis
Félag hans KÞG Holding ehf. fékk 994 milljóna kúlulán
Aðrir sem gera launakröfur í þrotabú Glitnis:
Sigurgeir Örn Jónsson, 166 milljónir
Magnús Bjarnason, 130 milljónir
Eggert Þór Kristófersson, 113 milljónir
Ingi Rafnar Júlíusson, 85 milljónir
Helgi Rúnar Óskarsson, 62 milljónir
Magnús Arnar
Arngrímsson, 34
milljónir
Magnús Pálmi
Örnólfsson, 32
milljónir
Einar Örn
Ólafsson, 32
milljónir
Helstu kröfur núverandi og fyrrverandi starfsmanna
Hófstillt Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, gerir „einungis“ 12,5 milljóna
króna kröfu í þrotabú Glitnis.