Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2009, Page 12
12 föstudagur 11. desember 2009 fréttir
Þegar tryggingafélagið Sjóvá, sem
var í eigu Werners-bræðra í gegnum
eignarhaldsfélagið Milestone, keypti
sig inn í fasteignaverkefni í Makaó í
Suðaustur-Asíu árið 2006, fyrir um
sjö milljarða króna var ætlun þess að
græða milljarða með tiltölulega lít-
illi fyrirhöfn. Hugmyndin var að eiga
fasteignaverkefnið, sem var 41 hæðar
hár turn með 68 lúxusíbúðum í hjarta
Makaó, í nokkur ár og selja bygging-
una svo á uppsprengdu verði - ljúka
við háhýsið á næsta ári. Eignarhalds-
félagið Vafningur, sem var í meira
en helmingseigu Sjóvár, keypti fast-
eignaverkefnið af félaginu í febrúar í
fyrra og urðu eigendur olíurisans N1
stórir hluthafar í því í kjölfarið.
Efnahagsþrengingar síðastliðna
árs settu hins vegar strik í reikning-
inn fyrir Milestone og Vafning, líkt
og fyrir önnur eignarhaldsfélög, og
hefur félagið verið tekið til gjald-
þrotaskipta. Sjóvá seldi svo turninn
í sumar og er laus allra mála undan
fjárfestingunni í Makaó. Trygginga-
félagið tapaði hins vegar rúmlega
þremur milljörðum króna á fjárfest-
ingunni og um svipað leyti og Sjóva
losaði sig út úr henni lagði íslenska
ríkið 12 milljarða króna inn í félag-
ið til að bjarga því frá þroti. Því má
segja að tapið af fasteignaverkefninu
í Makaó lendi á endanum á íslensku
þjóðinni. Hver Íslendingur þarf því
að greiða um 10.000 krónur vegna
taps Vafnings í Makaó.
Lúxusíbúðir fyrir ungt
og ríkt fólk
Íbúðirnar í One Cent-
ral - fasteignaverkefn-
inu voru hannaðar
með ungt og ríkt fólk
á framabraut í huga,
samkvæmt heimild-
um DV. Alls var um
að ræða sjö háhýsi
og keypti Sjóvá eitt
þeirra: Turn IV. svo-
kallaðan. Sá turn
var rúmlega 16.500
fermetrar að stærð.
Sitt hvoru megin
við háhýsin voru
Mandarin-hótelið og 37 þúsund fer-
metrar af lúxusverslunarhúsnæði
sem og þrjú stór spilavíti. En Makaó
er gjarnan kölluð hin asíska Las Ve-
gas sökum þess hversu mikið er um
spilavíti þar - samtals eru þau um 30
talsins - og er hún vinsæll áningar-
staður hjá erlendum ferðamönnum.
Makaó er gjarnan borin saman við
Las Vegas enda er hún talin vera sú
skemmtanaborg heims sem er í hvað
örustum vexti.
Í kynningarefni um One Central-
verkefnið frá breska fasteignafyrir-
tækinu Savills var sagt að bygging-
arnar ættu að breyta ásýnd himinsins
yfir Makaó. „One Central mun breyta
ásýnd himinsins yfir Makaó með því
að setja nýja staðla í hönnun. Stór-
kostlegur veggur úr gleri mun minna
á skipssegl sem endurspeglar, bæði
eiginlega og óeiginlega, sjóinn
og höfnina sem liggur að
turnunum,“ segir í kynn-
ingarefninu. Ljóst er að
íbúar turnanna áttu að
búa við mikinn lúxus.
Þannig áttu íbú-
ar turnsins númer 4
að hafa aðgang að 5
hæða hárri íþrótta-
og tómstundamið-
stöð með 50 metra
sundlaug, spa, full-
komnum líkams-
ræktarsal og ýmsum
íþróttaleikvöllum.
Íbúðirnar
voru
sömuleiðis auglýstar með stórfeng-
legu 180 gráðu útsýni.
Saksóknari skoðar Sjóvá
Sérstakur saksóknari íslenska efna-
hagshrunsins, Ólafur Hauksson,
hefur verið með Sjóvá og Milestone
til rannsóknar um margra mán-
aða skeið. Verið að skoða hvort ein-
staka þættir í starfsemi félagsins séu
mögulega brot á auðgunarbrotakafla
hegningarlaga og eins hvort starf-
semi Sjóvár samræmdist lögum um
vátryggingastarfsemi. Ástæðan fyrir
þessum vinklum er meðal annars sú
að það þykir grunsamlegt hvað Mile-
stone tapaði gríðarlega miklum fjár-
munum á síðastliðnu ári. Ekki hefur
verið gefið upp hvort saksóknari sé
sérstaklega að skoða viðskipti Sjóvár
og Vafnings í Makaó en ljóst
er að embættið þarf
að taka tillit til
þeirra fjárfest-
inga í rann-
sókninni.
Ástæð-
an er sú að
hluta taps
Sjóvár má rekja til fasteignaverkefn-
isins í Makaó og Vafningur var fjár-
magnaður með láni frá Sjóvá. Einn
viðmælandi DV segir meðal annars
að á bak við fjárfestinguna í Makaó
hafi verið ábyrgðir sem hefðu getað
knésett Sjóvá ef verkefnið hefði ekki
verið selt. „Þetta hefði getað keyrt
Sjóvá í þrot,“ segir viðmælandinn.
Rannsókn saksóknara á Sjóvá
og Milestone er gríðarlega flókin
þar sem net dótturfélaga Milestone
var afar þéttriðið og ruglingslegt og
herma heimildir DV að að erfitt sé að
sjá lógíkina í því. Rannsókninni mun
þó miða nokkuð vel þrátt fyrir þetta
mikla flækjustig, samkvæmt heim-
ildum DV.
Gróðavon hvatinn í Makaó
DV leitaði til eins innanbúðarmanns
í viðskiptalífinu eftir skýringum á
viðskiptum Vafnings í Makaó.
Fyrsta spurningin sem DV spurði
hann að var sú hvaða hvati gæti hafi
legið að baki hjá þeim sem tóku þátt
í fjárfestingum Vafnings í Makaó, til
að mynda hjá eigendum N1. „Hvat-
inn er bara sá að allt það sem
þessir drengir eins og
Karl Wernersson og Jón Ásgeir voru
að gera á þessum árum breyttist í
gull. Þeir bara skuldsettu sig upp í
rjáfur og tóku svo stöður í alls kon-
ar verkefnum og eignirnar hækkuðu
alltaf. Karl var búinn að græða alveg
rosalega á árinu þarna á undan. Ég
held að mönnum hafi bara litist vel
á Karl og talið hann kláran og viljað
vera með í fjárfestingum hans og fá
ágóðann. Það var náttúrlega kom-
ið langt árabil þar sem hann græddi
á öllu sem hann gerði, sama hversu
vitlaust það var. Menn ætluðu bara
að nýta sér snilli Karls til að græða
alveg ofboðslega mikið,“ segir heim-
ildarmaðurinn um aðkomu Bjarna
Benediktssonar, Benedikts Sveins-
sonar, föður hans, og Einar Sveins-
sonar að Vafningi í fyrra. „Þetta var
bara stemningin hjá mönnum á sín-
um tíma: Menn óðu áfram um víð-
an völl án allrar umhugsunar,“ segir
viðmælandi DV en líkt og greint hef-
ur verið frá í blaðinu hefðu eigend-
ur Vafnings getað grætt milljarða á
fjárfestingunni í Makaó ef hún hefði
gengið upp.
Íslenskir skattgreiðendur þurfa að greiða fyrir milljarðatap Sjóvár og Vafnings af fasteignafjárfestingum í Mak-
aó. Íslenska ríkið þurfti að leggja Sjóvá til 12 milljarða til að bjarga því frá þroti. Lúxusíbúðaturn Sjóvár og Vafn-
ings átti að breyta ásýnd himinsins yfir Makaó og ætluðu þeir sér að græða marga milljarða á honum. Reikna má
með að viðskipti Sjóvár og Vafnings séu hluti af rannsókn sérstaks saksóknara á Milestone.
SKATTBORGARAR GREIÐA
MILLJARÐATAPIÐ Í MAKAÓ
InGI F. VILhjáLMSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
fRAMhALd á næSTu OPnu
„Menn ætluðu bara að nýta
sér snilli Karls til að græða
alveg ofboðslega mikið.“
Vafningur og Turn 4 Vafningur keypti einn af turnunum í One Central-fasteignaverk-
efninu í Makaó, sem sést hér á myndinni til hægri. Ætlun Sjóvár og síðar Vafnings var
að eiga turninn í í nokkur ár og selja hann svo með miklum hagnaði. Annað kom hins
vegar á daginn og þurfa íslenskir skattgreiðendur að borga brúsann.
Vafningsmenn Karl og Steingrímur seldu turninn til
eignarhaldsfélagsins Vafnings í febrúar í fyrra. Þá urðu
bræðurnir Einar og Benedikt Sveinssynir eigendur hans á
móti þeim. Bjarni, sonur Benedikts, kom einnig að félaginu.
Fjölskyldufyrirtæki Bjarni, Einar og Bene-
dikt fóru inn í Vafning með Wernersbræðrum.