Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2009, Síða 14
14 föstudagur 11. desember 2009 fréttir
„Ég hef aldrei komið nálægt neinni
ákvörðun um að taka þátt í fast-
eignaverkefni í Makaó,“ segir Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins og fyrrverandi stjórnar-
formaður BNT og N1, um aðkomu
sína að eignarhaldsfélaginu Vafn-
ingi sem meðal annars fjárfesti í fast-
eignaverkefni Sjóvár í Makaó í byrjun
febrúar í fyrra fyrir rúma fimm millj-
arða króna. BNT og félögin Hafsilfur
og Hrómundur, sem eru í eigu föður
og föðurbróður Bjarna, voru hluthaf-
ar í félaginu, líkt og greint var frá í DV
á miðvikudaginn, og fékk Bjarni um-
boð til að veðsetja hlutabréf þeirra
allra í félaginu sama dag og Vafning-
ur keypti fasteignaverkefnið.
Bjarni vissi hins vegar vel að fé-
lögin væru hluthafar í Vafningi þrátt
fyrir að hann neiti því að hafa vitað
að félagið hafi keypt fasteignaverk-
efni Sjóvár. Hann segir að Vafningur
hafi ekki einungis verið stofnaður til
að halda utan um fasteignaverkefnið
heldur til að endurfjármagna lán fyr-
ir hluthafa þess. Að sögn Bjarna var
ekki langur aðdragandi að stofnun
Vafnings og var það ekki forgangs-
mál að ganga frá því að BNT gerðist
hluthafi í Vafningi.
Formaðurinn segir jafnframt að
áhætta félaganna þriggja af fjárfest-
ingunni í Vafningi hafi verið lítil þar
sem þau hafi ekki lagt fram eigin-
fjárframlög og að félagið hafi verið
fjármagnað með lánsfé. Hluthafar
Vafnings hefðu þó getað grætt millj-
arða ef fjárfestingin hefði gengið eft-
ir. Svo varð hins vegar ekki og í kjöl-
far efnahagshrunsins varð ljóst að
fasteignaverkefnið í Makaó myndi
skila miklu tapi, meðal annars vegna
falls eignarhaldsfélagsins Milestone
sem átti Sjóvá. Íslenska ríkið þurfti,
í kjölfar hrunsins, að bjarga Sjóvá
frá gjaldþroti með 12 milljarða eig-
infjárframlagi. Sjóvá var síðan losað
út úr fasteignaverkefninu í sumar og
varð tapið af fjárfestingunni í Makaó
á fjórða milljarð króna fyrir félagið.
Þegar ráðist var í fjárfestinguna hefði
Vafningur hins vegar getað grætt vel
á henni.
Bjarni kom því að því að ákveða
þátttöku BNT, og hugsanlega einn-
ig hinna félaganna tveggja, í Vafn-
ingi og virðist hafa verið fullkomlega
meðvitaður um tilgang félagsins þó
svo að hann hafni því að hafa haft
eitthvað að segja um fjárfestingar fé-
lagsins í Makaó.
Bjarni: Bræðurnir ekki á
landinu
Aðspurður af hverju hann hafi feng-
ið umboð frá félögunum þremur
sem voru í eigu fjölskyldu hans –
BNT, Hrómundi og Hafsilfri – til að
veðsetja hlutabréfin í Vafningi sama
dag og félagið keypti turninn í Mak-
aó segir Bjarni: „Nei, ég vissi ekkert af
því á hvaða tímapunkti þessar eign-
ir fluttust inn í Vafning,“ segir Bjarni
sem samkvæmt þessu vissi ekki að á
sama tíma og hann fékk umboðið var
félag, sem var að hluta til í eigu ætt-
ingja hans sem og félags sem hann
var stjórnarformaður og hluthafi í,
að festa kaup á fasteignaverkefni í
Makaó fyrir rúma fimm milljarða
króna. Daginn áður en Vafningurinn
keypti fasteignaverkefnið í Makaó
seldi Milestone eignarhaldsfélaginu
Mætti 12,1 prósents hluta í Vafningi
fyrir rúmar 60 þúsund krónur og var
Bjarni einn af þeim sem gat skrifað
undir samninginn fyrir hönd Máttar.
„Þeir [Benedikt og Einar, innsk.
blaðamanns] voru ekki staddir á
landinu og báðu mig um það fyr-
ir sína hönd að skrifa undir ákveð-
inn veðsamning þar sem þeir voru
að veðsetja hlutabréfin sín í félag-
inu... Þetta var veðsamningur sem
gerður var við bankann vegna lána
sem bankinn hafði veitt félaginu,“
segir Bjarni en BNT, Hrómundur og
Hafsilfur voru í eigu föður Bjarna,
Benedikts Sveinssonar, og föður-
bróður hans, Einars. „Þegar eigend-
ur þessara hlutabréfa í Vafningi óska
IngI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
HÖFÐU ENGU AÐ TAPA
Bjarni Benediktsson segist ekki hafa vitað að Vafningur fjárfesti í fasteignaverkefni í
Makaó. Hann víkur sér ekki undan ábyrgð á Vafningi þar sem hann hafi verið stjórn-
arformaður BNT, eins hluthafa félagsins. Bjarni segir tilgang Vafnings hafa verið að
endurfjármagna lán og að Engeyingar hafi ekki hafa lagt fram eigið fé í Vafning.
Eignarhald
á Vafningi:
SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir)
48,8 prósent
Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar
Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveins-
son, BNT ehf./Einar og Benedikt ofl.
og Sáttur/Guðmundur Ólason)
39,1 prósent
Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2,
Hrómundur, Hafsilfur)
12,1 prósent
one Central í makaó
Kaup Vafnings á eignarhaldsfélaginu sem hélt utan um háhýsið í fasteignaverk-
efninu One Central í Makaó gengu í gegn í febrúar 2008. Félagið hafði áður verið
að fullu leyti í eigu dótturfélags Sjóvár en komst við eigendaskiptin í eigu annars
dótturfélags tryggingafélagsins og eignarhaldsfélaga sem tengjast Engeyjar-
frændunum: Einari, Benedikt og Bjarna.
Kaupverðið var rúmir 5 milljarðar króna en turninn á að vera 41 hæð með tæp-
lega 70 íbúðum. Íbúar háhýsisins áttu að hafa aðgang að 5 hæða hárri íþrótta- og
tómstundamiðstöð með 50 metra sundlaug, spa, fullkomnum líkamsræktarsal og
ýmsum íþróttavöllum.
Hugmyndin hjá Sjóvá og síðar Vafningi var að eiga háhýsið í skamman tíma og
selja það síðan með hagnaði upp á rúmlega 8 milljarða króna þar sem áætlað var
að fasteignaverð í héraðinu myndi rjúka upp. Eigendur byggingarinnar gátu því
grætt mikla fjármuni ef það hefði gengið sem skyldi.
svartháfur
Tekin var ákvörðun um það á einum og sama stjórnarfundinum í eignarhalds-
félaginu Svartháfi í upphafi árs 2008 að sækja um tæplega 200 milljóna evra lán
frá Glitni, eða sem nemur rúmum 35 milljörðum króna á núverandi gengi, og
endurlána það svo til félaga í eigu Karls og Steingríms Wernerssona.
Lánið sem Svartháfur endurlánaði strax til eignarhaldsfélaga í þeirra eigu var
svo notað til að greiða hluta skuldar við fjárfestingabankann Morgan Stanley
upp á 300 milljónir evra, sem nemur um 55 milljörðum króna á núverandi gengi.
Morgan Stanley var einn helsti erlendi lánveitandi Milestone og fjármagnaði
hluta útrásar fyrirtækisins til annarra landa.
Svartháfur, sem var í eigu föður þeirra bræðra, Werners Rasmusson, er einn af
stærri skuldurum Glitnis með skuldir upp á um 45 milljarða króna og er ljóst að
skilanefnd Glitnis þarf að afskrifa drjúgan hluta þeirrar fjárhæðar. Glitnir veitti
Svartháfi lánið í ársbyrjun 2008 en nákvæm dagsetning er ekki þekkt. Á sama
stjórnarfundi hjá Svartháfi í ársbyrjun 2008 var ákveðið að lána 50 milljónir evra
til félagsins Vafnings ehf., eða sem nemur tæpum 5 milljörðum króna. Eigendur
Vafnings voru þeir bræður Einar og Benedikt Sveinssynir og Bjarni, sonur
Benedikts og formaður Sjálfstæðisflokksins. Það skýtur skökku við að Werners-
bræður sem ekki gátu greitt af eigin lánum hafi séð sér fært að lána félagi í eigu
Engeyjarfjölskyldunnar fimm milljarða króna.
Eignarhald á turninum
í makaó:
Vafningur ehf. - 100 prósent
sj Properties macauoneCentral
holdCo ehf. - 100 prósent
Drakensberg Investments limited
á Bresku jómfrúareyjum - 100 prósent
Turninn í makaó
„Menn eru að endurfjármagna
lán og það er það sem er aðal-
ástæðan fyrir þátttöku þessara
félaga í Vafningi.“
Bjarni veðsetti Vafning Bjarni Benediktsson, núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk umboð frá BNT, Hrómundi og Hafsilfri til að veðsetja hlutabréf þeirra í eignarhaldsfélagi sem meðal annars keypti lúxusturn í Makaó sama dag og umboðin eru dagsett. Umboðin þrjú sjást hér á myndunum.