Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2009, Blaðsíða 38
38 föstudagur 11. desember 2009 helgarblað
Frægir Fangar
Morð, fíkniefnainnflutningur, fíkniefnaneysla,
skjalafals og umferðarlagabrot eru meðal þess sem
íslenskar stjörnur hafa setið inni fyrir. Íslenskar
stjörnur hafa gert sig sekar um mistök og þurft að
gjalda fyrir með vist í ísköldum fangaklefa.
Ármann reynisson
Vinjettumeistarinn Ármann var
moldríkur maður á árum áður, en
hann var dæmdur fyrir svokallað
Ávöxtunarævintýri. Fjöldi fólks
tapaði fé á viðskiptum við hann
og var hann dæmdur fyrir lögbrot.
Sjálfur hefur hann þó sagt að hann
hafi ekki gert annað en hafi síðar
viðgengist á hjá ýmsum fjármála-
fyrirtækjum.
Kalli Bjarni
Fyrsta Idol-stjarna Íslands þurfti að dúsa á bak
við lás og slá í tvö ár fyrir að flytja inn tvö kíló af
kókaíni. Þegar hann fór inn sagðist hann vera
feginn. Kalli er nú frjáls maður og er kominn
aftur í tónlistina - betri en nokkru sinni.
BoBBy Fischer
Fischer virti að vettugi alþjóðlegar refsiaðgerðir gegn
Júgóslavíu þegar hann tefldi skákeinvígi við Spasskíj í
Sveti Stefan árið 1992. Eftir einvígið var hann eftirlýstur í
Bandaríkjunum og eigur hans þar gerðar upptækar. Hann
fluttist seinna til Japans, en var hnepptur í fangelsi þegar
vegabréf hans rann út. Hann sendi Davíð Oddssyni bréf
og fékk ríkisborgararétt í kjölfarið. Hann bjó í Reykjavík
til æviloka og lést eftir baráttu við alvarleg nýrnaveikindi.
Fischer var jarðsettur í kyrrþey að eigin ósk í Laugardæla-
kirkjugarði í Flóa þann 21. janúar 2008.
Ívar Örn KolBeinsson
Ívar Örn tónlistarmaður, sem gengur undir
nafninu Dr. Mister, hefur komist í kast við
lögin og greindi Séð og Heyrt frá því að
hann hefði farið ránshendi um verslun
10-11. Þá hefur hann verið dæmdur fyrir
að keyra bíl undir áhrifum áfengis.
ragnar erling hermannsson
Ragnar er einn af íslensku Brasilíuföngunum en hann
er langfrægastur þeirra. Hann tók þátt í Leitinni að
strákunum og lék veigamikið hlutverk í myndinni
Reykjavík-Rotterdam. Ragnar situr í fangelsi í borginni
Recife í Brasilíu, bíður enn eftir að mál hans verði tekið
fyrir hjá þarlendum dómstólum en hann var tekinn
með fulla ferðatösku af eiturlyfjum.
Þorsteinn
Kragh
Þorsteinn Kragh var
dæmdur í níu ára
fangelsi fyrir að smygla
til landsins tæpum 200
kílóum af hassi og hálfu
öðru kílói af kókaíni.
Þorsteinn hefur gengið
á fjöll með Halldóri
Ásgrímssyni, slegist
með Jet Black Joe, veitt
rjúpu með Bubba, verið
umboðsmaður GCD
og hann fór með Þóru
í Atlanta til Barcelona
til að ná í stórtenórinn
Domingo sem síðan
söng hér á landi.
gunnar smÁri egilsson
Fjölmiðlakóngurinn sat í fangelsi fyrir um-
ferðarlagabrot 1997. Gunnar Smári skrifaði
grein um reynslu sína í klefanum og hæddist
að hinni pólitísku réttstjórn landsins.