Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2009, Qupperneq 39
helgarblað 11. desember 2009 föstudagur 39
Hlý, mjúk og notaleg nærföt
Jólatilboð
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Frægir Fangar
Árni Johnsen
Þingmaðurinn var dæmdur í tveggja ára fangelsi
fyrir fjárdrátt og umboðssvik í opinberu starfi,
mútuþægni og rangar skýrslur til yfirvalda. Árni var
alls ákærður í 27 liðum og fyrir héraðsdómi játaði
hann sök í 12 þeirra. Hann dró til baka játningu
sína í tveimur liðum fyrir Hæstarétti en rétturinn
staðfesti sakfellingu héraðsdóms í þeim báðum.
guðmundur
Jónsson
Guðmundur Jónsson,
fyrrverandi forstöðu-
maður meðferðarheim-
ilisins Byrgisins, var
dæmdur í þriggja ára
fangelsi fyrir að brjóta
kynferðislega gegn
fjórum konum, sem
voru skjólstæðingar
hans á heimilinu. Alls
voru það átta konur
sem kærðu Guðmund til
lögreglunnar en málið
hófst með kæru ungrar
konu í desember 2006.
einar Bollason
Hestakóngurinn fléttaðist inn
í Geirfinnsmálið og þurfti að
dúsa í einangrun í þrjá mánuði.
Hann skýrði frá því í sjónvarps-
viðtali rúmu ári eftir að honum
var sleppt að hann hefði í lok
einangrunarvistar verið farinn
að efast um sakleysi sitt. Einar
var hreinsaður af öllum grun.
Árni Þór
VigFússon
Árni Þór Vigfússon var dæmdur í
tveggja ára fangelsi í Landssíma-
málinu svonefnda. Árni Þór var
ákærður fyrir stórfelld skattalaga-
brot við rekstur á fimm einkahluta-
félögum. Fjórir voru sakfelldir í
málinu en einn hinna ákærðu var
sýknaður. Árni Þór var dæmdur til
þess að greiða 8,6 milljónir í sekt
eða sitja í fimm mánuði í fangelsi.
KristJÁn ra KristJÁnsson
Kristján Ragnar var dæmdur í tveggja ára fangelsi
í Landssímamálinu svokallaða, fyrir að hylma yfir
fjárdrátt Sveinbjörns Kristjánssonar, fyrrverandi
aðalféhirðis Landssímans. Kristján Ragnar og Árni
Þór Vigfússon áfrýjuðu sínum dómum. Hæstiréttur
mildaði dómana yfir þeim. Árni Þór var í Hæstarétti
dæmdur í 15 mánaða fangelsi og Kristján Ragnar
hlaut 18 mánaða dóm. Hluti af fénu sem Sveinbjörn
dró sér fór inn í Skjá einn.
ÁstÞór magnússon
Forsetaframbjóðandi og maður
friðar, Ástþór Magnússon, hefur
nokkrum sinnum komist í kast
við lögin. Eitt sinn þegar hann sat
í fangaklefa þurfti hann að gera
þarfir sínar og grátbað verðina að
hleypa sér á nýbónað postulíns-
klósettið. Beiðni hans var hafnað
og gerði Ástþór þarfir sínar á gólf
lögreglustöðvarinnar að Hverfis-
götu. Hann þurfti að gista aukanótt
í klefanum.
BJörgólFur guðmundsson
Skipafélagið Hafskip var tekið til gjaldþrota-
skipta og voru sautján menn ákærðir vegna
málsins. Árið 1991 var Björgólfur Guðmundsson
dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
atli helgason
Fá morðmál hafa vakið meiri athygli og óhug
hin seinni ár en þegar Atli Helgason lögfræð-
ingur varð Einari Erni Birgissyni, viðskiptafélaga
sínum, að bana í Öskjuhlíð 8. nóvember árið
2000. Hann ók með líkið suður á Reykjanes
þar sem hann faldi það í hraunsprungu og
máði vandlega út öll vegsummerki. Hann var í
kjölfarið dæmdur í 16 ára fangelsi.