Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2009, Blaðsíða 58
OnkyO með sérstæða fartölvu Japanski raftækjafram-
leiðandinn Onkyo er best þekktur fyrir ýmiss konar hljómtæki hér
á Vesturlöndum. Fyrirtækið framleiðir þó einnig tölvur og á dög-
unum kom á markað þessi sérstæða fartölva í Japan sem búin er
tveimur skjáum. Öðrum skjánum er einfaldlega rennt til hliðar ofan
af hinum. Þrátt fyrir að hinn almenni tölvunotandi þurfi alla jafna
ekki tvo skjái hefur þessi tölva mikið notagildi fyrir ýmsar starfsstétt-
ir svo sem verðbréfamiðlara eða kerfisstjóra.
Innanríkisráðherra Bretlands, Alan
Johnson, hafnaði því alfarið á dög-
unum að fresta framsali hins 43 ára
gamla Garys Mckinnon til Banda-
ríkjanna þrátt fyrir beiðnir lögfræð-
inga og mannréttindasamtaka.
McKinnon, sem er kerfisstjóri að
mennt, var handtekinn árið 2002 og
sakaður um að hafa brotið sér leið
inn í tölvukerfi bandaríska hersins
og Geimferðastofnunar Bandaríkj-
anna stuttu eftir hryðjuverkaár-
ásirnar þann 11. september 2001.
Afleiðingin varð sú að loka þurfti
tímabundið hluta varnarkerfis
Bandaríkjamanna og er tjónið met-
ið á 700 þúsund Bandaríkjadala.
McKinnon hafði áður lagt málið fyr-
ir Mannréttindadómstól Evrópu en
tapaði því í fyrrahaust þegar dóm-
stóllinn úrskurðaði framsalið ekki
vera brot á mannréttindum hans.
Mannréttindasamtök hafa hins
vegar ítrekað bent á að yrði réttað í
máli McKinnons í Bretlandi myndi
hann að öllum líkindum hljóta að-
eins skilorðsbundinn dóm og ekki
þurfa að fara í fangelsi. Í Bandaríkj-
unum má hann hins vegar eiga von
á allt að tíu ára vist í sérstöku ör-
yggisfangelsi en McKinnon er með
Asperger-heilkenni sem er tegund
af einhverfu og þjáist að auki af
þunglyndi. Mannréttindasamtök
túlka þetta sem „grimmdarlega og
óvenjulega refsingu“ (e. cruel and
unusual punishment) sem stang-
ist á við stjórnarskrá Bretlands því
framsalssamningar megi ekki vega
meira en stjórnarskrárbundin rétt-
indi borgaranna. McKinnon verð-
ur fyrsti Bretinn sem framseld-
ur verður til Bandaríkjanna vegna
tölvuglæpa.
palli@dv.is
Fyrsti Bretinn framseldur til Bandaríkjanna vegna tölvuglæpa:
einhverfur Og þunglyndur
ekki ég, bara þú!
Þegar umræðan í þjóðfélaginu berst
að farsímanotkun undir stýri án
handfrjáls búnaðar eru flestir ef ekki
allir sammála um að slíkir ökumenn
séu hættulegir öðrum í umferðinni.
Reyndin virðist hins vegar vera sú
að enginn treystir öðrum en treystir
samt sjálfum sér. Þannig leiða
sálfræðingar að því líkur að hver
einstaklingur hafi það jákvæða
sjálfsmynd að trúin á eigin getu
yfirtaki heilbrigða skynsemi og
útkoman verður: „Ég get þetta en þú
ert stórhættulegur!”
fyrir þá sem ekki
rata heim
Notkun staðsetningartækja til að
fylgjast með börnum, gæludýrum
og jafnvel afbrotamönnum er ekki
ný af nálinni. Bandarískt fyrirtæki
hefur nú sett á markað álíka tæki
sem ætlað er fyrir Alzheimer-
sjúklinga og fólk með ákveðin
heilkenni sem geta orðið til þess að
viðkomandi einstaklingar leggi af
stað fyrirvaralaust í gönguferðir
eitthvert út í óvissuna án þess að
rata til baka. Aðstandandi getur þá
hringt í lögreglu sem staðsetur
einstaklinginn nákvæmlega á
skammri stundu með upplýsingum
úr tækinu og kemur honum til síns
heima.
CyClus PangOlin
Kólumbíski töskuframleiðandinn
Cyclus sérhæfir sig í að framleiða
töskur úr endurunnum úrgangi.
Hönnunin er í flestum tilvikum
framandi og skemmtileg eins og
þessi bakpoki sem er að stórum
hluta unninn úr gömlum hjólbörð-
um. Útlit bakpokans og nafn er sótt í
suður-ameríska mauraætu að nafni
Pangoline.
UmsJóN: Páll sVANssON, palli@dv.is
34 gígabæt
hvern dag
Samkvæmt nýrri rannsókn Háskól-
ans í Kaliforníu tekur meðalheimili
í Bandaríkjunum við um hundrað
þúsund orðum og rúmlega þrjá-
tíu og fjórum gígabætum stafrænna
upplýsinga dag hvern. Þetta þýðir
þó ekki að meðalmaðurinn lesi um
hundrað þúsund orð á hverjum degi
heldur ber þau fyrir augu hans og
inn um eyrun án þess að hann veiti
því alltaf sérstaka athygli.
Og hvaðan koma þessi orð? Jú,
þau streyma til okkar frá ýmsum
miðlum eins og sjónvarpi, útvarpi,
vefnum, textaskilaboðum og tölvu-
leikjum.
Sex prósent á ári
Magn þeirra stafrænu upplýsinga
sem við meðtökum dag hvern eykst
um sex prósent á hverju ári og hef-
ur samanlagt aukist um heil 350 pró-
sent síðustu þrjá áratugina.
Rannsóknin leiðir einnig í ljós
síaukna þörf okkar fyrir upplýsing-
ar og afþreyingu og hversu miklum
tíma við eyðum í hvern miðil. Með-
al Bandaríkjamaður tekur við upp-
lýsingum sem samsvara tæpum tólf
tímum á dag, að mestu fyrir fram-
an sjónvarpsskjáinn eða um fjóra og
hálfan tíma en í öðru sæti er heim-
ilistölvan með um tvo tíma að með-
altali. Rannsóknin leiddi einnig í ljós
stóraukningu á þeim tíma sem eytt
er í tölvuleiki hvers konar, ekki síst
þá leiki sem finna má á samskipta-
síðum eins og Facebook. Það sem
kemur kannski mest á óvart er að
þrátt fyrir að dregið hafi töluvert úr
lestri bóka síðastliðna tvo áratugi er
niðurstaðan sú að ef lestur þeirra er
lagður saman við lestur á vefnum
kemur í ljós að mannskepnan hefur
aldrei lesið jafnmikið og nú.
palli@dv.is
58 föstudagur 11. desember 2009 helgarblað
Á hverju ári eykst magn stafrænna upplýsinga sem við meðtökum um sex prósent. Stað-
an í dag er um þrjátíu og fjögur gígabæt dag hvern á meðalheimili í Bandaríkjunum.
Gary McKinnon Er með
Asperger-heilkenni sem er
tegund af einhverfu og þjáist
að auki af þunglyndi.
sjónvarp
44,85 prósent
Útvarp
10,59 prósent
símtæki
5,24 prósent
Prentmiðlar
8,61 prósent
Tölvan
26,97 prósent
Tölvuleikir
2,44 prósent
Kvikmyndir
0,2 prósent
Tónlist
1,11 prósent