Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Blaðsíða 4
föstudagur 3. október 20084 Fréttir DV Verð á þorskkvóta hefur lækkað um helming frá því sem það varð hæst eftir að kvótinn var skorinn niður. Kílóverðið af þorski fór í allt að 4.700 krónur þegar það varð hæst en nú er það komið í um það bil tvö þúsund krónur. ÞORSKKVÓTINN HRYNUR Í VERÐI Varanlegur þorskkvóti selst nú á um það bil tvö þúsund krónur kílóið. Þetta er mikil breyting frá því sem var síðasta vetur. Þá seld- ist kílóið af þorski á 3.800 til 4.700 krónur. Lækkunin nemur því rúm- um helmingi af því sem verðið fór hæst í. Árni Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri hjá Kvóta- og skipa- sölunni, segir takmarkaðan að- gang að lánsfé og þá staðreynd að lánsfé sé mjög dýrt vera ástæðu þess hversu mjög kvótaverð hef- ur fallið. Hann tekur þó fram að á þeim tíma sem þorskkvótinn varð dýrastur hafi verið mjög lítið um viðskipti. „Það voru fáar sölur á svona verði. Þetta voru sölur sem áttu sér stað eftir að skerðingin fór í gegn.“ Árni vísar þarna til þeirr- ar ákvörðunar að skera þorskkvót- ann niður um þriðjung. Færri og verðmætari Árni segir að eftir kvótaniður- skurðinn hafi menn vonað að hvert kíló yrði verðmætara. „Menn voru að gæla við það að fá það sama úr 77 tonnum eins og 100 tonnum.“ Fyrir ári seldist þorskkvóti á nær þrjú þúsund krónur kílóið í aflamarki og á 2.500 til 2.700 krón- ur í krókaaflamarki. Þetta seg- ir Árni að hafi verið eðlilegt verð. „Síðan kemur út tilkynning eftir 1. júní 2007 að það þurfi að skerða þorskkvótann og þá fóru af stað þessi viðskipti. Þessi lausafjár- krísa var að byrja þá og fjármagn varð mjög dýrt og ekki hefur það lagast.“ Misjafn hagur útgerða Mjög misjafnt er hvernig út- gerðirnar standa og Árni segir erf- itt að gera sér grein fyrir hvernig þær fari út úr þeirri stöðu sem nú er komin upp. Hann segir að þær útgerðir sem skuldi lítið standi vel en að skuldsettar útgerðir geti far- ið mjög illa út úr þessu. „En það er ekki farið að bera á því að útgerð- irnar séu farnar á hausinn,“ segir Árni og bætir við: „Það eru við- skipti núna í gangi á þessum verð- um þannig að þetta er nú ekki al- veg kolsvart.“ Lengi að borga Kvótinn er dýr og menn geta verið lengi að greiða hann upp ef þeir þurfa að taka lán. Þegar kvót- inn seldist á þrjú þúsund krónur kílóið í apríl í fyrra þurfti að veiða þorsk í 20 ár til að borga upp lán- ið. Þá var miðað við að allar tekjur af veiðunum færu í að borga upp lánið en ekki tekið tillit til launa- greiðslna, vaxta og annars rekstr- arkostnaðar. „Hver sem er getur keypt kvóta. Viðkomandi þarf hins vegar að eiga ansi þokkalegt í buddunni og ekki verra ef viðkomandi hefur áhuga á að fara í galla og út á sjó. Málið er að síðan þarf maður að selja hvert kíló í nærri tvo áratugi og nærri helmingi lengur ef mað- ur tekur allan rekstrarkostnað og lánsvexti inn í dæmið,“ sagði Egg- ert Jóhannesson, skipa- og kvóta- miðlari hjá Bátum og kvóta, í við- tali við DV í apríl í fyrra. Þá kostaði þorskkílóið þrjú þúsund krónur. Tíu mánuðum síðar hafði verðið hækkað verulega og uppgreiðslu- tíminn lengst í 30 ár, líkt og af góðu húsnæðisláni. Alltaf í boltanum Skáldið Skrifar ótt knattspyrnutímabilinu hér á Fróni sé að mestu lokið og þó að margt hefði mátt betur fara á vellinum þetta árið lítur maður yfir sumarið með söknuði. Og rétt í þann mund að maður leggur áhorf- endaskóna á hilluna og allt loft virðist farið úr boltanum gerist hið óvænta: Menn sem ég hélt að aldrei gætu skorað, láta lappir standa niður úr skálmum, sækja fram og brjóta allar varnir á bak aftur. Já, kæra þjóð, það var í flóðljósunum á vellin- um við Seðlabankann að fótboltaleikur aldar- innar fór fram. Og hvílík tilþrif. Í framlínunni voru þeir Geir, Matti og Dabbi bankastarfs- maður. Í sinni fyrstu sókn skoruðu þeir áður en andstæðingarnir höfðu komið sér almenni- lega fyrir á vellinum. Staðan var 1–0 nánast um leið og leikurinn hófst. Aðdragandi marksins var svo ótrúlegur að honum verður vart lýst með orðum, því eftir að Dabbi og þeir byrjuðu á miðju og eftir stuttan samleik Geirs og Matta kom sending inn í teiginn, nánast við mark- ið og enginn annar en bankastarfsmaðurinn Dabbi stökk upp og skoraði. Dómarinn dæmdi markið að sjálfsögðu gilt og aðstoðardómarinn sá ekki ástæðu til að setja út á þann dóm, jafn- vel þótt allir áhorfendur héldu því fram að um rangstöðu hefði verið að ræða. Á myndum, sem sýna mark Dabba banka- starfsmanns, má sjá að engu er líkara en sjálfur Maradonna sé mættur á svæðið – dvergvaxinn, krullhærður og búlduleitur. Að vísu er þessi Maradonna í þybbnara lagi og hærugrár, auk þess sem hann virðist eilítið guggnari en mað- ur á að venjast. En þarna stekkur þessi hetja nokkra sentímetra í loft og virðist skalla knött- inn í autt markið. Og fagnaðarlætin ætla aldrei að byrja. Þegar myndir eru skoðaðar nánar, kemur í ljós að ekki er það höfuð Dabba sem snert- ir boltann. Nei, kæru landsmenn, við nánari athugun kemur í ljós að það er hægri hönd Dabba bankastarfsmanns sem snertir knött- inn og blakar honum í autt markið – hin bláa hönd guðs snertir knöttinn á svo lymskulegan hátt og svo leiftursnöggt að mannlegt auga má það ekki nema. Það sem var broslegast við þennan einkenni- lega knattspyrnuleik var að dómarinn ákvað að flauta leikinn af áður en andstæðingar Dabba bankastarfsmanns fengju tekið miðju. Ef einhver sparkar uppí loft er eðlilegt að skamm’ ann en föstu skotin fara oft fyrir utan rammann. Þ Kristján Hreinsson sKáld sKrifar. „Já, kæra þjóð, það var í flóðljósunum á vellinum við Seðlabankann að fótboltaleikur aldarinnar fór fram.“ Sandkorn n Ekki voru allir þingmenn við- staddir umræðu um stefnu- ræðu Geirs H. Haarde for- sætisráðherra á Alþingi í gær. Meðal þeirra sem vantaði var fyrrverandi aðstoðarmað- ur Geirs, Ragnheið- ur Elín Árnadóttir. Ragnheiður eignaðist á dögunum sitt annað barn með eiginmanni sínum Guðjóni Inga Guð- jónssyni og er hún því komin í fæðingarorlof frá þingstörfun- um. Nýja barnið er drengur og fæddist 25. september, sem er fyrir kaldhæðni örlaganna sami dagur og stjórnendur Glitnis gengu á fund Seðlabanka en eftir það virðist allt á fleygiferð niður á við í efnahagsmálum. n Heimir Karlsson hefur vak- ið athygli fyrir kraftmikla og örugga þáttstjórn í útvarpi og þar áður í sjónvarpi. Heimir er þó aðeins mannlegur eins og fólk er flest. Það kom í ljós þegar hann mismælti sig í umræð- um í þættin- um Í býtið á Bylgjunni í morgun þegar hann sagði að menn hefðu verið á undan sinni framtíð. Einkar fráir menn það án vafa. Heimir er þó ekki eini maðurinn til að nota þetta orðalag. Á Flateyri var eitt sinn rekinn skemmti- staðurinn Vagninn sem skreytti sig með slagorðunum „Bar á undan sinni framtíð“. n Himinháir reikningar sem eiga bara eftir að hækka virðast hafa hrætt marga til aðgerða í fjármálum sínum. Þannig heyrðust þær fréttir í útvarpi allra landsmanna í gær að allir tímar á Ráð- gjafarstofu um fjármál heimilanna hefðu bók- ast upp fyrsta dag mánaðar- ins eftir uggvænlegar fréttir af efnahagsmálum. Má því búast við að margir séu í þröng. Þeir sem komast ekki að hjá ráð- gjafarstofunni ættu kannski að leita uppi bók Ingólfs H. Ing- ólfssonar „Þú átt nóg af pen- ingum – þú þarft bara að finna þá!“ Sú bók hjálpaði mörgum þegar hún kom út og spurn- ing hvort hennar sé ekki þörf núna. Kvótaverðið lækkar færri krónur þarf til að kaupa kvótann nú en áður, erfiður aðgangur að lánsfé gerir það þó áfram erfitt. miðvikudagur 18. apríl 2007 6 Fréttir DV Það er aðeins á hö ndum stærri út- gerðarfyrirtækja að k aupa þorskkvóta. Kvótaverðið er það h átt að nær ógern- ingur er fyrir óbre yttan að kaupa kvóta og ætlast til þ ess að geta greitt afborganir og vext i af lánum með sölu afurðarinnar. F yrir unnin þorsk fást að hámarki þrj ú hundruð krón- ur á markaði og mið að við góða fram- legð, 30 prósent, sta nda eftir 90 krón- ur. Að jafnaði má ge ra ráð fyrir nærri sex prósenta vöxtum á kvótaláni frá viðskiptabönkunum og því á kvóta- eigandinn ekki fyr ir lánsvöxtunum af núgildandi kílóve rði á þorskkvóta. Ef horft er framhjá vöxtunum þarf viðkomandi kvótaka upanda að selja hvert kíló af þorski í nærri tvo ára- tugi til að eignast kv ótann skuldlaus- ann. Þá á jafnframt e ftir að taka með í reikninginn rekstrar - og launakostnað vegna veiðanna. Þo rskurinn er lang- verðmætastur af bo tnfiskaflanum og gefur hann að jafna ði fjörtíu prósent aflaverðmætis botn sfiska. Guðjón A. Kristjánsson, form aður Frjálslynda flokksins, segir kaup á þorskkvóta að- eins fyrir fáa. „Þú ge tur gleymt því að ætla þér að kaupa k vóta. Alveg sama hversu lengi þú gen gur í háskóla þá færðu dæmið ekki til að ganga upp. Þeir sem minni eru r áða bara ekki við þetta,“ segir Guðjón. Dæmið gengur ekki u pp Grétar Mar Jónss on skipstjóri tekur undir og bend ir á að þegar út- gerð selur þorskinn í vinnslu, en ekki beint á markað, fás t 120 til130 krón- ur á hvert kíló. Ha nn segir dæmið ekki ganga upp fyrir aðra en stóru út- gerðarfyrirtækin. „Þ etta dæmi geng- ur bara ekki upp, ne ma hjá þeim sem upphaflega fengu g jafakvóta. Það er ekki hægt að kepp a við stóru fyrir- tækin í þessu þar se m þau eru í þeirri stöðu að geta ve ðsett gjafakvót- ann sinn. Á markað i getur þú feng- ið nærri þrjú hund ruð krónum fyrir stóran þorsk, nærri helmingur fer í laun og góð framleg ð eru þrjátíu pró- sent,“ segir Grétar M ar. „Hvernig sem þú reiknar dæmið þá getur enginn byrjað í þessu umh verfi. Málið er að þú hefur ekki einu s inni efni á bestu vaxtakjörum. Þetta kvótaumhverfi er einfaldlega glatað þ ar sem aðeins er verið að hygla sérh agsmunum stór- fyrirtækjanna í stað þess að huga að heildarhagsmunum . Það er því mið- ur rauði þráðurinn í kerfinu í dag og ómögulegt að borg a kvóta upp með því að selja afurðina .“ Friðrik Jón Arngrí msson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, b endir á að flestir þeir sem kaupa kvó ta eigi kvóta fyrir og því sé um hreina viðbót að ræða. Hann telur að í slík um tilvikum geti verið minni krafa um arðsemi en engu að síður þurfi kaupe ndur ávallt að slá lán fyrir kaupunum. „Það er auðvitað heilmikill kostnaður sem fylgir veið- um og vinnslu. Í fles tum tilfellum eru menn að kaupa kvó ta sem hafa sjálfir vinnslumöguleika o g fá þannig meira útúr kílóinu. Engu a ð síður er fram- legðin aldrei nema ákveðið mikil og eftir það eru arðgrei ðslur og afskriftir. Miðað við sex próse nt vexti af kvóta- verðinu þá dugar fra mlegðin ekki fyr- ir vöxtunum,“ segir Friðrik. „Miðað við kílóverðið á ma rkaði sé ég ekki að þetta gangi upp því góð framlegð dugar ekki. Til að d æmið gangi upp þyrfti annað hvort lægri vexti, meiri framlegð eða hærra afurðaverð. Eða allt þetta til samans . Það er hins veg- ar eitthvað í þessu því menn eru að kaupa en einhverjir eru náttúrulega að viðhalda eignun um með því að kaupa viðbótarkvóta . Þeir sætta sig þá frekar við að fá lítið ú túr kaupunum.“ Verðið hækkar áfram Eggert Jóhannesso n, skipa- og kvótamiðlari hjá fyr irtækinu Bátar og kvóti, segir kílóverð á þorskvóta vera nærri þrjú þúsund k rónum og til þess að ná inn fyrir hverju kíló þarf að selja það ansi oft á ma rkaði. Aðspurður segir hann lítið um brask með kvóta. TrausTi hafsTeins son blaðamaður skrifar: trausti@dv.is 20 ár að fiska fyrir kvó tanum Gengur ekki upp Næ r ógerningur er fyrir b yrjendur að kaupa þo rskkvóta. Án vaxta og rekstrarkostnaðar ge tur tekið tvo áratugi að selja þorskinn á m arkaði til að ná inn fyr ir kaupverðinu. DV Fréttir miðvikudagur 18 . apríl 2007 7 „Hver sem er getur keypt kvóta. Við- komandi þarf hins v egar að eiga ansi þokkalegt í buddun ni og ekki verra ef viðkomandi hefu r áhuga á að fara í galla og út á sjó. M álið er að síðan þarf maður að selja hvert kíló í nærri tvo áratugi og nærr i helmingi lengur ef maður tekur allan rekstrarkostnað og lánsvexti inn í dæ mið,“ segir Egg- ert. „Skýringin á þe ssari þróun er að fyrirtækin hafa sífell t stækkað og afla- heimildir færst á fæ rri hendur. Fyrir vikið er lítið til skipta nna fyrir hina og hér er um að ræða takmarkaða auð- lind. Kvótaverðið h efur hækkað sí- fellt á síðustu áratug um og það mun ekkert stoppa. Ég he f hins vegar ekki mikið orðið var við braskara í þessu. Ef maður leggur út þ rjú þúsund krón- ur fyrir kvótanum þá stendur lítið eftir og útkoman dugar v arla fyrir vöxtun- um, hvað þá afborgu num.“ Ómögulegt að byrja Róbert Agnarsson, viðskiptastjóri fyrirtækjasviðs Kaup þings, segir við- skiptabankana löng u hætta að lána byrjendum fyrir kvó takaupum. Hann bendir á að mikilv ægt er að hafa í huga að stór hluti k vótans hefur ver- ið keyptur inn á hag stæðari verðum. „Mestur kvóti fyrirtæ kjanna í dag hef- ur ekki verið keypt ur á þessu verði og því verður að sko ða dæmið í sam- hengi. Þetta er að m estu jaðarverð og á við viðbótarkvóta s em fyrirtækin eru að bæta við sig. Það er enginn mögu- leiki að byrja í þess u, það er laukrétt niðurstaða. Bankar nir lána engum sem eru að byrja o g það eru aðeins stærri fyrirtækin se m hafa veð fyrir þessum lánum. Það er það sorglega við þetta,“ segir Ró bert. „Reiknings- dæmið getur aðeins gengið upp útfrá því að fyrirtækin haf a ákveðinn grunn sem þeir fengu á nú lli. Meðalverðið á kvótanum er því mu n lægra en kvóta- verðið í dag og fyrirt ækin eru að horfa til framtíðar varða ndi afurðaverð- ið þar sem þorskuri nn er takmörkuð auðlind. Þannig ge tur þetta gengið upp hjá stóru fyrirt ækjunum en það er enginn sem getur byrjað á þessum forsendum.“ Snýst aðeins um pen inga Aðspurður telur Gu ðjón núgild- andi kvótakerfi ein vörðungu sniðið að þeim sem eigi k vóta fyrir. Hann segir kerfið löngu h ætt að vera fiski- veiðistjórnunarkerf i og sé nú að- eins peningakerfi. „Við bentum á það fyrir löngu að s vona myndi fara. Bankarnir vinna eingöngu með stórfyrirtækjunum og vilja auðvitað tryggja sín veð og á vöxtun. Með því þjappast markaðu rinn enn frekar saman og veðsetni ng sjávarútvegs- ins eykst stöðugt,“ segir Guðjón. „Á móti skuldsetningu nni hefur afla- verðmæti útflutnin gs ekki aukist jafnhliða. Skuldirna r keyra einfald- lega uppúr öllu va ldi en verðmæt- in sitja eftir. Við þu rfum að einbeita okkur að því að vinna okkur frá þessu kerfi, annað mun einfaldlega þjappa markaðnum enn frekar sam- an og draga úr þr ótti landsbyggð- arinnar. Þetta lok ar jafnframt al- gjörlega fyrir nýliðu n í greininni og veikir sjávarbyggðir . Áður gátu dug- legir einstaklingar n áð vopnum sín- um í gegnum smáb átaútgerðina eða handfærakerfið, en það er liðin tíð. Fyrir kvóta þarf að taka lán því pen- ingarnir detta ekki af himnum ofan. Hærra kvótaverð e ykur skuldsetn- inguna og útgerða raðilinn krossar fingur yfir því að a furðaverð lækki ekki. Þróunin er stó rhættuleg.“ þriðjudagur 19. Febrúar 2008 4 Fréttir DVInnlendarFréttIrritstjorn@dv.is Skera niður rekstrarkostnað FL Group hefði þurft að fara í brunaútsölu á sínum eignum ef Baugur hefði ekki komið inn í félagið, sagði Jón Ásgeir Jóhann-esson í hádegisviðtali Stöðvar 2 í gær. Jón Ásgeir sagði að tekið yrði verulega til í rekstri FL Group og vildi meina að því hefði ver-ið komið í var um stundarsakir. Núverandi stjórnendur félagsins muni ekki sætta sig við aðra eins útreið í framtíðinni. Hann sagði að gera þyrfti betur en svo að skera niður rekstrarkostnað FL Group um 50% eins og forstjóri félagsins Jón Sigurðsson hafði látið hafa eftir sér, rekstrarkostn-aður félagsins á síðasta ári nam rúmum 6 milljörðum króna. Sektaður fyrir lyfjaakstur 43 ára karlmaður var í gær dæmdur til greiðslu 180 þúsund króna sektar fyrir að hafa ekið með leifar af kannabisefnum í blóðinu. Maðurinn var stöðvaður 7. september síðastliðinn fyrir utan veitingahúsið Hafið Bláa í Ölfusi en í blóði hans reyndist vera tetrahýdrókannabínólsýra sem er óvirkt niðurbrotsefni frá kannabis. Með fíkniefni á ferðinni Maður var handtekinn á Akureyri seinnipart sunnu-dags grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna. Uppruna-lega stöðvaði lögreglan mann-inn vegna umferðarlagabrots. Í kjölfarið kviknaði grunur um að maðurinn væri undir áhrifum lyfja. Þegar leit var gerð á mann-inum kom í ljós að hann var með nokkuð magn af fíkniefn-um meðferðis. Málið var unnið í samstarfi við lögreglumenn úr sérsveit ríkislögreglustjóra. Mað-urinn var yfirheyrður af lögreglu og síðan sleppt lausum. Keypti vörur með stolnu korti Lögreglan á höfuðborg-arsvæðinu brýnir fyrir af- greiðslufólki verslana að skoða vel myndir á bakhlið greiðslukorta og bera saman við handhafa. Tilefni þessa er að lögregl-an handtók fyrir helgina mann sem brotist hafði inn í íbúð og stolið þaðan meðal annars greiðslukorti húsráðanda. Kortið notaði viðkomandi síðan til að svíkja út vörur í verslunum. Nýlega komst upp um ungan mann sem keypt hafði vörur í einni verslun í tvígang sama dag fyrir rúmar 300 þúsund krónur. Hann lét útbúa raðgreiðslur í bæði skiptin, sem er sennilega til þess að eiga síður hættu á að fá synjun á kortið. 30 ár að borga kvóta „Ef ég væri afar hugaður mað-ur og færi í gallann til veiða þá lít-ur þannig út að ég þyrfti að veiða hvert kíló í þrjá áratugi til þess eins að borga upp kaupverðið. Það tekur óratíma að vinna kvótakaupin upp, sérstaklega í sambandi við þorsk-inn. Ýsan er skárri en það er degin-um ljósara að vonlaust er fyrir byrj-endur að kaupa kvóta,“ segir Eggert Jóhannesson, kvótamiðlari hjá Bát-um og kvóta. Kílóverð af þorskkvóta er nærri 4.000 krónur á hvert kíló. Síðast-liðið vor kostaði kílóið 3.000 krón-ur og þótti mörgum nóg um. Síðan þá hefur verðið hækkað nokkuð og ógjörningur er fyrir nýliða að kom-ast inn á markaðinn. Sé litið framhjá lántökukostnaði, vöxtum og rekstr-arkostnaði tekur það venjulegan kvótakaupanda 3 áratugi að vinna fyrir kaupunum. Það þýðir að við-komandi þyrfti að selja hvert kíló í 30 ár til þess að ná inn fyrir kaup-verði hvers kílós. Eggert staðfestir að kílóverð af þorskkvóta sé í kringum 4.000 krón-ur um þessar mundir. Kílóverðið hefur hæst farið í 4.200 krónur und-anfarið og nú er því afar hentugt að selja kvóta. „Bankarnir hafa verið mjög rólegir í að lána fyrir kvóta. Það er bara ekki lengur hægt að byrja í þessum bransa. Það var erf-itt í vor en ómögulegt í dag. Leigan á kvótanum er ekkert skárri. Leigan er erfið og kvótinn ómögulegur. Útlitið er ansi svart fyrir þá sem vilja byrja, það er eiginlega alveg vonlaust,“ segir Eggert. „Reikni bara hver fyrir sig. Síð-an er hægt að horfa líka á þetta frá hinni hliðinni. Áður fékkst afar lít- ið fyrir kvótann eða eiginlega brot af því sem nú fæst. Kílóverðið hefur þrefaldast á síðustu þremur árum. Ef menn á annað borð vilja selja er tíminn núna. Verðtindinum hefur verið náð í bili að mínu mati.“ Ógjörningur Hátt kílóverð fyrir þorskkvóta hamlar nýliðun í atvinnugreininni þar sem aðeins voldug útgerðarfyrirtæki geta keypt kvóta í dag. Rændu SaMa pitSuStað tviSvaR „Þetta virðist hafa byrjað á einhverjum stympingum,“ segi Smári Hreiðarsson, eigandi Pizz Pronto, en unglingagengi ré st tvisvar sama kvöldið inn á staðinn um síðustu helgi. Í fyrra skiptið lentu þeir í orðaskaki við marókkóska starfsmenn sem stóðu vaktina. Þá rændu þeir einnig staðinn og komust undan með einhverja peninga. Að sögn Smára var það óveruleg upphæð, í rauninni klink, eins og hann orðar það. Aðeins nokkrum klukkutímum síðar, sama kvöld, réðust piltarnir aftur inn á staðinn. Nú vopnaðir piparúða. Þeir sprautuðu eitrinu í augun á starfsmanni og lömdu annan með kókdós. Málið er í rannsókn. Átök á Pronto Það var á föstud gskvöldið sem drengirnir, sem eru á bilinu 16 ára til tvítugs, komu inn á Pizza Pronto-veitin asta inn við Ingólfstorg. Svo vi ðist vera s m eitthvert orðaskak h fi átt sér stað á illi starsm n -anna og tveg j ilta. Það rifrildi virði t hafa ndið upp á sig með þeim afl ið ngum að átök urðu inni á staðnum. Í lundroða um eigpiltar ir að h fa tekið kl nk úr pen-ingak ssa um. Síð n hlupu þ ir á br tt. Atvikið var tilkynnt til lögreglu og fékk hún greinargóða lýsingu á mönnunum tveimur. Nokkru síðar hafði lögreglan hendur í hári þeirra. Þeim var svo sleppt að yfirheyrslu lokinni. Sneru aftur Það var svo rétt fyrir miðnætti sem einn sjónarvottur sem hafði samband við DV átti leið hjá staðnum. Þegar hann kom fyrir hornið hjá Ingólfsstræti mættu honum 6–8 menn með hettur á höfðinu. „Mér sýndust þetta vera svona sex til átta strákar. Mér fannst eins og þetta væru hnakkar og er ekki frá því að þeir hafi verið svolítið neyslulegir,“ sagði sjónarvotturinn sem er á þrítugsaldri. Meisuðu Marókkóbúa A koman virðist hafa erið nokkuð ljót. Einn starfsmannanna virðist hafa fengið einhvers konar úða í augun en sjálfur segir Smári að þetta virðist ekki hafa verið piparúði. Engir peningar voru teknir í þetta skiptið – enda nýbúið að ræna staðinn. Piltarnir virðast hafa gengið berserksgang inni á staðnum, stóli var hent í rúðuna en hún brotnaði ekki. Þá var allt á rúi og stúi inni á staðnum. Lögreglan var þá aftur kölluð á svæðið og tók hún skýrslur af starfsmönnum og vitnum að atburðinum sem virðast h fa verið nokk r. Einn starfsmaðurinn var la inn með kókdós í andlitið og hlaut minniháttar skurð við eyra, að sögn Smára. Heldur st ikinu „Við höldum o kar striki,“ segir Smári en hann hef r rekið Pizza Pronto-staðinn núna í fjögur r í miðbæ Reykjavíkur. Ha n segir oft koma til stympinga í miðbæ Reykjavíkur eins og ge gur og gerist. Honum sé svo s m ekki brugðið vegna málsins, hann er b r sáttur við að ekki fó v rr. Starfsmö nunum tveimur var ftur móti brugðið en þeir fengu aðhlynningu læknis eftir atburðinn. Þeir eru hins vegar snúnir aftur til starfa og láta atvikið ekki á sig fá. „Maður sofnar alveg í kvöld. Ég held að það sé svo sem engin ástæða til þess að óttast þetta, hingað til höfum við alveg verið laus við þetta,“ segir Smári og bendir á að Reykjavík sé bara orðin stórborg. Þá megi búast við öðru eins. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið. Yfirlögregluþjónn-inn Friðrik Smári Björgvinsson segir málið á frumstigi í rannsókn. Þá grunar aftur á móti hverjir eigi hlut að máli. Hann segir það þó óljóst hversu mikið fé var tekið í fyrstu atlögunni. „Mér sýndust þetta vera svona sex til átta strákar. Mér fannst eins og þetta væru hnakkar og er ekki frá því að þeir hafi ver- ið svolítið neyslulegir.“ Smári Hreiðarsson valur grettiSSon blaðamaður skrifar: valur@dv.is Pizza Pronto rændur tvisvar af sama gengi. DV 18. ap íl 2007k óta- v r i v r svo h tt það t 20 ár að greiða l in þó al ar tekjur færu í afborga ir. DV 19. febrúar 2008 tæpu ári síðar höfðu álö urnar hækkað og þurfti þrjátíu ár til að greiða upp kvótakaupalán. 20 % afmælisafsláttur af öllum hefðbundnum myndatökum og stækkunum í október. Nú er um að gera að panta stax Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár. MYND Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði S: 565 4207 www.ljosmynd.is BrynjóLFur Þór GuðMunDsson oG jón BjarKi MaGnússon blaðamenn skrifa: jonbjarki@dv.is og brynjolfur@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.