Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Síða 8
föstudagur 3. október 20088 Fréttir
„Ef það er mat seðlabankastjóra að
væringar á milli flokka hér innanlands
muni spilla svo mikið fyrir að ástæða
sé til að tala um þjóðstjórn er ástand-
ið mjög alvarlegt.“ Þetta segir Birgir
Guðmundsson, lektor í stjórnmála-
fræði við Háskólann á Akureyri, um
þær fréttir að Davíð Oddsson seðla-
bankastjóri hafi viðrað hugmyndir
sínar um að nú kunni að vera ástæða
til að taka upp þjóðstjórn á Íslandi.
Davíð talar um þjóðstjórn
Eins og Fréttablaðið sagði frá í
gær, fimmtudag, lét Davíð orð sín um
þjóðstjórn falla á aukafundi í banka-
ráði Seðlabanka Íslands, þar sem til-
kynnt var um að þjóðnýta Glitni. Það
er ekki í eina skiptið sem Davíð viðr-
aði þessa skoðun sína í vikunni því á
ríkisstjórnarfundi á þriðjudag á hann
einnig að hafa sagt að ef einhvern
tímann hafi verið ástæða til að koma
saman þjóðstjórn hér á landi, sé það
nú. Heimildir DV herma að þögn hafi
slegið á ríkisstjórnina þegar Davíð
viðraði þessa hugmynd sína.
Stjórnarliðar ósáttir
„Ég tjái mig ekki um það sem fer
fram á ríkisstjórnarfundum og það
sama gildir um misvitur orð aðvíf-
andi gesta,“ sagði Össur Skarphéð-
insson, iðnaðarráðherra og sitjandi
leiðtogi Samfylkingarinnar, í kjölfar
þessara fregna. Hann sagði að seðla-
bankastjóri ætti að vinna með ríkis-
stjórn þegar vandi steðjaði að. „Það
er ekki hans hlutverk að hafa skoð-
anir á ríkisstjórnum eða grafa undan
þeim með gáleysislegum yfirlýsing-
um, reyna að koma réttkjörinni rík-
isstjórn frá eða vera með gáleysisleg-
ar hugmyndir um stjórnmál,“ sagði
hann í viðtali við DV.
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir, menntamálaráðherra og varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins, skamm-
aði Davíð í viðtali við Vísi í gær. „Ég
tel rétt að seðlabankastjóri einbeiti
sér að þeim ærnu verkefnum sem
Seðlabankinn þarf að takast á við en
láti stjórnmálamönnum eftir stjórn
landsins,“ sagði hún.
Þá lýsti Ágúst Ólafur Ágústsson,
varaformaður Samfylkingarinnar,
því yfir að „vangaveltur manns úti í
bæ“, eins og hann orðaði um-
mæli
Davíðs Oddssonar, hefðu enga þýð-
ingu.
Kannski ókeypis ráð
Birgir Guðmundsson er ósam-
mála Ágústi Ólafi um að þessi orð
Davíðs hefðu enga þýðingu. „Þetta
er yfirlýsing seðlabankastjóra um
að staðan í efnahagsmálum sé svo
erfið, að menn þurfi að taka hönd-
um saman,“ segir Birgir en slær þó
þann varnagla að hann viti ekki ná-
kvæmlega á hvaða forsendum hann
gefi þetta út. „Kannski var hann bara
að bjóða ríkisstjórninni ókeypis ráð,
fyrst hann var þarna,“ segir hann létt-
ur í bragði.
Róið í takt
Birgir segir að
þjóðstjórnir
séu stundum
myndaðar
þegar eitthvað sérstakt komi upp.
„Þetta gerist yfirleitt í tengslum við
styrjaldir eða vegna stórkostlegrar
kreppu eða áfalla. Þá eru skilaboðin
þau að allir þurfi að leggjast á árar og
róa í takt,“ segir hann en frumkvæð-
ið þurfa stjórnmálamennirnir sjálf-
ir að hafa. „Þetta snýst um að fá sem
flesta pólitíska aðila að ríkisstjórnar-
borðinu til að hægt sé að samhæfa
eða samstilla áherslur í erfiðum mót-
vindi,“ segir Birgir en þjóðstjórn hefur
aðeins einu sinni verið mynduð á Ís-
landi. Það var 17. apríl árið 1939 með
þátttöku Framsóknarflokks, Alþýðu-
flokks og Sjálfstæðisflokks. Ástæðan
var yfirvofandi styrjöld í Evrópu. Þá
fékk Sósíalistaflokkurinn ekki aðild
að stjórninni, einn flokka.
Þarf sameiginlegt átak
Birgir segir að allir séu sam-
mála um það að staðan á fjár-
málamörkuðum sé rosalega
erfið. Hann segir aðspurður
að nú kunni vel að vera for-
sendur til myndunar þjóð-
stjórnar. „Alveg eins já. Það
er örugglega margt vitlausara.
Það þyrfti þá að finna flöt á því
með hvaða hætti slík þjóðstjórn
ætti að starfa. Það þarf að skil-
greina hvert verkefnið er og búa
helst til yfirlýsingu um markmið
stjórnarinnar,“ segir Birgir. Hann
segir að myndun þjóðstjórnar þurfi
ekki endilega að tákna að stjórnar-
flokkarnir treysti sér ekki til að
stýra skútunni. Heldur
geti stjórnarliðar
metið það
svo að sameiginlegt átak þurfi til að
koma ástandinu í viðunandi horf.
Ekki hlutverk seðlabankastjóra
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur VG, vildi óvenju lítið tjá sig um um-
mæli Davíðs en sagði þó að hann væri
ekki fyrsti maðurinn til að viðra slíkan
möguleika. Þeir Guðni Ágústsson hafi
einnig talað um þjóðstjórnir.
„Ég veit nú ekki hversu áreiðan-
legar þessar heimildir Fréttablaðsins
eru. Þetta hljómar í mínum eyrum
eins og Davíð hafi notað þetta til að
leggja áherslu á það hversu alvarlegt
ástandið væri. Hafi viljað gefa þeim
orðum sínum aukið vægi til að fá rík-
isstjórn og aðra slíka aðila til að taka
ástandið alvarlega. Það er hins veg-
ar ekki hlutverk seðlabankastjóra að
mynda ríkisstjórnir,“ segir hann en
bætir því við að ekki sé óeðlilegt að
menn skuli velta slíkum hlutum fyrir
sér í ljósi þeirra erfiðleika sem þjóðin
stendur frammi fyrir.
Brosað að hugmynd Guðna
„Það hefur enginn úr forystu-
sveit Sjálfstæðisflokks eða Sam-
fylkingar ýjað að því að þeir líti á
þetta sem lausn vandans. Seðla-
bankastjóri hefur heldur ekki rætt
þetta svo ég hafi heyrt. Ég hef hins
vegar séð að það er vaxandi skoð-
un í atvinnulífinu, verkalýðshreyf-
ingu og bankakerfinu að þetta er
samstarfsverkefni heillar þjóðar að
fást við þann mikla vanda sem nú
blasir við,“ segir Guðni Ágústsson,
formaður Framsóknarflokksins,
um þær fregnir að Davíð Oddsson
seðlabankastjóri hafi tvívegis viðr-
að hugmyndir um þjóðstjórn í vik-
unni. Hann segist hins vegar sjálfur
hafa varpað fram slíkum hugmynd-
um fyrir ári. Þá hafi verið brosað að
hugmyndinni.
Ummæli Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra um að nú kunni að vera ástæða til að taka upp þjóðstjórn á Íslandi
fóru illa í æðstu menn Samfylkingarinnar. Varaformaður hennar sagði að ummælin hefðu enga þýðingu. Því
er stjórnmálafræðingurinn Birgir Guðmundsson ósammála. Hann segir ummæli seðlabankastjóra yfirlýsingu
um að ástandið í efnahagslífinu sé mjög slæmt. Aðeins einu sinni hefur þjóðstjórn verið mynduð á Íslandi, það
var árið 1939 vegna yfirvofandi heimsstyrjaldar.
Þjóðstjórn Davíðs
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Þetta er yfirlýsing seðlabankastjóra um að stað-
an í efnahagsmálum sé svo erfið, að menn þurfi
að taka höndum saman.“
Davíð við stýrið samfylking-
armönnum þykir ekki mikið til
hugmyndar davíðs koma.
DV mynd: Róbert
Steingrímur J. Sigfússon
segir ekki hlutverk seðlabanka-
stjóra að mynda ríkisstjórnir.
Tjáir sig ekki um „misvitur orð aðvífandi gesta“
össur skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir hlutverk
seðlabankastjóra að vinna með ríkisstjórn.
„Vangaveltur manns úti í bæ
hafa enga þýðingu“ segir Ágúst
ólafur Ágústsson, varaformaður
samfylkingarinnar.