Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Blaðsíða 28
föstudagur 3. október 200828 Umræða DV
HIN HLIÐIN
Skrifaði Davíð Oddssyni bréf
Nafn og aldur?
„Sóley Ástudóttir, 30 ára“
Atvinna?
„Förðunarmeistari,
mamma, eigandi og kenn-
ari í EMM School Of Make
Up og bráðum búðarkona
í snyrtivöru- og fatabúð á
Laugavegi 33.“
Hjúskaparstaða?
„Nýtrúlofuð“
Fjöldi barna?
„Tvö sem eru best í heimi.“
Hvaða tónleika fórst þú á
síðast?
„Tónleika með Sign, Mugi-
son sem var æði og Kiss á
Download.“
Hefur þú komist í kast við
lögin?
„Telst með að keyra pínu-
ponsu of hratt? Ég skamm-
ast mín reyndar mjög mikið
fyrir það og biðst afsökun-
ar aftur. Þar sem ég er núna
komin á annan bíl sem
kemst ekki hraðar en 80
blöskrar mér hversu hratt
aðrir keyra, ekki bara ungl-
ingarnir heldur líka allir
hinir.“
Hefur þú tekið þátt í skipu-
lögðum mótmælum?
„Mig rámar í Ísland úr Nató:
Herinn burt. Reyndar skrif-
aði ég Davíð Oddssyni bréf
sem krakki og mótmælti
byggingu nýja ráðhússins.
Var ekki ánægð með að
hann væri að taka skauta-
svellið frá mér. Hann svar-
aði mér með handskrifuðu
krúttlegu bréfi sem var með
nokkrum stafsetningarvill-
um og það var nóg fyrir mig.
Ég var, á þeim tíma, með 10 í
stafsetningu í skólanum. Ég
er klárlega til í að mótmæla
öllum sem eru að fíflast með
peningamálin í dag. Þetta
er Ísland, ekki Bold and the
Beautiful.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Að opna og taka á móti
nýjum kúnnum í búðina
um helgina, halda áfram að
kenna yndislegu nemend-
unum mínum, knúsa börnin
mín og fá „hubby“ heim úr allt
of löngu tónleikaferðalagi.“
Afrek vikunnar?
„Að leika smið með Ástu uppi
í búð.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Nei, því miður, en fikta stund-
um í hljóðfærunum heima og
þá meina ég fikta, ekki spila.
Hljóma verr en Phoebe í Fri-
ends.“
Styður þú ríkisstjórnina?
„Hvaða ríkisstjórn? Þú meinar
pappakassana? Nei, ég geri það
ekki. Það er svo margt sem ég
er ósátt við og ég vona að nýir
sterkir leiðtogar með almenna
skynsemi og stórt hjarta komi
í stað þeirra sem nú eru. Þum-
all upp til þeirra sem eru að
standa sig hvar sem þið eruð.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Ástin, börnin, að vera heil-
brigður og súkkulaði.“
Hvaða fræga einstakling myndir
þú helst vilja hitta og af hverju?
„Ég vil hitta áhugavert fólk með
dýpri pælingar sem ég get lært
af - frægt eða ekki. Það skiptir
ekki máli. Það er alveg nóg að
horfa upp til himins til að sjá
stjörnur.“
Ert þú með tattú?
„Ég er með sex tattú. Hjarta
með stöfum barnanna minna,
nokkur unglingatattú frá
Nonna tattú tímabilinu og eitt
sem er mjög sérstakt og þýðing-
armikið.“
Hverjum líkist þú mest?
„Mömmu.“
Af hverju stafar mannkyninu
mest hætta?
„Illsku og heimsku.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn
þinn?
„Þeir eru margir. Uppáhalds-
staðurinn minn er heimilið
mitt, líður best uppí rúmi með
fullan poka af nammi, góða
grínmynd í jogginggalla og
ullarsokkum, Nandos í London
sem er besti kjúklingastaður
í heimi og ógleymanlega Sví-
þjóð. Þar er sko gott að vera.“
Sóley ÁStudóttir, eigandi eMM School of Makeup, opnar uM helgina nýja
verSlun Á laugaveginuM ÁSaMt ÁStu kriStjÁnSdóttur, eiganda e-label.