Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Side 44
föstudagur 3. október 200844 Helgarblað
Frægustu
Suðurnesja-
mennirnir
Topp
15
Margir frægir suðurnesjamenn voru
tilkallaðir, til að mynda fjölmargir aðrir
úr tónlistargeiranum, en því miður þurfti
einhvers staðar að setja línuna. Magnús
og Jóhann, Jóhann g., Þóra kristín, Jón
kr., bríet sunna og öll hin – auðvitað
ættuð þið líka að vera á listanum. en þið
sleppið kannski inn næst þegar svona
listi verður tekinn saman.
Rúnar Júlíusson
og Gunnar Þórðarson
Það er eiginlega ekki hægt að gera upp á milli þessara
tveggja ljúflinga. Þeir voru hjartað og sálin í einni
vinsælustu hljómsveit Íslandsögunnar, Hljómum, og eru
gjarnan kallaðir Lennon og McCartney Íslands þar sem
Hljómar voru fyrsta íslenska bítlahljómsveitin. rúnni gat
sér einnig frægðar fyrir afrek á knattspyrnuvellinum en
hann varð Íslandsmeistari með keflavík á sjöunda
áratugnum, auk þess að vera með þáverandi fegurðar-
drottningu Íslands. gunni Þórðar er annálaður öðlingur og
framúrskarandi lagasmiður, enda höfundur laga eins og
bláu augun þín, Þitt fyrsta bros og einkennislags ungfrúr
Íslands. Í seinni tíð hefur gunnar svo sýnt hversu fjölhæft
tónskáld hann er með því að snara fram messum og
sálmum eftir pöntun.
Gunnar Eyjólfsson
einn dáðasti leikari þjóðarinnar, gunnar eyjólfsson, bjó
lengst af æskuárunum í keflavík. Hann stundaði nám við
royal academy of dramatic art í Lundúnum 1945-47 og lék
um skeið í stratford og Lundúnum. gunnar var fastráðinn
leikari við Þjóðleikhúsið frá árinu 1961 til 1996 og lék fjölda
burðarhlutverka, meðal annars titilhlutverkin í Pétri gaut,
Hamlet, fást, ödípus konungi og galdra-Lofti. Hlutverk
gunnars í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum eru líka
mýmörg, nú síðast í Mannaveiðum á rÚV og kvikmyndinni
Heiðinni sem frumsýnd var fyrr á árinu.
Guðbergur Bergsson
einn virtasti rithöfundur þjóðarinnar og af mörgum talinn
besti núlifandi íslenski rithöfundurinn. guðbergur er
fæddur og uppalinn í grindavík. uppvaxtarárum sínum
þar og áhrifum umhverfisins á listamann í mótun lýsir
hann svo listilega í skáldævisögu sinni (kom út í tveimur
bindum: faðir og móðir og dulmagn bernskunnar og eins
og steinn sem hafið fágar) að vart verður betur gert.
guðbergur hlaut enda Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir
fyrra bindið og báðar bækurnar voru tilnefndar til
bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Þetta er aðeins
brot af þeim verðlaunum og viðurkenningum sem
guðbergur hefur hlotið og bækur hans hafa verið þýddar á
fjölmörg tungumál.
Magnús Kjartansson
Maðurinn sem samdi eitt vinsælasta og besta lag sem
samið hefur verið á íslensku, Lítill drengur, sem varð
ódauðlegt í flutningi Vilhjálms Vilhjálmssonar. keflvíkingur-
inn Magnús, sem er betur þekktur sem Maggi kjartans, var
vikulegur gestur í stofum landsmanna um árabil þegar
hann var píanóleikari og stjórnandi húshljómsveitarinnar í
einum ástsælasta sjónvarpsþætti þjóðarinnar, Á tali hjá
Hemma gunn. Minna hefur farið fyrir Magga undanfarin ár,
en hann lætur þó heyra í sér við og við í fjölmiðlum undir
merkjum stefs (samtaka tónskálda og eigenda flutnings-
réttar). Þá hefur hann vitanlega verið nokkuð áberandi upp
á síðkastið í tengslum við minningartónleika um Villa Vill
sem fram fara í Laugardalshöll í næstu viku.
Ruth Reginalds
um miðjan júní 1974 kom sjö ára stelpa í keflavík að máli við
Magnús kjartansson og spurði hvort hún mætti syngja með
hljómsveitinni Júdasi sem átti að spila undir beru lofti í
bænum 17. júní. Magnúsi leist vel á það og hún söng lítið lag
um sigga sæta en hún var einmitt skotin í strák sem hét siggi,
að því er fram kemur á vef Poppminjasafns Íslands. stúlkan
stóð sig framúrskarandi vel og má segja að þetta hafi verið
upphafið að ferli frægustu barnastjörnu Íslands, keflavíkur-
fljóðsins ruth reginalds. Því miður náði hún ekki að fylgja
góðri byrjun á ferlinum eftir á fullorðinsárum, en það verður
ekki af ruth tekið að hún er full af hæfileikum.
Annþór Karlsson
einn frægasti undirheimamaður Íslands. annþór hefur mörg
undanfarin ár haft aðsetur í Vogum á Vatnleysuströnd en
samkvæmt heimildum dV er hann þó ekki borinn þar og
barnfæddur. annþór hefur margoft verið til umfjöllunar í
fjölmiðlum vegna ofbeldisverka og fíkniefnamisferlis. Þá
hefur hann einnig verið á milli tannanna á fólki vegna tengsla
sinna við menn sem hafa ýmislegt á samviskunni, nú síðast
ragnar Magnússon sem benjamín Þór Þorgrímsson lagði
hendur á fyrir framan myndavélar fréttaskýringaþáttarins
kompáss.