Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2008, Qupperneq 48
Ættfræði DVföstudagur 3. október 200848
Böðvar fæddist á Akureyri. Hann
lauk stúdentsprófi frá MA 1960, lauk
embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1966
og varð hdl. 1966.
Böðvar vann á lögfræðiskrifstofu
Þorvalds Lúðvíkssonar hrl. og við
Sparisjóð alþýðu í Reykjavík 1966-
68, var fulltrúi hjá yfirborgarfógeta
í Reykjavík 1968-71, var bæjarfógeti í
Neskaupstað 1971-77, sýslumaður í
Rangárvallasýslu 1977-85 og var lög-
reglustjóri í Reykjavík 1985-2006..
Böðvar var gjaldkeri í stjórn Dóm-
arafélags Íslands 1973-77 og 1980-81,
formaður skólanefndar Skógaskóla
1977-85, sat í stjórn Sýslumanna-
félags Íslands 1979-81 og formaður
þess 1979-80, oddviti Hvolshrepps
1982-85, varaþm. Framsóknarflokks-
ins í Suðurlandskjördæmis 1979-86
og sat í stjórn Landsvirkjunar 1981-
87.
Böðvar var sæmdur Stórstjörnu
íslensku fálkaorðunnar 1993.
Fjölskylda
Böðvar kvæntist 10.6. 1961 Gígju
Björk Haraldsdóttur, f. 13.1. 1938,
húsmóður. Foreldrar hennar voru
Haraldur Sigurðsson, f. 12.7. 1882, d.
18.10. 1963, verslunarmaður á Sauð-
árkróki, og k.h., Ólöf Sesselja Bjarna-
dóttir, f. 6.6. 1904, d. 30.5. 1984, hús-
móðir.
Börn Böðvars og Gígju: Harald-
ur Bragi, f. 4.7. 1960, d. 21.11. 1999;
Ragnhildur Ólöf, f. 25.11. 1972.
Systkini Böðvars eru Sigtryggur,
f. 30.7. 1943, verkfræðingur í Reykja-
vík, kvæntur Elísabetu Jóhannsdótt-
ur, Eiríkur, f. 7.3. 1949, d. 21.7. 1954;
Jóhann, f. 3.4. 1955, matreiðslumað-
ur í Reykjavík.
Foreldrar Böðvars voru Bragi Ei-
ríksson, f. 29.6. 1915, d. 24.4. 1999,
fyrrv. framkvæmdastjóri Samlags
skreiðarframleiðenda og aðalræðis-
maður fyrir Grikkland, og k.h., Ragn-
heiður Valgerður Sveinsdóttir, f. 13.6.
1915, d. 26.12. 1999, húsmóðir.
Ætt
Bragi var bróðir Baldurs, fyrrv.
bæjarstjóra á Ísafirði. Bragi var son-
ur Eiríks Brynjólfs, fiskmatsmanns
á Ísafirði Finnssonar. Eiríkur var
bróðir Sigríðar, móður Marsilíusar
Bernharðssonar, skipasmíðameist-
ara á Ísafirði. Móðir Eiríks var Guð-
ný Guðnadóttir, b. á Kirkjubóli í Ön-
undarfirði Jónssonar. Móðir Guðna
var Guðný Árnadóttir, b. í Dalshús-
um í Valþjófsdal Bárðarsonar, ætt-
föður Arnardalsættar Illugasonar.
Móðir Braga var Kristín Einars-
dóttir, b. á Hríshóli í Reykhólasveit
Péturssonar, dbrm. á Hríshóli, bróð-
ur Ragnheiðar, móður Gests Páls-
sonar skálds. Pétur var sonur Gests,
b. á Hríshóli, bróður Sturlaugs, lang-
afa Haraldar Böðvarssonar, útvegs-
manns á Akranesi. Gestur var sonur
Einars, dbrm. í Rauðseyjum, bróð-
ur Sigþrúðar, ömmu Snæbjarnar í
Hergilsey. Einar var sonur Ólafs, b.
á Brekku í Saurbæ Sturlaugssonar,
bróður Sveins, afa Sveins Níelsson-
ar á Staðastað, afa Sveins Björnsson-
ar forseta, og Ólafs Björnssonar, rit-
stjóra Morgunblaðsins, afa Ólafs B.
Thors, fyrrv. forseta borgarstjórnar.
Móðir Einars á Hríshóli var Ástríð-
ur Magnúsdóttir, b. á Látrum Einars-
sonar og Sigríðar Einarsdóttur, systur
Þóru, móður Matthíasar Jochums-
sonar skálds. Bróðir Sigríðar var
Guðmundur á Kvennabrekku, faðir
Theodóru Thoroddsen skáldkonu,
móður Jóns Thoroddsen skálds, og
ömmu Dags Sigurðssonar skálds
og Skúla Halldórssonar tónskálds.
Systir Theodóru var Ásthildur, móð-
ir Muggs. Móðir Kristínar var Elín,
systir Einars, afa Þorvaldar Garð-
ars Kristjánssonar, fyrrv. alþm.. Elín
var dóttir Jóhannesar, b. á Blámýr-
um Jónssonar. Móðir Jóhannesar var
Þóra Jónsdóttir, b. á Laugarbóli Bárð-
arsonar, bróður Árna í Dalshúsum.
Ragnheiður var dóttir Sveins,
kaupmanns og bæjarfulltrúa á Ak-
ureyri Sigurjónssonar, b. á Sand-
vík á Tjörnesi Árnasonar, b. á Sand-
vík Halldórssonar, b. á Fremstafelli í
Kinn Eiríkssonar. Móðir Halldórs var
Guðný Halldórsdóttir, systir Borg-
hildar, langömmu Björns, afa Stein-
gríms Steinþórssonar forsætisráð-
herra. Móðir Ragnheiðar var Jóhanna
Sigurðardóttir, b. á Sámsstöðum í
Eyjafirði, bróður Guðlaugs, afa Árna
Jónssonar, amtsbókavarðar. Bróðir
Sigurðar var einnig Jón, afi Jóns Ís-
bergs sýslumanns, föður Arngríms
Ísberg dómara. Sigurður var sonur
Jóns, b. á Gilsbakka Jónssonar, bróð-
ur Ingileifar, langömmu Valgerðar
Sverrisdóttur alþm.. Systir Jóns sam-
mæðra var Helga, langamma Bjarka
Elíassonar yfirlögregluþjóns. Móð-
ir Sigurðar var Valgerður Þórarins-
dóttir, systir Jóhönnu, ömmu Jakobs
Frímannssonar, kaupfélagsstjóra og
forseta bæjarstjórnar á Akureyri, afa
Jakobs Frímanns Magnússonar, mið-
bæjarstjóra í Reykjavík.
70 ára í dag
Böðvar Bragason
fyrrv. lögreglustjóri í Reykjavík
Ættfræði
umsjón: kjartan gunnar kjartansson kgk@dv.is
kjartan gunnar kjartansson
rekur ættir þjóðþekktra
Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp
fréttnæma viðburði liðinna ára
og minnist horfinna merkra
Íslendinga. Lesendur geta sent
inn tilkynningar um stóraf-
mæli á netfangið kgk@dv.is
Friðrik Júlíus Jónsson
fyrrv. deildarstjóri KÞ, búsettur á Akureyri
Friðrik fæddist og
ólst upp í Sandfells-
haga í Öxarfirði. Hann
var í barnaskóla að
Lundi í Öxarfirði og
í Héraðsskólanum á
Laugarvatni 1938-40.
Friðrik vann land-
búnaðar- og verka-
mannastörf, m.a. hjá
hernámsliði Breta
1942. Hann réðst til
Kaupfélags Norður-
Þingeyinga á Kópa-
skeri 1944, var fyrst bíl-
stjóri, stundaði síðan
bíla- og dráttarvélaviðgerðir og
loks verslunarstörf.
Friðrik var deildarstjóri véla-
og varahlutaverslunar Kaupfé-
lags Norður-Þingeyinga 1962-
92 og stundaði ökukennslu um
árabil.
Friðrik var formaður klúbbs-
ins Öruggur akstur um ára-
bil, starfaði í kirkjukór Snart-
arstaðarsóknar frá 1945, var
formaður sóknarnefndar um
árabil og safnaðarfulltrúi, sat í
skólanefndum Tónlistarskóla
Norður-Þingeyjarsýslu, Tón-
listarskólans á Kópaskeri og að
Lundi, og Öxarfjarðarhéraðs og
sinnti málefnum aldraðra. Þá
sat hann í hreppsnefnd Prest-
hólahrepps 1968-78 og var odd-
viti 1974-78.
Fjölskylda
Friðrik kvæntist 9.7. 1949
Önnu Guðnýju Ólafsdóttur, f.
5.12. 1930, verkakonu. Hún er
dóttir Ólafs Jónssonar, f. 21.11.
1881 á Fjöllum, Kelduhverfi, d.
19.5. 1953, bónda á Fjöllum, og
Friðnýjar Sigurbjargar Sigur-
jónsdóttur, f. 31.8. 1898 á Gras-
hóli, d. 27.5. 1999, húsmóður,
Fjöllum í Kelduhverfi.
Börn Friðriks og Önnu
Guðnýjar eru Árni Viðar Frið-
riksson, f. 20.11. 1949, fram-
kvæmdastjóri Raftákns á Akur-
eyri, kvæntur Gerði Jónsdóttur,
f. 18.11. 1950, kennara, og eiga
þau þrjú börn; Ólafur Friðriks-
son f. 5.6. 1953, rekstrarhag-
fræðingur og skrifstofustjóri
hjá landbúnaðarráðuneytinu,
búsettur í Hafnarfirði, kvænt-
ur Freyju Tryggvadóttur, f.
4.3. 1957, bankamanni hjá KB
banka og eiga þau þrjú börn;
Kristín Helga Friðriks-
dóttir, f. 26.4. 1962,
bankastarfsmaður hjá
Landsbankanum, bú-
sett í Hafnarfirði, var
gift Guðmundi Bald-
urssyni, f. 22.2. 1960,
verkstjóra, og eiga þau
þrjú börn.
Börn Árna Viðars og
Gerðar eru Jón Heiðar
Árnason, f. 4.8. 1967,
rafmagnsverkfræðing-
ur á Akureyri, kvænt-
ur Guðrúnu Þorbjörgu
Þórðardóttur, f. 29.11.
1966, og eru börn þeirra Gerð-
ur Jónsdóttir, f. 2.2. 1991, Óttar
Jónsson, f. 9.4. 1992, og Þórdís
Jónsdóttir, f. 19.3. 1997; Anna
Kolbrún Árnadóttir, f. 16.4.
1970, sjúkraliði og þroskaþjálfi
á Akureyri; Katrín Árnadóttir, f.
22.4. 1980, MA í fjölmiðlun og
starfar við undibúning að heið-
ursþátttöku Íslands í bókakaup-
stefnunni í Frankfurt 2011, bú-
sett í Þýskalandi.
Börn Ólafs og Freyju eru
Friðrik Ingi Ólafsson, f. 30.4.
1977, flugstjóri, búsettur í
Reykjanesbæ; Anna Guðný Ól-
afsdóttir, f. 16.12. 1980, kennari
í Hafnarfirði; Íris Ösp Ólafsdótt-
ir, f. 6.5. 1989, nemi.
Börn Kristínar Helgu og
Guðmundar eru Baldur Guð-
mundsson, f. 6.4. 1983, blaða-
maður á DV; Lilja Guðmunds-
dóttir, f. 20.4. 1985, háskóla- og
söngnemi; Andri Guðmunds-
son f. 22.6. 1991, nemi við
VMA.
Systkini Friðriks: Árni Jóns-
son, nú látinn, landnámsstjóri;
Hrefna Jónsdóttir, fyrrv. skrif-
stofumaður, búsett í Reykjavík;
Sigurður Jónsson, fyrrv. banka-
maður, búsettur í Reykjavík;
Ragnheiður Jónsdóttir, fyrrv.
matráðskona, búsett í Reykja-
vík; Stefán Ólafur Jónsson,
fyrrv. deildarstjóri, búsettur í
Reykjavík; Guðmunda Herborg
Jónsdóttir, nú látin, var búsett í
Danmörku.
Foreldrar Friðriks voru Jón
Sigurðsson, f. 17.12 1884, d. 1.2.
1971, bóndi í Sandfellshaga í
Öxarfirði, og k.h., Kristín Helga
Friðriksdóttir, f. 11.8. 1881, d.
2.4. 1970, húsfreyja í Sandfells-
haga.
90
ára á
sunnudag
Ásrún Sólveig Ásgeirsdóttir
húsmóðir á Stokkseyri
Ásrún fæddist í Hafn-
arfirði en ólst upp í Smá-
löndunum við Reykjavík.
Hún var í Árbæjarskóla
og Langholtsskóla og
Klébergsskóla.
Ásrún stundaði fisk-
vinnslu á Stokkseyri
með hléum og vann við
leikskóla þar.
Ásrún hefur starfaði
í Kvenfélagi Stokkseyrar
um árbil og situr í stjórn
þess.
Fjölskylda
Eiginmaður Ásrúnar er Vikt-
or Tómasson, f. 10.8. 1948, sjó-
maður og vörubílstjóri á Stokks-
eyri.
Börn Ásrúnar og Viktors eru
Áslaug Júlía Viktorsdóttir, f. 10.9.
1974, aðstoðarverslunarstjóri
hjá Bónus á Selfossi;
Sturla Símon Viktors-
son, f. 16.9. 1977, bú-
settur í Danmörku;
Ásgeir Viktorsson, f.
1.7. 1985, starfsmað-
ur hjá SG-Einingar-
húsum á Selfossi; Ey-
þór Bjarni Viktorsson,
f. 12.3. 1990, starfs-
maður hjá Hróa hetti
á Selfossi.
Foreldrar Ásrún-
ar eru Ásgeir Hall-
dórsson, f. 21.7. 1911,
d. 24.11. 1974, verkamaður
og vörubílstjóri í Reykjavík og
Hafnarfirði, og Kristrún Ósk
Kalmansdóttir, f. 23.3. 1934,
húsmóðir.
Ásrún og Viktor halda sam-
eiginlega upp á afmæli sín með
fjölskyldu sinni.
50
ára á
föstudag
DV0810023795
50 ára á föstudag
40 ára á föstudag
Gunnar Stefán Richter
slippstjóri, búsettur í Hafnarfirði
Gunnar fæddist í Reykjavík og
ólst upp í Vesturbænum í Reykja-
vík til tólf ára aldurs og síðan á Sel-
tjarnarnesi. Hann var í Melaskólan-
um og Hagaskólanum og stundaði
nám við Kvennaskólann.
Gunnar vann í Daníelsslipp við
Bakkastíginn á sumrin með skóla
frá tólf ára aldri. Hann hefur síðan
starfað við skipaviðgerðir í Daní-
elsslipp í Reykjavík og síðan á Akra-
nesi. Gunnar hóf rekstur á Daní-
elsslipp árið 2004 og hefur verið
framkvæmdastjóri slippsins síðan.
Hann hóf slippstarfsemi á Akranesi
árið 2007.
Gunnar er mikill áhugamaður
um hlaup, hefur stundað langhlaup
frá fermingaraldri, hefur tekið þátt
í tuttugu og fjórum maraþonhlaup-
um hér á landi og erlendis, ásamt
Laugavegshlaupum (Landmanna-
laugar-Þórsmörk) og 100 kílómetra
hlaupi í Lapplandi í Svíþjóð. Hann
æfir hjá Laugaskokki í Laugum.
Fjölskylda
Eiginkona Gunnars er Guð-
munda Steinunn Sigurbjörnsdóttir,
f. 14.10. 1969, framreiðslumaður og
matráður.
Börn Gunnars og Guðmundu
Steinunnar eru Gunnar Richter,
f. 14.10. 1991; Sigurbjörg Richter,
f. 8.2. 1993; Anton Richter, f. 22.7.
1997; Elín Richter, f. 30.5. 2000.
Systkini Gunnars eru Ásta Richt-
er, f. 27.3. 1961, skrifstofumaður í
Reykjavík; Daníel Richter, f. 29.2.
1964, húsasmiður í Reykjavík; Ingi-
björg Þórdís Richter, f. 19.11. 1977,
háskólanemi.
Foreldrar Gunnars eru Gunnar
Richter, f. 8.9. 1944, skipasmíða-
meistari í Reykjavík, og Gerður
Ragna Sveinsdóttir, f. 24.3. 1942,
sunddrottning.
Gunnar heldur upp á daginn á
Þjóðminjasafninu í Reykjavík, laug-
ardaginn 4.10.