Fréttablaðið - 03.12.2014, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 03.12.2014, Blaðsíða 8
3. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8 SVEITARSTJÓRNARMÁL Skorradals- hreppur leggur á lægsta útsvarið á landinu og sækja einstaklingar í að færa lögheimili sitt í hreppinn þó þeir búi ekki þar að staðaldri. Skráðir íbúar eru 58 talsins og að mati oddvita hreppsins yrði það akkur fyrir hreppinn ef hægt væri að flytja lögheimili í frístundahús í hreppnum. Útsvarshlutfallið sem Skorradals- hreppur leggur á íbúa sína er 12,44 prósent. Flest sveitarfélög leggja á hámarksútsvar sem er 14,52 pró- sent. Þetta misræmi getur þar af leiðandi búið til hvata fyrir ein- staklinga til að færa lögheimili sitt í sveitarfélagið og fá þar af leiðandi hærri laun á mánuði. Undir þetta tekur oddviti Skorradalshrepps, Árni Hjörleifsson. Fréttablaðið hefur fyrir því heim- ildir að hluti þeirra, sem eru með lögheimili í Skorradalshreppi, sé ekki með búsetu á svæðinu held- ur nýti sér lágt útsvar hreppsins. Fréttablaðið sagði í gær frá gagn- rýni á frumvarp um að afnema lág- marksútsvar sveitarfélaga og bent væri á að það gæti ýtt undir þá þróun að skattaparadísir verði til á landinu. „Hér í Skorradalshreppi eru um 60 skráðir íbúar, það er svo sem teygjanlegt hvar fólk nákvæmlega sefur,“ segir Árni Hjörleifsson „Fólk hefur verið að fá að breyta sumarbústöðum í heilsársbústað til að fá að vera með lögheimili í hreppnum, síðan á það lítið afdrep í bænum. Þetta er að verða svolít- ið ríkjandi. Við þurfum hins vegar að breyta deiliskipulagi til þess að þetta geti orðið að veruleika. Útsvarið hjá okkur er það lægsta á landinu,“ segir Árni. Þegar Árni er spurður að því hvort það sé þá akkur fyrir einstaklinga að færa lögheimili til að njóta þessara skatta segir hann svo vera. „Ég held að það hljóti að vigta eitthvað. Maður heyrir það á höfuðborgarsvæðinu að það sé betra að búa hér en ann- ars staðar. Fyrir suma skiptir þetta litlu máli en fyrir aðra sem eru með einhverjar tekjur að ráði þá vigtar þetta, annars er þetta ekki stórt mál fyrir aðra.“ Um 700 frístundahús eru í hreppn- um en lögbýlin eru mun færri. „Sumir bústaðirnir í hreppnum eru hátt í 200 fermetra hús sem eru eins og burðugustu hús í borginni. Einnig er svo lítið mál að skjótast hingað eftir að Hvalfjarðargöng voru opnuð. Fólk vill náttúrulega vera með sína búsetu hér og smá aðstöðu í bænum. Ég reikna með að hreppsnefndin muni taka þetta alvarlega til skoðunar, að breyta skipulagi hreppsins til að gera fólki kleift að vera með heilsársbúsetu hér í hreppnum.“ sveinn@frettabladid.is Flytja lögheimili og greiða lægri skatta Skorradalshreppur leggur á lægsta útsvar á landinu. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að einstaklingar séu með lögheimili í hreppnum en búi á höfuðborgarsvæðinu og njóti þannig lægri skatta. Oddviti hreppsins segir muna um þetta ef launin eru há. FRÁ SKORRADAL Skorradalshreppur leggur á það lágt útsvar að einstaklingar vilja nýta sér það til að njóta lægri skatta en gengur og gerist annars staðar. FRÉTTABLAÐIÐ/JSE Fyrir suma skiptir þetta litlu máli en fyrir aðra sem eru með einhverjar tekjur að ráði þá vigtar þetta, annars er þetta ekki stórt mál fyrir aðra. Árni Hjörleifsson, oddviti Skorradalshrepps. SKIPULAGSMÁL Nothæfisstuðull Reykjavíkurflugvallar án flug- brautar 06/24, sem oft er kölluð „neyðarbrautin“, væri 97,0 pró- sent samkvæmt annarri tveggja skýrslna sem Verkfræðistofan EFLA vann fyrir Isavia. Þetta er hærra hlutfall en áður var talið. Mikið hefur verið deilt um gildi neyðarbrautarinnar að undan- förnu vegna byggingaráforma Reykjavíkurborgar á Hlíðarenda- svæðinu, sem gætu haft í för með sér að loka þyrfti brautinni. Ótt- ast sumir að öryggi sjúkraflugs til vallarins yrði skert, væri braut- inni lokað. Í nýju skýrslunum, sem Isavia óskaði eftir í kjölfar athuga- semda Samgöngustofu við áhættumat Isavia, kemur hins vegar fram að nothæfisstuðull Reykjavíkurflugvallar stenst áfram alþjóðlegar kröfur án neyðarbrautarinnar. Nothæfis- stuðull vallarins er nú 99,4 prósent en Alþjóðaflugmála- stofnunin (ICAO) miðar við að nothæfisstuðull flugvalla fari ekki undir 95 prósent. Fréttablaðið greindi frá því í síð- asta mánuði að lendingar á neyðar- brautinni síðastliðin sjö ár næmu aðeins 0,62 prósentum allra lend- inga á Reykjavíkurflugvelli. Í tilkynningu frá Isavia eru nýju skýrslurnar sagðar þær umfangs- mestu sem gerðar hafa verið um notkun Reykjavíkurflugvallar. Notuð hafi verið umfangsmeiri og nákvæmari gögn en í fyrri skýrslum. - bá Ný skýrsla sýnir að nothæfisstuðull Reykjavíkurflugvallar væri 97% þótt flugbraut 06/24 væri lokað: Stæðist áfram kröfur án neyðarbrautar REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR Mikið hefur verið deilt um gildi neyðar- brautarinnar svokölluðu að undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM STJÓRNMÁL „Bæjarráð telur engin rök liggja til þess að íslenska ríkið kaupi upp jarðir í óljósum tilgangi,“ segir bæjarráð Fljóts- dalshéraðs í umsögn þingsálykt- unartillögu Vinstri grænna um kaup ríkisins á Grímsstöðum á Fjöllum. Eins og kunnugt er hefur kín- verski auðmaðurinn Huang Nubo áformað að kaupa eða leigja Grímsstaði og byggja þar ferða- mannastað. - gar Kaup á Grímsstöðum: Óljós tilgangur og engin rök
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.