Fréttablaðið - 03.12.2014, Side 12

Fréttablaðið - 03.12.2014, Side 12
3. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR „Umræðan um að stöðva jarðvegs- eyðinguna og að græða upp örfoka land hvarf í virkjanadeilurnar, sem yfirskyggðu þetta dapra ástand landsins. Það er reyndar staðan enn í dag,“ segir Sveinn Runólfs- son landgræðslustjóri, spurður hverju það sæti að eitt stærsta umhverfismál þjóðarinnar hefur nær alveg fallið út úr þjóðfélags- umræðunni. Hann staðfestir að á síðasta áratug hafi tekist að halda í horfinu – en það sé frekar hag- stæðum veðurskilyrðum að þakka en mannanna verkum. „Landsmenn skulda íslenskri náttúru að stöðva jarðvegseyðinguna og endurheimta horfna landkosti. Við höfum líka undirritað ótal alþjóðlega samninga á þessu sviði og verðum að standa við þá.” Milljón hektarar Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur ákveðið að hefja vinnu við frumvarp að nýjum lögum um land- græðslu. Núgildandi lög voru stað- fest í apríl 1965, og því löngu tíma- bært að endur skoða þau. Miðað er við að frumvarp til nýrra laga verði lagt fyrir næsta haustþing. Eins og landgræðslustjóri bendir á er það löngu tímabært. Sveinn segir, þrátt fyrir að gróð- urfar á láglendi hafi styrkst með betri tíð, að ekki verði litið framhjá því að heildarúttekt Landgræðsl- unnar á gróðurfari landsins, svo- kallaðar héraðsáætlanir, sýni að græða þyrfti upp rúma milljón hektara lands [10.000 ferkílómetra] neðan 500 metra hæðarlínunnar, en almennt er ekki hugsað um land- græðslu ofan þeirrar línu. „Af þessari milljón er mjög brýnt að ráðast í að græða 500.000 hekt- ara, en árlega höfum við Íslending- ar verið að vinna í landgræðslu á um 12.500 hekturum lands, og er þá allt talið. Þetta er grófa staðan í dag, og hvort það er jöfnuður í því sem grætt er upp og eyðist árlega vitum við hreinlega ekki. En við höfum sagt að í þessu góða tíðar- fari þá séum við með vinninginn á móti eyðingaröflunum. Það þarf hins vegar ekki að kólna mikið aftur til þess að sú staða snúist við, og því verðum við að vinna hrað- ar og vinna okkur í haginn,“ segir Sveinn og bætir við að ef aðstæð- ur eins og voru á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar endurtaki sig þá „færum við verulega hallloka í þeirri baráttu. Við verðum því að leggjast mun þyngra á árarnar ef við eigum að vinna upp það sem glatast hefur á síðustu öldum.“ Niðurskurður og markmið Sveinn bindur miklar vonir við yfir- lýst áform ráðherra, sem í frum- varpi til fjárlaga fékk fjármagn til að hefja aðgerðir í loftslagsmálum; draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda og binda kolefni með land- græðslu og skógrækt. Þetta er í samræmi við stjórnarsáttmála rík- isstjórnarinnar þar sem segir að Ísland hafi sérstöðu í umhverfis- málum í krafti ósnortinnar náttúru og sjálfbærrar nýtingar endurnýj- anlegra auðlinda. Sú ímynd sé auð- lind í sjálfri sér og „unnið verður að því að styrkja þá ímynd og grund- völl hennar, að vernda íslenska nátt- úru og efla landgræðslu og skóg- rækt þar sem það á við“. Sveinn segir að sterkt sé til orða tekið í stjórnarsáttmálanum og hann verði var við að ráðherra vilji standa við þau orð, og hafi hljómgrunn til þess. Engu að síður, og þvert á þetta yfirlýsta markmið, er það stað- reynd að framlög til Landgræðsl- unnar eru skert í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar um aðhald í ríkisfjármálum. Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is Græða þyrfti upp meira en milljón hektara landsvæði Hagstætt veðurfar undanfarinna ára ræður því að jarðvegseyðingu er haldið í skefjum. Vinna við endurheimt gróðurlendis er hins vegar í mýflugumynd. Yfir milljón hektara lands utan hálendisins þarf að klæða að nýju. Af þessari milljón er mjög brýnt að ráðast í að græða 500.000 hektara, en árlega höfum við Íslendingar verið að vinna í landgræðslu á um 12.500 hekturum lands, og er þá allt talið. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri. Frumvarpsvinnan sem framundan er byggist m.a. á vinnu nefndar sem starfaði á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og skilaði greinargerð í júní 2012; Tillögur að inntaki nýrra laga um landgræðslu. ● Í greinargerðinni er m.a. lagt til að tilgangur laganna skuli vera „að vernda, endurheimta og auka þær auðlindir þjóðarinnar sem fólgnar eru í jarðvegi og gróðri landsins og stuðla að sjálfbærri vernd og nýtingu þeirra. Jafnframt að vistkerfi landsins geti veitt samfélaginu fjölbreytta þjónustu.“ ● Við lestur greinargerðarinnar kemur í ljós hversu risavaxið verkefnið er. Þar er vitnað til heildarúttektar á jarðvegsrofi á Íslandi sem lauk árið 1997. Niðurstöður hennar sýndu umtalsvert eða alvarlegt jarðvegsrof á 40% landsins, eða 52% landsins þegar hæstu fjöll, jöklar, ár og vötn eru undanskilin. ● Sveinn segir að þessi staða sé óbreytt frá þeim tíma, en í greinargerðinni segir einnig að líklegt sé að um helmingur þeirrar gróðurhulu sem hér var um landnám hafi glatast. „Samsetning þess gróðurs sem eftir stendur einkennist mjög af landhnignun, með mikilli útbreiðslu tegunda sem verjast vel búfjárbeit eða einkenna röskuð svæði,“ segir þar. ● Samkvæmt gögnum Nytjalands, gagnagrunns Landbúnaðarháskóla Ís- lands, má áætla að umfang þessarar landhnignunar gæti verið meira en 30.000 ferkílómetrar, sem þýðir að um 30% landsins eru fokin á haf út. ● Allt frá landnámi hefur búfjárbeit, í samspili við veðurfarssveiflur og tíð eldgos, verið megináhrifavaldur um ástand vistkerfa hér á landi. Beitin hefur m.a. haft mikil áhrif á tegundasamsetningu gróðurs, viðnám gegn áföllum og getu vistkerfa til að endurnýja sig eftir náttúruleg áföll. Bú- fjárbeit telst sjálfbær ef hvorki er gengið á gróður né jarðveg, heldur sé vistkerfið í jafnvægi eða framför. ➜ Þriðjungur landsins er fokinn á haf út JARÐVEGSROF ER STAÐREYND Á 40% LANDS 37% 23% 11% 6% 23% Ekkert/lítið rof Mikið rof Mjög mikið rof Jöklar, vötn og fjöllTalsvert rof M YN D /LAN D G RÆ Ð SLAN ROFABARÐ Myndin er tekin í austurafrétti í Mývatnssveit, en það er Andrés Arnalds, fagmála- stjóri Landgræðslunnar, sem hér rennir sér fót- skriðu niður barðið sem er skólabókardæmi um stöðuna víða um land. Sól sumar & skíði Alicante Frá kr. 14.990 Barcelona Frá kr. 14.900 Bodrum Frá kr. 29.990 Bologna Frá kr. 19.990 Krít Frá kr. 29.990 Las Palmas Frá kr. 24.900 Malaga Frá kr. 19.900 Mallorca Frá kr. 24.990 Salzburg Frá kr. 14.990 Tenerife Frá kr. 19.990 Flugsæti Aðra leið m/sköttum á primeraair.com | FRÉTTASKÝRING | 12 JARÐEYÐING: HIÐ GLEYMDA UMHVERFISVERNDARMÁL

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.