Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2009, Qupperneq 3

Náttúrufræðingurinn - 2009, Qupperneq 3
87 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags breytinga sem hafa ekki áhrif á hæfni einstaklinganna. Munurinn á milli tveggja einstaklinga sömu tegundar kann að virðast smávægi- legur, en með hliðsjón af óralengd jarðsögunnar, ár fram af ári, árþús- und fram af árþúsundi, er augljóst hvernig þróunin hefur mótað hinar fjölbreytilegustu lífverur sem finnast á jörðinni. Í hverri kynslóð breytist samsetning arfgerða og svipgerða í stofnum lífvera. Þeir þróast sífellt og það á jafnt við um bakteríur sem valda sýkingum, þorska í hafinu og birkiplöntur á Skeiðarársandi. Hér á landi var haldið upp á hið tvöfalda afmæli með málþingi á afmælisdegi Darwins sjálfs, þann 12. febrúar, og síðan fyrirlestraröð sem hófst nú á haustmánuðum. Í samstarfi við Samlíf – Samtök líffræðikennara, Hið íslenska nátt- úrufræðifélag og Hið íslenska bók- menntafélag var efnt til ritgerðasam- keppni meðal framhaldsskólanema undir fyrirsögninni „Darwin og áhrif þróunarkenningar hans á vís- indi og samfélög“ – í tengslum við málþingið í febrúar – og voru veitt verðlaun fyrir þrjár bestu ritgerð- irnar. Kári Gautason, nemandi við Menntaskólann á Akureyri, vann fyrstu verðlaun og tveir nemar frá Menntaskólanum að Laugar- vatni, Sævar Ingi Sigurjónsson og Silja Elvarsdóttir, hlutu önnur og þriðju verðlaun. Það er sérstaklega ánægjulegt að ritstjórn Náttúrufræð- ingsins skuli sjá sér fært að birta ritgerð Kára. Hún er skemmtilega yfirgripsmikil og skrifuð af þrótti. Vonandi verður hún hvatning fyrir Kára og annað ungt og pennafært fólk með ástríðu og tilfinningu fyrir vísindum. Nú í ár er minnst merkra tímamóta í sögu líffræðinnar víða um heim. Tvær aldir eru liðnar frá fæðingu Charles Darwin (1809–1882) og 24. nóvember verða 150 ár liðin frá útgáfu tímamótarits hans Upp- runa tegundanna. Hugmyndin um þróun vegna náttúrulegs vals var fyrst kynnt árið 1858, þegar grein- ar Alfreds Wallace (1823–1913) og Darwins voru lesnar á fundi Linné- félagsins í London. Þróunarkenn- ingin hlaut þó fyrst hljómgrunn þeg- ar Uppruni tegundanna kom út, enda var þar á ferðinni skýr og vel rök- studdur texti. Í bókinni dró Darwin saman athuganir sínar og þekkingu af mörgum sviðum líffræði og jarð- fræði og setti fram heilsteypta sýn á þróun lífvera. Kenning Darwins er reist á tveimur meginstoðum; að allar lífverur hafi aðgreinst hver frá annarri í tímans rás og að lífverur hafi aðlagast umhverfi sínu vegna náttúrulegs vals. Náttúrulegt val verður vegna þess að einstakling- ar í stofni tegunda eru breytilegir, sá breytileiki er að einhverju leyti arfbundinn, þ.e. afkvæmi líkjast for- eldrum sínum, og breytileikinn leið- ir af sér mismunandi frjósemi eða lífslíkur einstaklinganna. Af þessu þrennu leiðir að ákveðnar gerðir verða algengari en aðrar og tegundir breytast. Darwin og Wallace gerðu sér grein fyrir því að lífverur þurfa að berjast fyrir lífinu, fleiri einstak- lingar fæðast en geta mögulega lifað af og af því leiðir að þær gerðir sem eru hæfari við tilteknar umhverfis- aðstæður lifa frekar af en vanhæfari gerðir. Kynslóð fram af kynslóð mun samsetning stofnsins breytast, algerlega náttúrlega vegna valsins og einnig vegna tilviljunarkenndra Lokahnykkur Darwin-daganna 2009 er fyrirlestraröð um þróun lífsins sem hófst þann 29. ágúst og stendur til 12. desember. Fyrst ræddi Montgomery Slatkin um erfðamengi Neanderdalsmannsins. Næst héldu Peter og Rosemary Grant erindi um finkur Darwins og rannsóknir þeirra á vistfræði og þróun finkustofna á Galapagos- eyjaklasanum. Rannsóknir þeirra spanna rúmlega 30 ára tímabil og hafa þau orðið vitni að miklum breytingum á lögun nefja finkanna, sem er til marks um breytingar í fæðuframboði. Tveir aðrir erlendir gestir munu halda erindi, Joe Cain um kenningu Darwins 31. október og Linda Partridge um tengsl öldr- unar og þróunar 28. nóvember. Að auki verða sjö erindi á íslensku, sem fjalla m.a. um uppruna lífs, stein- gervingasöguna, þróun vegna fisk- veiða og ráðgátuna um kynæxlun. Við viljum vekja sérstaka athygli á erindi Hrefnu Sigurjónsdóttur og Sigurðar S. Snorrasonar þann 7. nóvember um þróun atferlis. Það erindi er einnig hluti af líffræðiráð- stefnunni 2009, sem fram fer 6. og 7. nóvember. Mörg erindi á þeirri ráð- stefnu gætu verið áhugaverð fyrir lesendur Náttúrufræðingsins. Nán- ari upplýsingar um fyrirlestraröð- ina má finna á vefslóðinni darwin. hi.is og um líffræðiráðstefnuna á biologia.hi.is. Aðstandendur Darwin-daga 2009 Arnar Pálsson Hafdís Hanna Ægisdóttir Snæbjörn Pálsson Steindór J. Erlingsson Bjarni Kristófer Kristjánsson Dagar Darwins, aldir og árþúsundir 78 3-4 LOKA.indd 87 11/3/09 8:32:36 AM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.