Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 11
95
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
henni talin alls 2.392 sýni. Hún hefur
verið færð inn í sérstaka færslubók,
og er ekki að sjá að við skrána
hafi verið bætt eftir að Þorvaldur
vann að henni.a Þar eru 748 sýni
merkt Jónasi Hallgrímssyni og 408
merkt Japetusi Steenstrup, alls 1.156
sýni. Þessi steinasöfn urðu hluti af
vísindasafni stofnunarinnar, þeim
hluta er nú nefnist Regional samling.
Þess er getið fremst í færslubókinni
að íslensku steinasöfnin hafi verið
grisjuð verulega 1910. Þá hefur
tæpum helmingi steinasafns Jón-
asar og Steenstrups því miður verið
fleygt, ennfremur öllu steinasafni E.
Roberts úr Gaimard-leiðöngrunum
1835 og 1836, 254 steinasýnum, og
til að mynda steinasýnum frá J. C.
Schythe og Sartorius von Walters-
hausen.17
Kunnugt er að Magnús Grímsson,
síðar prestur að Mosfelli neðan heið-
ar, sendi steinasafn til Kaupmanna-
hafnar, líklega 1849.26,32 Magnús
sendi safnið til Japetusar Steenst-
rup og bað hann að yfirfara grein-
ingu á sýnunum. Meginhluti þessa
safns, 150 sýni, hefur síðar verið
sameinaður íslenska steinasafninu;
Þorvaldur Thoroddsen hefur talið
það vera frá Jónasi Hallgrímssyni
komið og skráð það undir nafni
hans í færslubókinni. Steinasýnin frá
Magnúsi eru hins vegar auðþekkt
og merkimiðarnir greinilega með
annarri rithendi en Jónasar. Ekki
eru vísbendingar um að sýni frá
öðrum söfnurum hafi verið merkt
Jónasi. Allt bendir því til þess að 598
sýni í færslubókinni séu frá Jónasi
komin, 150 frá Magnúsi Grímssyni
og 408 frá Japetusi Steenstrup, sjá
1. töflu. Flestum sýnum sem merkt
eru Steenstrup hefur hann safnað
þegar Jónas var með í för, og um 35
þeirra hefur hann safnað einn á ferð,
haustið 1839 og vorið 1840.
Í steinasafni Jónasar og Steen-
strups sem nú er í Geologisk Mu-
seum hafa varðveist upprunaleg
númer færslubókarinnar. Þar sést
því hver hefur safnað sýnunum. Í
steinasafninu eru nú 308 sýni frá
Jónasi, 206 frá Steenstrup og 94 frá
Magnúsi Grímssyni (1. tafla). Steina-
sýnin eru flest óreglulega tilhöggvin
og eru allt að 18 cm á breidd. Þetta
steinasafn er enn í dag í Geologisk
Museum skráð sem ‘J. Steenstrup
og J. Hallgrimsen’s samling’ og er
varðveitt sér. Bæði steinaskráin í
færslubókinni og gamli listinn yfir
steinasafnið í Geologisk Museum
eru birt í heild sinni í Fjölriti Nátt-
úrufræðistofnunar 53.17
Erfitt er að segja til um hve mikið
steinasafn þeirra Jónasar, Steen-
strups og Magnúsar hefur verið
notað. Grisjunin 1910 bendir til þess
að þá hafi safnið ekki lengur verið
talið þýðingarmikið. Þó verður að
telja líklegt að þeir sem lögðu í
hina fjölmörgu jarðfræðileiðangra
frá Danmörku til Íslands á 19. öld
og fyrri hluta 20. aldar hafi skoðað
safnið áður en af stað var farið.
Safnandi Fjöldi sýna 1878 Fjöldi sýna eftir 1910
Jónas Hallgrímsson 598 308
Japetus Steenstrup 408 206
Magnús Grímsson 150 94
Alls 1.156 608
1. tafla. Steinasafn Jónasar Hallgrímssonar, Japetusar Steenstrup og Magnúsar Grímssonar,
Geologisk Museum, Kaupmannahöfn. Fjöldi sýna fyrir og eftir grisjun safnsins 1910.
2. tafla. Texti merkimiða við steinasafn Jónasar Hallgrímssonar í Geologisk Museum í
Kaupmannahöfn, sýnishorn. Allir miðarnir eru taldir vera með rithendi Jónasar. Miðarnir
eru sýndir 4. mynd. Texti er stafréttur en yfirstrikuðum númerum er sleppt. Tegundarheiti
er haft innan hornklofa þegar Jónas getur þess ekki. Fundarárs sýnis er getið innan horn-
klofa þar sem það vantar. Við hvert sýni er aftast getið skrásetningarnúmers í steinasafni
Geologisk Museum.
1. [Prentmiði:] [Basalt.] Island Hrafntinnuhriggur nyere Klóftlava
bedækkende Obsidianlaget. [Merkimiði:] fra Hrafntinnuhriggur, en
Lavaklippe óverst oppe nordenfor Hrafntinnuskarð, umiddelbart oven-
for et fast horizontalt Lag Obsidian af 1/4 Al. Mægtighed. [1839] 997.
2. [Gosaska.] Fra Törvegravene ved Illugastaðir, Fnjóskadalen. Et Lag
4 a 6 Tm. mægtigt ca. 3/4 Alen under den överste Torv (den underlig-
gende Torv 3 a 4 Alen) (kaldes Almindelig "Sandfall"). [1839] 901.
3. [Basalt.] Garðahraun 24/6 41. JHlg. 296 A.
4. A1. Dolerit (nyere Klöftlava) "Kaldadal, Lángahrigg", tilhórende
"Ok"-strómmene paa Grændsen af den sydóstl. Tuffformation. NB:
Det lavkuplede men meget höitliggende "OK", = oksjökull, har frem-
bragt en utrolig Mængde Dolerit og det endda rundkrateragtig,
analog med den moderne Lava. [1841] 615.
5. Et halvforstenet (af Kiselvand indpregneret) Surturbrandslag i en
Brungulagtig Tuffbreccie dækket af Basalter - en Dolerit-Kam kaldet
"Kastali" strax søndenfor Norderaaen og lige ved Prestegaarden
Stafholt. 28/7 41. J[Hlg.] Surturbr.laget gaar endog under Aaleiet i
den dybe Dalbund. 1137.
a Þessi færslubók virðist hafa glatast 1975 og hefur síðan verið notast við gallað ljósrit af henni.
78 3-4 LOKA.indd 95 11/3/09 8:32:46 AM