Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 12

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 12
Náttúrufræðingurinn 96 Merkimiðar steinasafnsins Telja má víst að rithönd Jónasar sjálfs sé á allflestum ef ekki öllum merki- miðum steinasafns hans í Geologisk Museum. Þær upplýsingar sem þar er að finna eru því beint frá Jónasi komnar. Megintexti merkimiðanna er á dönsku, en staðarnöfn eru oft- ast skrifuð að íslenskum hætti og eru þau þá með Fjölnisstafsetningu, sem fólst meðal annars í því að nota ekki ypsilon. Þetta var ‘einka- stafsetning’ Fjölnismanna sem þeir aðhylltust á árunum 1836–1844.33 Danskar myndir eru stundum á staðarnöfnum; Jónas skrifar þá til að mynda Østerdalen eða Öxnadalen; sýsluheiti eru nær alltaf með þeim sérstaka hætti Jónasar upp á dönsku að hann ritar til að mynda Øefjord- Syssel og GuldbringeSyssel. Texti merkimiðanna í Geologisk Museum er misjafnlega ítarlegur. Á 12 miðum eru miklar upplýsingar um staðhætti eða jarðlag sem sýnið er tekið úr, og oftast fylgir dagsetn- ing sýnatöku. Á 107 miðum eru góð- ar upplýsingar um jarðmyndunina þótt staðsetning sé yfirleitt stutt- araleg. Helmingur þessara miða hefur dagsetningu. Aðrir miðar veita aðeins upplýsingar um staðsetningu sýnisins, og í sumum tilvikum er dagsetningar getið. Merkimiðarnir bera með sér að upplýsingarnar eru skráðar meðan á ferð stendur eða fljótlega eftir það. Sýnishorn af hin- um ýmsu gerðum merkimiðanna eru á 4. mynd. Í 2. töflu er stafréttur texti merkimiðanna sem sýndir eru í 4. mynd ásamt skýringum. Fjölmörg jarðfræðiheiti eru skráð á merkimiðum steinasafns Jónasar og þeim merkimiðum Steenstrups sem hann hefur fyllt út í för með Jónasi. Þau er þó öll að finna í dagbókum, minnisgreinum eða bréfum Jónasar nema heitin (rituð að íslenskum hætti): analsím, hvera- leir og steinbrandur. Steindaheiti í prentuðum ritum Jónasar1,2 eru alls 26 (rituð að íslenskum hætti): apó- phyllít, ágít, brennisteinn, christianít (= anorthít), epistilbít, feldspat, gifs, heulandít, hvítkvars, jaspis, járn- oxíð (= magnetít), kabasít, kalkspat, kalsedon, kísilhrúður, kvars, labra- dor, leucít, mesótýp (= þráðlaga zeólít), óligóklas, ólivín (= peridót), ópall, rýakólít (= sanidín), stilbít, títanjárn (= ilmenít), zeólít. Þetta eru flest þau steindaheiti sem fyrir koma um þetta leyti í ritum jarðfræðinga sem fjölluðu um Ísland.14,15,34,35 Þó vantar þarna örfáar tegundir, til að mynda analsím, en það kemur fyrir á einum merkimiða í steinasafninu í Kaupmannahöfn eins og að framan greinir. Bergtegundaheiti í þessum ritum Jónasar eru 18 en almenn jarð- fræðiheiti 68. Ef frá er talið bergteg- undarheitið trakýt, sem kemur fyrir á sýnalista frá Vestmannaeyjum frá júní 1837,1 virðast allar greiningar réttar. Þetta eitt og sér sýnir að Jónas hefur verið mjög vel að sér í fræð- unum og afar glöggur að greina steindir, berg og jarðmyndanir að þeirra tíma hætti. Jarðfræðiheitin ‘Vandlava’ og ‘Dyndlava’, það er vatnshraun og leðjuhraun, koma fyrir á fjórum merkimiðum steinasafnsins í Kaup- mannahöfn (2. tafla). Hið fyrrnefnda kemur einnig fyrir á einum miða í safninu í Reykjavík þar sem Jónas notar á íslensku orðið hellugrjót fyrir ‘Vandlava’ (3. tafla) án þess að skýra það nánar. Ennfremur er þessi heiti að finna nokkuð víða í dagbókum og bréfum Jónasar frá árunum 1841–1842. Steenstrup notar einnig þessi heiti í bréfum til Jónasar, en án frekari skýringa. Þau bergsýni í steinasöfnunum tveimur sem merkt eru ‘Vandlava’ eða ‘Dyndlava’ eru ýmiss konar basalt eða andesít sem eiga lítið sem ekkert sameiginlegt. Skýringar á þessum heitum er því að leita í jarðlögunum eða uppbyggingu fjallanna. Af dagbókarfærslum Jón- asar 1842 sést að hann telur að heil fjöll, einkum víða á svæðinu frá Hornafirði til Eskifjarðar og einnig til að mynda Hafnarfjall í Borgarfirði, séu byggð upp af þessum hraun- um með setlögum á milli. Jónas virðist því hafa notað þessi heiti um lagasyrpur frá fyrstu tveimur jarðmyndunartímabilunum (sjá bls. 103–104) þar sem reglulega skipt- ust á hraun og millilög af setbergi. Þessi túlkun Jónasar og Steenstrups var í samræmi við ríkjandi skoðun á þeim tíma, þ.e. að elstu myndanir landsins hefðu myndast við gos á sléttum hafsbotni.10,11 STEINASAFNIÐ Í MENNTA- SKÓLANUM Í REYKJAVÍK Saga steinasafnsins Árið 1971 fékk Náttúrufræðistofnun Íslands til varðveislu 377 gömul steinasýni frá Menntaskólanum í Reykjavík.26,36 Í þessu steinasafni eru 18 sýni sem telja má með vissu að Jónas Hallgrímsson hafi safnað. Ekki er útilokað að fleiri sýni séu frá honum runnin, en úr því verð- ur vart skorið héðan af. Þessum sýnishornum var safnað á árun- um 1839–1841. Steinasýnin eru flest frekar óreglulega tilhöggvin og eru allt að 10 cm á breidd. Augljóst er að sýni hafa að einhverju marki víxlast í öskjum. Steinasýni merkt NI 5560 og 5561 eru þannig ekki á réttum stað miðað við upplýsingar á merkimiðunum. Þess ber að gæta að sýnin hafa verið notuð til kennslu í Menntaskólanum (Reykjavíkurskóla, 5. mynd) um langa hríð, hugsanlega allt að því eina öld. Engin áhersla hefur því verið lögð á að rannsaka sýnin sjálf, enda hafa flest þeirra lítið fræðilegt gildi nú. Merkimiðar steinasýnanna segja hins vegar sína sögu, einkum þeir sem Jónas hefur sjálfur ritað. Níu steinasýnum fylgja miðar sem eru örugglega með rithendi Jónasar, og þremur sýnum til við- bótar fylgja miðar með hendi Jón- asar án þess að sýnin séu merkt honum. Fjögur steinasýni eru merkt Jónasi þótt miðar séu líklega ekki með hendi hans. Við þessa flokkun merkimiðanna naut ég árið 1984 leiðsagnar Gríms M. Helgasonar (heitins) bókavarðar. Nýlega fór svo Aðalgeir Kristjánsson skjalavörður aftur yfir merkimiðana og staðfesti fyrri flokkun. Skrá yfir þau sýni þar sem telja má víst að merkimiðar séu með hendi Jónasar, eða eru merktir honum, er að finna í 3. töflu. Tveimur tvítökum sýna er sleppt. Þá 12 merkimiða steinasýnanna sem 78 3-4 LOKA.indd 96 11/3/09 8:32:46 AM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.