Náttúrufræðingurinn - 2009, Side 13
97
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Jónas hefur skilið eftir sig í
Reykjavík steinasafn og hugsanlega
einnig safn annarra náttúrugripa
þegar hann fór aftur til Kaupmanna-
hafnar haustið 1842. Í Kaupmanna-
höfn er Jónas áfram með hugann
við náttúrugripasafn í Reykjavík. Í
bréfi til Jóns Sigurðssonar forseta
Bókmenntafélagsins 15. mars 1844
ræðir hann1 til að mynda um áhuga
sinn á að komast að sem kennari
við hinn væntanlega Reykjavíkur
lærða skóla „og koma jafnframt á
stofn náttúrusafni við skólann, sem
enginn myndi eiga hægra með en
ég“. Þessi vísir að íslensku nátt-
úrugripasafni hefur líklega verið
fluttur úr ‘svartholinu’ í Reykjavík-
urskóla þegar hann var tekinn í
notkun 1846 eða fljótlega eftir það.36
Skólaárið 1848–1849 er steinasafnið
komið þar í notkun.38 Ekki kemur
neins staðar fram hversu stórt þetta
safn hefur upprunalega verið, en
ekki er ólíklegt að það hafi verið
allmiklu stærra en það sem nú er
varðveitt.
Þorvaldur Thoroddsen jarðfræð-
ingur kenndi við Menntaskólann
í Reykjavík á árunum 1885–1895.
Honum var umhugað um að koma
náttúrugripasafni skólans í við-
unandi horf.39 Árið 1887 útvegaði
Þorvaldur safninu fjárstyrk, og á
árunum 1888–1891 gekk hann end-
anlega frá safninu. Þorvaldur segir
að þetta hafi verið „hið fyrsta nátt-
úrugripasafn á Íslandi, sem hægt
var að sýna og nota“. Matthías
Þórðarson segir í ævisögu Jónasar:4
„Af hinu upphaflega safni Jónasar
eru enn [þ.e. 1936] til í skólasafn-
inu allmörg sýnishorn af íslenzk-
um bergtegundum o.fl. frá ferðum
hans á árunum 1839–41, og fylgja
enn miðar hans með þeim, með
greinargerð um tegund og hvar
og hve nær hann hafi tekið hvert
sýnishorn.“ Um 1950 vissu sumir
nemendur Menntaskólans um þetta
steinasafn Jónasar Hallgrímssonar,
en þá var það ekki notað við jarð-
fræðikennsluna.
Þetta steinasafn Jónasar hefur
verið kjarni kennslusafns Mennta-
skólans í Reykjavík, og það hefur
líklega verið notað ásamt öðrum
sýnum við kennslu um áratugi. Það
er meira um vert að kennslusafnið
var í raun fyrsti vísir að íslensku
náttúrugripasafni sem hægt var
að sýna í Reykjavík, þótt safn
Hins íslenska náttúrufræðifélags
hafi fljótlega tekið við þessu hlut-
verki.36,40
Merkimiðar steinasafnsins
í Reykjavík
Megintexti merkimiða í steinasafni
Menntaskólans í Reykjavík frá 1839–
1840 er á íslensku (3. tafla, 6. mynd)
nema í tveimur tilvikum. Það er því
sennilegt að steinasýnin hafi sérstak-
lega verið tekin með það í huga að
þeim yrði komið fyrir í Reykjavík. Á
merkimiðunum er Fjölnisstafsetning
líkt og á þeim merkimiðum steina-
safnsins í Kaupmannahöfn sem eru
með staðarnöfn á íslensku. Jarð-
fræðilegar upplýsingar eru að jafn-
aði meiri en á merkimiðum safnsins
í Kaupmannahöfn. Ástæða er til að
vekja athygli á fremur óvenjulegri,
en einlægri, athugasemd á bakhlið
miða nr. 9 (3. tafla).
Jarðfræðiheiti eru mun færri en
á merkimiðum safnsins í Kaup-
mannahöfn, enda eru miðarnir mun
færri. Flest heitin koma einnig fyrir
í dagbókum, minnisgreinum eða
bréfum Jónasar sem prentuð voru
á árunum 1929–1937.1,2 Örfá þeirra
eru með hendi Jónasar er að finna á
6. mynd.
Í ritum Jónasar Hallgrímssonar
eru upplýsingar um tilurð steina-
safns Menntaskólans í Reykjavík.
Þar sem þessi saga hefur nýlega
verið rifjuð upp36 skal hér aðeins
stiklað á stóru. Í bréfi til Finns
Magnússonar leyndarskjalavarðar
29. sept. 1839 ræðir Jónas1 hvort sér
„muni heppnast … að koma fótum
undir ‘íslenzkt steinasafn’ …, annað
hvort við skólann [þ.e. Reykjavík-
urskóla] eða stiftsbókhlöðuna, því
þetta álít ég áríðandi bæði fyrir
landið og vísindin“. Haustið 1841
hafa þessar hugmyndir Jónasar
breyst, og nú er hann að hugsa um
náttúrugripasafn með hvoru tveggja,
steinum og dýrum. Í bréfi til J. Steen-
strups 4. okt. 1841 segir hann að
„Den islandske Naturalie-samling
er nu i dens betydningsfulde Fød-
sel. – Naturforskeren [þ.e. Jónas]
er indrømmet det gamle, nedlagte
Fangehul ‘Svartholið’, med nogle
Hylder og Borde, for at vise, hvad
han kan opstille.“ Í umsókn til rentu-
kammers (fjármálaráðuneytisins í
Kaupmannahöfn) 5. nóv. 1841 talar
Jónas um „at begrunde et islandsk
Museum, zoologisk og mineralogisk,
hvortil mig foreløbig er indrømmet
et lidet lokale, indtil Skolen i sin
Tid muligvis vilde overtage Sam-
lingen“.
5. mynd. Reykjavík 1846. Reykjavíkurskóli (Menntaskólinn í Reykjavík) er stóra tvílyfta
byggingin til hægri við dómkirkjuna, en ‘svartholið’ (núverandi Stjórnarráðshús) sést
vinstra megin. Eftir teikningu L. A. Winstrups arkitekts.37
78 3-4 LOKA.indd 97 11/3/09 8:32:48 AM