Náttúrufræðingurinn - 2009, Qupperneq 19
103
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Þorvaldur Thoroddsen segir
nokkuð frá tilurð þessa ritverks
og byggir þar einkum á óbirtum
skjölum Steenstrups í Kaupmanna-
höfn.12 Fyrirmyndin var hið mikla
ritverk Pauls Gaimard um Ísland
og Grænland, Voyage en Islande et
au Groënland, exécuté pendant les
Années 1835 et 1836. Jarðfræðikort
af Íslandi mun hafa átt að fylgja
þessu ritverki um Ísland.1n Ekki
hafa varðveist nein drög að þessu
korti, og er óvíst að þeir Steenst-
rup hafi nokkurn tíma byrjað á því.
Ákveðið var að Steenstrup yrði aðal-
höfundur ‘Islands Naturforhold’, en
auk Jónasar átti Salomon Drejer
grasafræðingur að koma að því.
Drejer lést 1842, en Steenstrup og
Jónas unnu að ritinu þegar Jónas
var í Sorø 1843–1844. Þorvaldur
Thoroddsen segir að af þessu verki
lifi aðeins ósamstæð brot sem ekki
hafi verið unnt að birta.12
Í skjalasafni Zoologisk Museum
í Kaupmannahöfn er í skjalapakka
merktum Japetusi Steenstrup (T82a)
að finna handritsdrög með titli
þeim sem sjá má á 7. mynd. Þessi
drög að jarðsögu og umfjöllun um
jarðmyndanir landsins eru 75 skrif-
aðar blaðsíður, líklega með hendi
Steenstrups. Sex síður eru að mestu
um Færeyjar. Þótt þetta handrit sé
kallað skýrsla til rentukammers er
líklegt að hér sé komið fyrrnefnt
rit, enda er titillinn hinn sami. Í
skjalasafni Geologisk Museum er
ennfremur handrit sem virðist vera
tengt þessu ritverki þeirra Steen-
strups og Jónasar. Það ber titilinn
Bemærkninger og Notitzer med hen-
syn til Islands naturhistoriske Forhold
meddelt af Lector Steenstrup. Það er
átta síður og er líklega með hendi
Steenstrups, en á spássíum eru
allmargar athugasemdir frá Jónasi,
merktar „J. Hgr.“ Það er ljóst að
það hefði verið mikill fengur að
þessu ritverki. En við lát Jónasar í
maí 1845 og vistaskipti Steenstrups
í embætti háskólaprófessors í dýra-
fræði í byrjun árs 1846 var útséð um
að verkinu yrði lokið.
Jónas og Japetus
Steenstrup
Japetus Steenstrup (1813–1897) var
vinur Jónasar Hallgrímssonar og
helsti samstarfsmaður. Þeir Steen-
strup hófu báðir nám við Hafnar-
háskóla árið 1832, Steenstrup í
læknisfræði6 en Jónas í lögfræði.
Það er athyglisvert að þeir sneru sér
báðir að námi í náttúrufræði á svo
til sama tíma, eða um 1835–1836.
Þeir virðast hafa aflað sér svipaðrar
háskólamenntunar í náttúrufræðum,
en auk þess hlaut Steenstrup sérstök
verðlaun Danska vísindafélagsins
1837 fyrir ritgerð um danskar mýrar
og gullpening Hafnarháskóla 1841
fyrir ritgerð um dýrafræðilegt efni.6
Hér er ástæða til að benda á að
Steenstrup var talinn hæfur til að
taka við stöðu prófessors í dýrafræði
við Hafnarháskóla í lok árs 1845. Af
þessu má ráða að Jónas hafi verið
afar vel menntaður í náttúrufræðum
á þeirra tíma mælikvarða þar sem
þeir Steenstrup hafa hlotið svipaða
menntun við háskólann.
Steenstrup var ráðinn til Íslands-
farar ásamt J. C. Schythe eins og áður
segir, og dvaldist hann á Íslandi frá
júlí 1839 til loka september 1840.
Ferðin mun hafa haft mikla þýð-
ingu fyrir Steenstrup sem vísinda-
mann.6 Ferð Steenstrups og Jónasar
um Vesturland sumarið 1840 hefur
einnig haft mikið að segja fyrir Jónas.
Þótt Jónas hafi átt að heita aðstoð-
armaður Steenstrups hafa þarna
farið saman tveir jafnvígir og mjög
hæfir vísindamenn, en skapferli
þeirra var að vísu ólíkt og Jónas
orðinn heilsuveill þegar hér var
komið sögu.13,16
Steenstrup var lektor í steinafræði
og dýrafræði við Latínuskólann í
Sorø 1841–1845. Jónas var í Sorø
1843–1844 í boði Steenstrups, og
mun það hafa verið einn besti tíminn
í lífi hans.16 Steenstrup fékkst í fyrstu
töluvert við jarðfræðirannsóknir en
sneri sér síðan að dýrafræði, einkum
eftir að hann varð prófessor við
Hafnarháskóla. Hann hefur verið
talinn einn af merkustu dýrafræð-
ingum Dana fyrr og síðar.
Steenstrup náði ekki að vinna úr
jarðfræðigögnum þeim sem hann
safnaði í Íslandsferðinni. Þorvaldur
Thoroddsen gerir töluvert úr rann-
sóknum hans og niðurstöðum.10,12
Þannig eignar hann Steenstrup til að
mynda að öllu leyti þær hugmynd-
ir um jarðfræðilega uppbyggingu
landsins sem víða koma fram í
ritum og skjölum þeirra Jónasar. Það
kemur einnig fram í bréfi Jónasar til
Steenstrups 18. ágúst 1841 að þetta
eru hugmyndir Steenstrups. Þar
segir Jónas: „Her vil jeg ogsaa sige
dig …, at dine Anskuelser af Islands
geol. Forhold uden al Tvivl er, i sin
Helhed, de eneste rigtige, og at jeg
med fuldkommen Overbevisning
har for længe siden tiltraadt dem, og
bliver ved at bygge derpaa.“1
Þessar hugmyndir um hina jarð-
fræðilegu uppbyggingu hafa verið
nokkuð á reiki hjá þeim félögum. En
upp úr 1841 virðast þeir sammála
um að á landinu hafi verið þrjú
myndunarskeið hrauna,1o „trende
Lavaperioder“: 1) „den ældre Kløft-
lava (Trap)“, það er hraun sem kom-
ið hafi úr sprungum á hafsbotni; 2)
„den yngre Kløftlava (Dolerit)“, yngri
hraun mynduð við sprungugos; 3)
„den Moderne Lava“, hraun sem
runnið hafi á yfirborði lands eftir að
8. mynd. Japetus Steenstrup á yngri árum.
Eftir olíumálverki í einkaeigu í Danmörku.5
78 3-4 LOKA.indd 103 11/3/09 8:32:52 AM