Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 20

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 20
Náttúrufræðingurinn 104 það hafði mótast töluvert; svonefnt ‘Vegetationslag (Surtarbrandsforma- tionen)’, það er fornt gróðurlag, nú orðið að surtarbrandi, telja þeir vera um allt land og liggja á milli tveggja elstu hraunamyndananna (ældre og yngre Kløftlava). Ekki verður efast um að Steen- strup hafi skýrt stóru drættina í jarðfræðilegri uppbyggingu lands- ins. Hann ætti þess vegna að teljast meðal helstu jarðfræðinga er komu til Íslands á 19. öld og rannsökuðu jarðmyndanir landsins þótt engar athuganir hans hafi birst á prenti. En eins og einnig kemur fram í fyrr- nefndu bréfi, þá var Jónas að bæta við og fullkomna þessa mynd, aðallega með því 1) að gera ráð fyrir myndun túffs á öllum þremur myndunar- skeiðum jarðlaga, 2) að hafna þeirri kenningu Krug von Nidda að forn sandsteinn sé undir trapplögunum og 3) að hrekja þær einkennilegu hugmyndir Krug von Nidda14 og Roberts15 að surtarbrandurinn sé myndaður úr fornum rekaviði. En auk þessa var framlag Jónasar veru- legt í fjölmörgum öðrum greinum jarðfræðinnar eins og áður hefur verið drepið á. Það virðist því sem Þorvaldur Thoroddsen hafi stund- um gert of mikið úr hlut Steenstrups á kostnað Jónasar.10,12 Johannes Steenstrup, sonur Japetusar Steenstrup, segir í grein frá æskuárum föður síns og byggir þar á ýmsum óbirtum gögnum.6 Þar er vikið að Jónasi Hallgríms- syni og sagt að þeir Steenstrup og Jónas hafi verið vinir þótt Steenstrup hafi harmað atorkuleysi Jónasar og þann ágalla hans að geta ekki staðist freistingar. Þrátt fyrir þetta kemur víða fram í heimildum að Japetus Steenstrup hafði mikið álit á Jónasi. Til marks um það má rifja upp frásögn Stefáns Stefánssonar skólameistara frá fyrirlestri Steen- strups við lok starfsferils hans sem prófessors,50 en þar hafði Steenstrup nefnt „den berømte islandske Digter, og den skarpsindige, geniale Natur- forsker Jónas Hallgrímsson“. Arfleifð Jónasar Þeir sem ritað hafa um jarðfræði- rannsóknir Jónasar Hallgrímssonar hafa yfirleitt ekki gert mikið úr áhrif- um hans (og Steenstrups) á seinni tíma menn,10,11,13,46 líklega einkum vegna þess hversu lítið birtist á prenti eftir Jónas og hversu skammt þessi vísindagrein var komin á öðr- um fjórðungi 19. aldar. Þó hefur verið bent á að hann hafi lagt drög að mörgu því sem Þorvaldur Thor- oddsen átti eftir að gera.11 Og nánari athugun sýnir að áhrif Jónasar hafa í raun verið meiri en í fyrstu virðist. Að framan var getið um þrí- skiptingu Steenstrups og Jónasar á jarðmyndunum landsins. Þetta er í grundvallaratriðum sama skipt- ing og Þorvaldur Thoroddsen51,52 lýsir í ritum sínum rúmlega 60 árum seinna. Þar nefnir Þorvaldur þessar myndanir 1) hraun frá tertíer; 2) grágrýtismyndun; 3) hraun frá nútíma. Þar sem Þorvaldur var vel kunnugur óbirtum handritum og skjölum Steenstrups og Jónasar er líklegt að niðurstöður þeirra hafi auðveldað honum eftirleikinn þótt Þorvaldur vitni ekki beinlínis til þeirra í þessu samhengi. Þegar helstu ritadrög Jónasar (sjá bls. 102–103) eru skoðuð með hlið- sjón af ritum Þorvalds Thoroddsen kemur í ljós að fjögur af sex helstu ritum Þorvalds eru um sama efni og rit Jónasar (4. tafla), og tvö ritanna bera sama eða svo til sama titil. Hér er um að ræða svo mikla samsvörun í efnistökum að líklega er sanngjarnt að segja að Jónas hafi varðað veginn fyrir Þorvald Thoroddsen. Þorvald- ur kom síðan flestu því í verk sem Jónas hafði lagt drög að. Það skal tekið fram að með þessum saman- burði er ekki verið að gera lítið úr framlagi Þorvalds Thoroddsen, sem Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur nefndi „stórvirki“.56 Þorvaldur Thoroddsen gaf í fyrir- lestri sem hann hélt um Jónas Hall- grímsson á minningarsamkomu Íslendinga í Kaupmannahöfn 16. nóvember 1907 góða og alhliða lýs- ingu á honum. Þar segir að Jónas hafi verið „náttúrufræðingur með miklum hæfilegleikum, skarpvitri athugunargáfu og ágætri dóm- greind“.13 Samantekt Jónas Hallgrímsson lét eftir sig tvö steinasöfn. Í Geologisk Museum í Kaupmannahöfn eru 308 sýni sem rekja má til Jónasar. Í Menntaskóla- num í Reykjavík voru 16 sýni sem örugglega eru frá honum kom- in; þau eru nú varðveitt hjá Nátt- úrufræðistofnun Íslands. Þessum steinasýnum safnaði Jónas á rann- sóknarferðum sínum um landið 1837 og 1839–1842. Jónas stundaði nám í jarðfræði og dýrafræði við Hafnarháskóla á árunum 1833–1838. Hann virðist hafa tekið þau próf og fengið þau vottorð sem í boði voru við há- skólann á þessum tíma. Ljóst er að Jónas hefur verið mjög vel mennt- aður náttúrufræðingur á þeirra tíma mælikvarða. Jónas lagði grunn að rannsóknum sínum með ferðunum um Ísland 1837 og 1839–1842. Hann kannaði Jónas Hallgrímsson Þorvaldur Thoroddsen Lýsing Íslands (Rit JH IV, 221–302) Lýsing Íslands I–II (1908–1922)53 Eldfjallasagan (Rit JH IV, 68–190) Die Geschichte … (1925)54 Um landskjálfta á Íslandi (Rit JH IV, 190–200) Landskjálftar á Íslandi (1899–1905)55 Náttúra Íslands (Rit JH II, 197) Island, Grundriss … (1905–1906)52 4. tafla. Helstu ritverk og áformuð verk Jónasar borin saman við nokkur helstu ritverk Þorvalds Thoroddsen. Um rit Þorvalds er vitnað til heimildaskrár. 78 3-4 LOKA.indd 104 11/3/09 8:32:52 AM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.