Náttúrufræðingurinn - 2009, Page 23
107
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Ólafur Arnalds og Hlynur Óskarsson
Inngangur
Mold er mikilvægur hluti náttúrunn-
ar, eins konar miðill á krossgötum
fjögurra heima: bergs, lofts, lífríkis
og vatns. Hún er meginhlekkur í
hringrás orku, vatns og næringar-
efna á yfirborði jarðar. Jarðvegur er
undirstaða landbúnaðar og því hefur
hann verið kortlagður í flestum ríkj-
um heims; sums staðar oftsinnis og
nákvæmlega, sérstaklega í Evrópu
og Bandaríkjunum. Jarðvegsfræði
sem vísindagrein þróaðist seint á
Íslandi og því hafa rannsóknir og
kortlagning á jarðvegi ekki fylgt eftir
þekkingaröflun á mörgum öðrum
sviðum náttúrufræða hérlendis. Þó
er sérstaða íslensks jarðvegs mikil
á alþjóðavísu og moldin verðugt
rannsóknarefni.
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins (Rala) lagði áherslu á að auka
jarðvegsrannsóknir og gera yfirlits-
kort af jarðvegi landsins í kring-
um aldamótin síðustu. Árið 1998
birtist fyrsta útgáfa af núverandi
jarðvegskorti Rala (nú Landbún-
aðarháskóli Íslands, LbhÍ). Það var
m.a. unnið að áeggjan erlendra aðila,
þ. á m. Jarðvegsstofnunar Evrópu
(European Soil Bureau), þar eð upp-
lýsingar um jarðveg á Íslandi skorti
tilfinnanlega. Kortið byggist á nýrri
flokkun jarðvegs sem skýrð er nánar
í greininni. Því er fyrst og fremst
ætlað að gefa heildaryfirlit yfir jarð-
veg landsins, en er ekki hugsað til
notkunar í nákvæmum mælikvarða.
Endurskoðuð útgáfa var birt á net-
inu árið 2001. Jarðvegskortinu og
þeirri flokkun sem það byggist á
hafa ekki verið gerð tilhlýðileg skil,
enda þótt það sé aðgengilegt öllum1
og notað í margvíslegum tilgangi.
Mold – jarðvegur
Latneska orðið yfir jarðveg er sol,
dregið af solum (jörð). Heiti jarðvegs-
flokka eru gjarnan með endingunni
sol, sbr. Andosol og Podsol. Annað
og upprunalegra íslenskt heiti á jarð-
vegi er mold, en hugtakið jarðvegur
er líklega komið inn í íslensku fyrir
einhvers konar misskilning sem
þýðing á latnesku orði yfir plægt
land.2 Þar mun síðari hluti orðs-
ins jarðvegur vísa til plógfarsins.
Hugtakið mold á sér djúpar rætur
í tungumálinu og er t.d. notað í
biblíunni í þeim skilningi sem oftar
er notaður um jarðveg. Orðið mold
er gamalt og þjált íslenskt orð og
höfundar þessarar greinar nota það
í merkingunni jarðvegur, og er það
jafnframt gert hér.
Hugtakið moldarefni er mikil-
vægt við flokkun jarðvegs, því það
tekur til hins virka hluta jarðvegs-
ins, sem er skilgreindur sem korn
< 2 mm í þvermál.
Andosol – eldfjallajörð
Jarðvegur sem myndast á eldfjalla-
svæðum er frábrugðinn öðrum jarð-
vegi. Móðurbergið er fyrst og fremst
gjóska sem veðrast allajafna hratt,
sé raki til staðar. Veðrunareinkenni
Íslenskt jarðvegskort
Náttúrufræðingurinn 78 (3–4), bls. 107–121, 2009
Ritrýnd grein
Íslenskur jarðvegur telst til eldfjallajarðar (Andosol) að langmestum hluta,
en eldfjallajörð er jarðvegur sem myndast á eldvirkum svæðum heimsins.
Eldfjallajörð hefur afar sérstæða eiginleika sem greina hana frá öðrum
jarðvegsgerðum. Á undanförnum árum hefur verð unnið að íslensku
jarðvegskorti, sem nú þegar er notað í margvíslegum tilgangi. Í þessu
skyni var þróuð einföld flokkun fyrir íslenskan jarðveg, sem m.a. bygg-
ist á alþjóðlegum flokkunarkerfum en einnig grundvallarvinnu Björns
Jóhannessonar og Þorsteins Guðmundssonar. Flokkunin gerir grein-
armun á i) jarðvegi auðna (glerjörð sem skiptist í melajörð, malarjörð, sand-
jörð og vikurjörð; ii) jarðvegi gróins lands með sortueiginleika (sortujörð,
sem skiptist í brúnjörð, votjörð og svartjörð), iii) lífrænni mójörð og að síð-
ustu iv) öðrum jarðvegi sem er margvíslegur að gerð. Í síðasta flokknum
er bergjörð útbreiddust, en auk þess má nefna frerajörð sífrerasvæða og
kalkjörð. Jarðvegskortið var unnið á grundvelli sniða og jarðvegssýna
sem safnað hefur verið víða um landið. Kortið er á stafrænu formi og í
mælikvarðanum 1:250 000. Það er notað í alþjóðlegum kortagrunnum og
er m.a. hluti evrópska jarðvegskortsins. Margar íslenskar jarðvegsgerðir
eru sérstæðar á heimsvísu og er áfok basískra gjóskuefna um landið allt
ein meginástæða þess. Í svartjörð blandast t.d. saman áhrif eldfjallajarðar
og mómýra heimskautasvæðanna. Þá er jarðvegur auðna á Íslandi sér-
stakur, bæði sökum eiginleika og mikillar útbreiðslu.
78 3-4 LOKA.indd 107 11/3/09 8:32:53 AM