Náttúrufræðingurinn - 2009, Page 24
Náttúrufræðingurinn
108
eru háð ýmsum öðrum þáttum, m.a.
efnasamsetningu. Þannig er mikil-
vægt að hafa í huga að basísk gjóska
veðrast hraðar en súr gjóska. Við
veðrunina losna Al3+ og Si4+ hlut-
fallslega hraðar en við veðrun á öðrum
gerðum móðurbergs jarðvegs og
þessar jónir falla út með súrefni og
hýdroxíði og mynda þá leirsteindir
sem eru einkennissteindir jarðvegs á
eldfjallasvæðum: allófan og ímógó-
lít.3 Á Íslandi fellur einnig mikið
út af ferrihýdríti, sem er gelkennd
járnsteind. Þessar steindir eru ekki
fullkomlega kristallaðar (e. poorly
crystalline), en hafa mikla virkni
vegna gríðarlegs yfirborðs sem þær
hljóta m.a. vegna smæðarinnar og
yfirborðseiginleika (hleðslu). Þær
eru ekki blaðsilíköt eins og annar
dæmigerður leir sem myndast í jarð-
vegi, svo sem smektít og kaolínít.
Katjónir sem losna við veðrunina,
t.d. Ca++, Mg++, Na+ og K+, skolast
fremur hratt úr jarðveginum en
hafa þó mikil áhrif á sýrustig hans.
Annað einkenni myndunar jarðvegs
á eldfjallasvæðum er uppsöfnun
lífrænna efna, því bæði allófan og
málmjónir er losna við veðrunina
bindast lífrænum sameindum
sem verða stöðugar í jarðveginum
(málm-húmus knippi eða lífrænar
fjölliður). Allófan myndast við frem-
ur hlutlaust sýrustig (pH>5) en í
súrum jarðvegi verða málm-húmus
knippin ráðandi.4,5 Leirsteindirnar,
ásamt málm-húmus fjölliðunum,
ljá jarðveginum afar sérstæða eigin-
leika sem einkenna jarðveg eld-
fjallasvæða, svo sem mikla holrýmd,
mikla vatnsgeymd, hæfni til að
miðla katjónum (jónrýmd), skort á
samloðun, góða vatnsleiðni, mikið
magn kolefnis og oft frjósemi.4 Þá
hefur gjóskan sem slík einnig sér-
stæða jarðvegseiginleika, með miklu
holrými og miklum veðrunarhraða.
Á Íslandi er gjóskan almennt fremur
basísk og veðrunarhraði mikill.6
Jarðvegur eldfjallasvæða er
nefndur „Andosol“ í flokkun FAO
(WRB, sem stendur fyrir „World
Reference Base for Soil Resources“)7
en „Andisol“ samkvæmt banda-
ríska kerfinu (Soil Taxonomy).8
Talið er að þessi jarðvegsgerð þeki
um 1–2% þurrlendis jarðar, en allt
að 5% hennar á heimsvísu finnast
á Íslandi. Hugmyndir um flokk-
un jarðvegs eldfjallasvæða voru
þróaðar af alþjóðlegum starfshópi,
ICOMAND, og var hann mynd-
aður til að bæta hinum sérstæða
jarðvegi eldfjallasvæða heimsins
inn í bandaríska flokkunarkerf-
ið „Soil Taxonomy“.8,9 Hugtakið
„Andosol“ er dregið af japanska
heitinu „Ando“ sem merkir dökk
eða svört jörð. Á íslensku hefur
þessi jarðvegur m.a. verið kall-
aður eldfjallajörð og „sortujörð“.2
Orðið eldfjallajörð virðist hafa náð
töluverðri fótfestu meðal náttúru-
fræðinga hérlendis. Heitið sortu-
jörð er hér tekið frá sem samheiti
fyrir eldfjallajörð á grónu landi
sem einkennist af allófani og/
eða lífrænum efnum (andic), til
aðgreiningar frá glerjörð (Vitrisol)
auðna (vitric).
Segja má að til eldfjallajarðar
teljist þrír meginhópar jarðvegs:
i) hópur sem einkennist af allófani;
ii) hópur þar sem lífræn efni, að
hluta til málm-húmus knippi, eru
ráðandi, og að síðustu er iii) lítið
veðraður jarðvegur á gjóskusvæð-
um, sem ber fyrst og fremst ein-
kenni gjóskunnar. Sá síðasttaldi er
stundum talinn sérstök jarðvegs-
gerð, glerjörð (Vitrisol, vitr = gler á
latínu). Þessi þrískipting var höfð
til hliðsjónar við mótun íslenskrar
flokkunar sem hér er lýst, þar sem
glerjörð er ein megineining flokkun-
arinnar.
Jarðvegsheiti eru ekki algeng
í skrifum um íslenska náttúru til
þessa. Að baki hverju jarðvegsheiti
er ákveðin skilgreining sem lýsir
eiginleikum moldarinnar. Víðast
erlendis eru þessi heiti rituð með
upphafsstaf til að leggja áherslu á
sérstöðu þeirra (t.d. Andosol), en
almenn lýsandi heiti, t.d. mýrajarð-
vegur, eru þá rituð með litlum staf.
Slík notkun upphafsstafs brýtur í
bága við íslenska ritreglu, en hún
kann þó að hjálpa lesandanum og
hefur því verið notuð.2 Í þessari
flokkun höfum við kosið að auð-
kenna heiti jarðvegsgerða með ská-
letruðum orðum (t.d. eldfjallajörð).
Flokkun jarðvegs
Þróun flokkunarkerfa
Flokkun jarðvegs má telja til einnar
af undirgreinum jarðvegsfræðinnar,
en með flokkun moldar er leitast
við að koma skipulagi á þekkingu
manna á þeirri auðlind sem jarðveg-
ur er. Uppruna flokkunar má rekja
til frumkvöðlastarfs Rússa á seinni
hluta 19. aldar, þar sem áhersla var
lögð á tengsl loftslags og jarðvegs-
gerða. Flokkunarfræðin stóðu síð-
an með miklum blóma langt fram
eftir síðustu öld, ekki síst samhliða
þróun viðamikils flokkunarkerfis
í Bandaríkjunum.8,10,11 Þetta kerfi
nefnist „Soil Taxonomy“ og er notað
víða um lönd og hefur auk þess lagt
drjúgan skerf til undirstöðu fyrir
önnur flokkunarkerfi, m.a. flokkun-
arkerfi FAO – WRB7,12 sem síðar
verður vikið að.
Við flokkun jarðvegs nú á tím-
um er almennt reynt að styðjast
við mælanlega eða auðmetanlega
þætti jarðvegsins. Það hefur verið
ríkjandi skoðun að jarðvegsflokkar
sem byggðir eru á vísilögum (e.
diagnostic horizons) eða öðrum mæl-
anlegum eiginleikum endurspegli
myndunarsögu jarðvegsins (e. soil
genesis), sbr. klassískar greinar
Cline13 og Arnold14. Jarðvegssnið
eru yfirleitt grunnur flokkunar, en
Ólafur Arnalds o.fl.15 lýstu aðferð-
um við sniðlýsingar á Íslandi. Leit-
ast er við að nota ráðandi eiginleika
jarðvegsins sem hafa áhrif eða
tengjast sem flestum öðrum þáttum
(e. accessory properties). Dæmi um slík
greiningareinkenni og vísilög er
„spodic horizon“ (Soil Taxonomy og
WRB), sem er oft einkennandi fyrir
jarðveg barrskóga og notuð til að
skilgreina sérstakan flokk jarðvegs
(Podzols eða Spodosols). „Andic“
jarðvegseiginleikar eða sortueigin-
leikar (Soil Taxonomy og WRB) eru
notaðir til að skilgreina „Andosol“-
jarðveg (eldfjallajörð), einkennis-
jarðveg Íslands.
Í upphafi þróunar flokkunarkerfa,
fyrir meira en 100 árum, var reynt
að fylgja sem mest þeirri kenni-
setningu að loftslag og gróðurfar
væru helstu mótandi þættirnir við
78 3-4 LOKA.indd 108 11/3/09 8:32:53 AM