Náttúrufræðingurinn - 2009, Side 26
Náttúrufræðingurinn
110
við leirinnihald). Íslenskar mýrar
hafa afar breytilegt kolefnisinnihald,
allt frá mjög litlu (>1%) til lífrænna
mómýra (>25% C). Mýrahugtakið
orkar því tvímælis við auðkenningu
jarðvegs að mati höfunda þessarar
greinar.
Nýtt flokkunarkerfi
Grunnur flokkunar
Við þróun flokkunarkerfisins er
reynt að meta áhrif umhverfisins
á mótun jarðvegsins eins og þau
endurspeglast í eiginleikum hans.
Þá er það haft að leiðarljósi að jarð-
vegsflokkar hafi einfalda skírskot-
un til WRB-flokkunarinnar þannig
að auðvelt sé að færa íslenskan
jarðveg yfir í það kerfi, m.a. við
gerð alþjóðlegra jarðvegskorta og
gagnagrunna. Sú útgáfa WRB sem
miðað var við er frá 2006.7
Flokkarnir eru niðurstaða nokk-
urra ára þróunarvinnu. Mikil-
vægur þáttur þeirrar vinnu var
samræmd öflun upplýsinga um
eðli jarðvegs víða á landinu. Gögn
úr >80 sniðum með samtals >600
jarðvegslögum eru í gagnagrunni
verkefnisins. Gerðar hafa verið
margvíslegar mælingar á eðlis- og
efnaeiginleikum hvers jarðvegs-
lags sniðanna, m.a. sýrustigi,
leirinnihaldi, jónrýmd, vatnseig-
inleikum o.fl., en að auki fylgja
ítarlegar sniðlýsingar í samræmi
við rit Ólafs Arnalds og fleiri.15 Þá
eru notaðar eldri rannsóknir27 og
birt námsverkefni.t.d. 28,29,30 Að auki
er til umfangsmikið gagnasett sem
hefur verið aflað í tengslum við
aðrar rannsóknir Rala og LbhÍ á
jarðvegi í ýmsum rannsóknaverk-
efnum, m.a. vegna kolefnisbinding-
ar, flæðis gróðurhúsalofttegunda og
umhverfismats á ýmsum stöðum.
Mæld sýni af þessu tagi eru nú um
2000, en í þeim hefur einkum verið
mælt kolefnisinnihald, sýrustig og
oft vatnseiginleikar en stundum
aðrir þættir, svo sem rúmþyngd.
Þessi gögn hafa verið notuð við
mótun jarðvegsflokkanna. Einnig
er litið til staðfærslu Þorsteins Guð-
mundssonar á eldri útgáfu flokk-
unar FAO frá 1988.25 Við starfið var
einnig leitað til Nýja-Sjálands en
Alan Hewitt, höfundur nýsjálensku
flokkunarinnar,31,32 veitti góð ráð.
Nafngiftir
Ákveðið var að nota jörð í endingu
jarðvegsflokka, sbr. eldri merkingu
þess orðs (mold), eins og Þorsteinn
Guðmundsson hafði áður gert;
einnig að við nafngiftir yrði leitast
við að nota orð sem lýsa eiginleikum
jarðvegsins sjálfs, svo sem lit eða
jarðvatnsstöðu, en reynt að forðast
lýsingar á yfirborði eða gróðurfari
í hugtökum um mold. Þó verður
að segjast að mörg orð hafa öðlast
traustan sess, svo sem heitið móa-
jarðvegur, en þau eru aðeins notuð
hér þegar rætt er almennt um mold
en ekki þegar vísað er til heitis á
jarðvegsflokki sem endar á -jörð, sbr.
heitið brúnjörð. Við höfum haldið
nöfnum flokka opnum sem lengst
og reynt ýmsar nafngiftir en forð-
ast að gefa þeim endanleg nöfn.
Þessi aðferð getur vitaskuld leitt til
misskilnings, þegar jarðvegsflokkar
hljóta mismunandi heiti á þróunar-
stigi, en það er von okkar að hún
leiði að lokum til betri nafngifta en
ella.
Ensk heiti fylgja íslensku jarð-
vegsflokkunum til þess að auð-
velda alþjóðleg samskipti, enda var
jarðvegskortið að hluta til unnið í
samstarfi við erlenda aðila og fyrir
fjölþjóðlega kortagrunna. Lögð er
áhersla á að sá jarðvegur sem telst til
eldfjallajarðar beri heitið „Andosol“
í enskri nafngift, en ekki í þeirri
íslensku. Dæmi um það er brúnjörð,
sem nefnist „Brown Andosol“ í
enskri útgáfu kerfisins. Skáletruð
heiti íslenskra jarðvegsgerða í þess-
ari grein eru skilgreindar tegundir
2. mynd. Áhrif umhverfis- og jarðvegsþátta á eiginleika jarðvegs. Þessi áhrif eru notuð
við flokkun jarðvegsins. Áfok og vatnsstaða (umhverfisþættir, til vinstri) hafa áhrif á
leirmyndun annars vegar og uppsöfnun lífrænna efna (jarðvegsþættir) hins vegar, en
allir þessir þættir hafa ráðandi áhrif á flesta af mikilvægustu eiginleikum jarðvegsins
(jarðvegseiginleikar, til hægri). – Schematic drawing showing the dominant influence of
eolian input and drainage (environmental factors) on dominant soil constituents (soil
factors), which are clay and organic matter content. These constituents control impor-
tant soil properties (on the right). Eolian input (and tephra deposition) and drainage are
factors used to define the soil classes of the soil map.
78 3-4 LOKA.indd 110 11/3/09 8:32:53 AM