Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 27
111
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
jarðvegs, t.d. brúnjörð, en heiti eins
og móajarðvegur eða mýrajarðveg-
ur eru samheiti.
Jarðvegsmyndun: grundvöllur
flokkanna
Mikill munur er á umhverfi jarð-
vegsmyndunar á auðnum annars
vegar og undir gróðurlendi hins
vegar. Moldin verður því afar mis-
munandi og því er aðgreining slíkra
jarðvegsgerða sjálfsögð, eins og
Björn Jóhannesson gerði.19,20 Jarð-
veginum er síðan skipt í marga
undirflokka, sem mótaðir eru af
mismunandi umhverfisaðstæðum
sem hafa áhrif á jarðvegsmyndun.
Áfok og grunnvatnsstaða eru ráð-
andi þættir við mótun jarðvegs á
Íslandi og þar með þróun jarðvegs-
eiginleika (2. mynd).
Áfok
Áfok er mjög mikið á Íslandi og það
veldur því að íslenskur jarðvegur
telst nær allur til eldfjallajarðar, jafn-
vel fjarri auðnum og gosbeltunum.
Þess má geta að jarðvegur í Færeyj-
um, þar sem berggrunni og loftslagi
svipar til aðstæðna á Íslandi, telst
ekki til eldfjallajarðar, enda vantar
gjóskuna og áfokið. Áfokið á Íslandi
leggst sem eins konar slikja yfir
allt landið. Það kemur einkum frá
sandauðnum en einnig frá svæð-
um þar sem þroskaður jarðvegur
fýkur. Gervihnattamyndir sýna að
í stormum getur áfok borist fleiri
hundruð kílómetra á haf út.33 Einnig
þykknar jarðvegur við gjóskufall,
en eiginleg jarðvegsmyndun á þó
einvörðungu við um þau ferli sem
eiga sér stað ofan í moldinni. Áfokið
og gjóskan er að mestu basísk eða
andesít gosefni, sem veðrast fremur
auðveldlega við veðrun á áfokinu
og gjóskunni, sem aftur stuðlar að
uppsöfnun lífrænna efna og öðrum
jarðvegsmyndandi ferlum. Magn
áfoksins og það hve ört það berst
hefur áhrif á umhverfi jarðvegs-
myndunarinnar og þá sérstaklega
myndun leirsteinda í jarðveginum
(allófan, ímógólít og ferrihýdrít) og
uppsöfnun lífrænna efna. Þessir jarð-
vegsþættir, leir og lífræn efni hafa
ráðandi áhrif á eiginleika jarðvegs-
ins. Þar sem áfok er mikið safnast
minna af leir í jarðveginn (minni tími
til myndunar) og lífræna innihaldið
verður minna. Sé áfokið hlutfallslega
lítið, eins og á við fjarri gosbeltum,
gefst meiri friður til leirmyndunar,
sérstaklega í þurrlendi, en sýrustig
votlendis getur aftur á móti orðið of
lágt til myndunar leirsteinda.15
Mikið áfok gjóskuefna er fátítt
í heiminum og gefur það íslensk-
um jarðvegi töluverða sérstöðu á
heimsvísu. Á Íslandi eru ennfremur
stærstu sandauðnir heimsins þar
sem sandefnin eru fyrst og fremst
basísk gosefni.34
Grunnvatnsstaða
Grunnvatnsstaða ræður miklu um
hlutþrýsting súrefnis í jarðvegi-
num og þar með oxunar- og afox-
unarferli í honum sem og rotnun
og uppsöfnun lífrænna efna. Áfok
og grunnvatnsstaða spila saman
og þar sem áfokið er mikið er það
ráðandi, jafnvel í votlendi. Minna
af lífrænum efnum safnast fyrir í
mýrlendi við gosbeltið (t.d. á Suður-
landsundirlendinu), en jarðvegur
er lífrænastur í votlendi fjærst upp-
sprettum áfoksefna (t.d. víða á Vestur-
landi).15,20 Þar sem lítið leggst til af
áfoki losnar minna af katjónum við
efnaveðrun sem annars viðhalda
sýrustigi jarðvegs og því getur sýru-
stigið orðið lágt (jafnvel <4,5). Lágt
sýrustig kemur í veg fyrir myndun
allófans, en Al3+ sem losnar við
efnaveðrun binst að hluta lífrænum
efnasamböndum sem verða mjög
stöðug í jarðveginum (málm-húmus
knippi / lífrænar fjölliður).4 Því eru
það nokkrir þættir sem stuðla að
uppsöfnun lífrænna efna í íslensku
votlendi: kuldi, súrefnisþurrð (sem
dregur úr rotnun lífrænna efna) og
myndun málm-húmus knippanna.
Einnig bindur allófanleir lífræn
efni í jarðvegi, og skýrir það m.a.
hátt lífrænt innihald eldfjallajarðar
almennt.3
3. mynd. Flokkunarkerfið í hnotskurn. Eldfjallajörð er skipt í (1) sortujörð (eldfjallajörð
á grónu landi, „andic“ jarðvegur) og (2) glerjörð (jarðveg auðna). Báðum þessum flokkum
er síðan skipt í marga undirflokka. Mójörð (3) er ekki skipt frekar niður í bili. Þá eru sýndir
þrír undirflokkar annars jarðvegs (4). – Schematic drawing showing the classification for
the soil map. Andosols are divided into (1) andic soils under vegetation, and (2) Vitrisols.
These categories have several subclasses. Histosols (3) are not subdivided further on the
map. Three subclasses are shown for other soils (4).
78 3-4 LOKA.indd 111 11/3/09 8:32:53 AM