Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2009, Page 32

Náttúrufræðingurinn - 2009, Page 32
Náttúrufræðingurinn 116 Votjörð (Gleyic Andosol) Í jarðvegi votlendis á eða við gos- beltin, þar sem áfok er mikið, verð- ur kolefnishlutfall mun lægra en í jarðvegi sem ekki verður fyrir miklu áfoki (8. mynd). Hlutfall lífræns kol- efnis er tiltölulega lágt á íslenskan mælikvarða (<12% C samkvæmt skilgreiningu, en oft 1–3% á gosbelt- unum). Jarðvegurinn getur verið nokkuð leirríkur, sérstaklega þar sem áfok er hlutfallslega lítið (sjá 4. og 5. mynd). Líklega finnst jarðvegur af þessu tagi ekki víða annars staðar á jörðinni, sökum þess að áfok bas- ískra gosefna eins og hér er ráðandi er afar fágætt. Eitt einkenna þessa jarðvegs er að járnútfellingar geta verið áberandi, m.a. kringum loft- rætur votlendisgróðurs (9. mynd). Votjörð er áberandi á láglendi Suður- lands og í jaðri gosbeltisins, t.d. á Austurlandi. Illa gekk að finna þessum jarð- vegsflokki nafn á íslensku, en að lokum var staðnæmst við heitið votjörð og „Gleyic Andosol“ á ensku. Orðið „gleyic“ er ættað úr rússnesku og er notað í mörgum kerfum um jarðveg sem er blaut- ur og vatnsmettaður a.m.k. hluta ársins. Þorsteinn Guðmundsson notaði heitið gljáajörð um þennan jarðveg.25 „Gley“ merkir í raun for eða blaut drulla. Meðal eldri nafna eru blautjörð á íslensku og „Hydric Andosol“ á ensku, sem er óheppilegt nafn því í sumum kerf- um merkir „hydric“ fyrst og fremst jarðveg sem getur haldið gríðarlega miklu vatni. Því var horfið frá því að tala um „Hydric Andosol“ en „Gleyic“ notað í staðinn og votjörð á íslensku. Svartjörð (Histic Andosol) Svartjörð er að finna fjarri gosbeltum en þó er áfok nægjanlegt til þess að moldin flokkast ekki sem eiginleg mójörð (sjá hér að neðan). Miðað er við efstu 30 cm jarðvegsins. Einnig kann moldin að vera heldur þurr- ari en dæmigerð mójörð þannig að rotnun vegur upp á móti söfnun 8. mynd. Votjörð á Mýrum vestan Hornafjarðarfljóts. Moldin sýnir aug- ljós merki útfellinga, en áfok frá söndum Suðurlands er það mikið að líf- rænt innihald er ekki ýkja hátt. – Gleyic Andosol in South-East Iceland. Rapid eolian deposition reduces the organic content of this wetland soil. Ljósm./Photo: Ólafur Arnalds. 7. mynd. Brúnjörð í Vopnafirði. Moldin er afar dæmigerð brúnjörð; neðri lög eru þó í ætt við votjörð eins og algengt er með brúnjörð, en efstu 30 cm jarðvegsins ráða flokkuninni. Svört og ljós lög eru gjóskulög. – Typical Brown Andosol from eastern Iceland. Dark and light colored layers are tephra layers. Ljósm./Photo: Ólafur Arnalds. 78 3-4 LOKA.indd 116 11/3/09 8:33:06 AM

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.