Náttúrufræðingurinn - 2009, Page 33
117
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
lífrænna efna. Svartjörðin er útbreidd
á Norðvesturlandi og Norðurlandi
(10. mynd) og sums staðar á Aust-
fjörðum, þar sem hana er gjarnan
að finna í votlendi, en þar sem
yfirborðið er þurrt flokkast moldin
yfirleitt til brúnjarðar.
Segja má að þessi tegund jarðvegs
sé afar sérstæð því hún hefur í senn
eiginleika mójarðar (Histosol) og eld-
fjallajarðar (Andosol). Lífræn efni, oft
illa rotnuð, eru afar áberandi og því
kann að orka tvímælis að telja þessa
mold til eldfjallajarðar. En efnagrein-
ingar leiða afdráttarlaust í ljós sortu-
eiginleikana (andic properties), ál-
húmusknippi, allófan og ferrihýdrít.
Samkvæmt Soil Taxonomy er þessi
jarðvegur eldfjallajörð en Histosol
samkvæmt WRB. Við látum sortu-
eiginleikana (andic soil properties)
ráða nafngiftinni á ensku.
(2) Glerjörð (Vitrisol)
Jarðvegur auðna er sérstakur yfir-
flokkur í þessu kerfi. Auðnir hafa
mikla útbreiðslu á Íslandi og það er
mikilvægt að skilja þær að frá öðrum
jarðvegi á efsta stigi flokkunarinnar,
en sem áður gat telst þessi jarðvegur
einnig til eldfjallajarðar í alþjóðlegum
flokkunarkerfum. Glerjörðin hef-
ur fjóra undirflokka, sem þó eru
oft æði skyldir, eftir umhverfisað-
stæðum á hverjum stað. Flokkarnir
fjórir, melajörð, malarjörð, sandjörð og
vikurjörð, endurspegla jarðfræðilegt
umhverfi og kornastærð, enda er
jarðvegsmyndun skammt á veg
komin og því ráða eiginleikar móð-
urbergsins miklu um eiginleikana.
Nafngiftir draga einnig dám af jarð-
fræðinni, a.m.k. þar til heppilegri
nöfn finnast.
9. mynd. Oxun framkallar rauðan lit í kringum loftrætur í votjörð við Hálslón. Það eru
járnsambönd sem kalla fram litinn. – Oxidation around roots in Gleyic Andosol in the
eastern highlands. Ljósm./Photo: Ólafur Arnalds.
10. mynd. Svartjörð í votlendi í Hnappa-
dalssýslu. Mismikil rotnun og lífrænt inni-
hald jarðvegslaga kalla fram misdökk
jarðvegslög. Þessi mold hefur einkenni bæði
hins lífræna heimskautajarðvegs og sortu-
einkenni (andic soil properties). Rauður lit-
ur neðst í sniðinu er vegna oxunar járns í
grófu jarðvegslagi (meira súrefni). – Histic
Andosol in western Iceland. Different de-
composition levels and organic content pro-
duce layers of different colors. Oxidation of a
gravelly layer near the bottom causes the red
band. Ljósm./Photo: Ólafur Arnalds.
78 3-4 LOKA.indd 117 11/3/09 8:33:09 AM