Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 35

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 35
119 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Sandjörð (Arenic eða Sandy Vitrisol) Sandjörð er glerjörð (Vitrisol) sem ein- kennist af lítið veðruðum sandi (12. mynd). „Arenic“ í alþjóðlega heitinu er dregið af „arena“ á latínu, sem merkir sandur og er notað í mörg- um flokkunarkerfum um sendinn jarðveg. Sandar Íslands eru nokkuð sérstæðir á heimsvísu því þeir eru myndaðir af basískum gosefnum en slíkt er fátítt utan Íslands.34 Sökum eðlis gjóskunnar eru þessir sandar frábrugðnir öðrum söndum með tilliti til jarðvegseiginleika, t.d. sam- anborið við kvarssanda og kalk- sanda. Gjóskan er virkt jarðvegsefni, hefur jónrýmd og vatnsrýmd, sem kvarssandur hefur ekki. Hins vegar skortir hana lífræn efni og þar með skortir einnig mikilvæg næringar- efni fyrir gróður. Yfirleitt er lítið eitt af allófan-leir í sandjörðinni. Margir íslensku sandanna hafa orðið til í miklum flóðum, m.a. jökulhlaupum, og hafa því ein- kenni malarjarðar með lagskipt- ingu. Malarjörðin er að því leyti frábrugðin sandjörðinni að mölin er ráðandi kornastærð í malarjörð- inni (>50% efni > 4 mm). Sand- arnir hafa einnig orðið til við áfok sands yfir annað land og gjósku- fall. Sandurinn er afar misþykkur, sérstaklega í hraunum, þar sem sandurinn getur verið frá fáum sentimetrum upp í marga metra á þykkt á nokkurra ferkílómetra svæði. Þetta veldur erfiðleikum við flokkun hans samkvæmt WRB, sem krefst lágmarksþykktar eld- fjallajarðar (lágmark 30 cm; er þá ýmist eldfjallajörð eða bergjörð) en ekki samkvæmt Soil Taxonomy, þar sem hann flokkast allur til eld- fjallajarðar, óháð þykktinni. Nokkur vandkvæði fylgja notkun þessa heitis (sandjörð). Sandur vísar til ákveðinnar tegundar yfirborðs og einnig kornastærðar, en silt er þó oft meginkornastærð í íslenskum söndum,34 enda þótt það kunni að hljóma einkennilega. Vikurjörð (Pumice Vitrisol) Hreinn vikur hefur sérstæða eigin- leika, m.a. mikið holrými og eigin- leika sem aðgreina vikur frá ann- arri möl. Miðað er við að vikurinn sé >2 mm og ráði í efstu 10 cm jarðvegsins. Vikurjörð er algeng í nágrenni Heklu, á Veiðivatnasvæð- inu, við Öskju og aðrar virkar eld- stöðvar. (3) Mójörð (Histosol) Mójörðin telst ekki til eldfjallajarðar heldur er þetta lífræn mold, og að hluta sömu ættar og mold sem einkennir votlendar og kaldar norðurslóðir svo sem í Rússlandi, Fennóskandíu og Kanada. Þó eru áhrif áfoks og þar með sortueig- inleikar alltaf til staðar að einhverju leyti og gerir það íslenska mójörð sérstaka á heimsvísu. Lífrænu efn- in eru misjafnlega mikið rotnuð, m.a. eftir súrefnisþrýstingi vatns- ins og meðalhita. Mójörð hefur ekki mikla heildar- útbreiðslu, en hana er helst að finna á Vesturlandi, í dölum Vestfjarða (13. mynd) og á Tröllaskaga. Hún hefur lágt sýrustig og lítið af allóf- ani (sjá 5. mynd). Líkt og svartjörð getur mójörðin haldið gríðarlega miklu vatni og miðlað til plantna og hún hefur afar mikla jónrýmd, sem lækkar þó ört með lækkandi sýrustigi. Mójörð hafði áður mun meiri útbreiðslu á forsögulegum tíma, því mjög lífræn lög finnast í víða jarðvegi á nokkru dýpi. Sumt af efniviði þessara mólaga hefur þó myndast á þurrum hlýviðristímum, 13. mynd. Mójörð í Dýrafirði, hvert mólagið ofan á öðru. Þessi jarðvegur er afar súr (pH < 4), enda fjarri virkum uppsprettum áfoks. – Histosol in Dýrafjörður. The soil has many organic horizons, the pH is very low (< 4) and there is much less influence from eolian deposition than in soils closer to active eolian sediment sources. Ljósm./Photo: Ólafur Arnalds. 78 3-4 LOKA.indd 119 11/3/09 8:33:17 AM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.