Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 55

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 55
139 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Rannveig Magnúsdóttir Ránpokadýr í Ástralíu – uppruni og örlög Náttúrufræðingurinn 78 (3–4), bls. 139–146, 2009 Inngangur Í byrjun 16. aldar fundu spænskir landkönnuðir pokadýr í Ameríku sem þeir fluttu með sér heim og sýndu Isabellu Spánardrottningu. Þetta var kvendýr með unga og furðulostin drottningin setti fingur sína í pokann og kannaði innihald- ið.1 Þetta var fyrsta rannsókn sem gerð var á pokadýri og þessi dýr vöktu mikla athygli í vísindaheim- inum. Fyrstu áströlsku spendýrin voru uppgötvuð af portúgölskum og hollenskum landkönnuðum í byrjun 17. aldar og vöktu enn meiri undrun, því þarna höfðu þeir fund- ið heim þar sem pokadýrin réðu ríkjum í öllum sínum stærðum og gerðum. Pokadýr Ástralíu skiptast í fjóra ættbálka; ránpokadýr (kjöt- og skor- dýraætur), pokagreifingja (skordýra- og alætur), jurtaætur og pokamold- vörpur. Flestir kannast við kengúrur og kóalabirni, sem eru sérhæfðar jurtaætur (Diprodontia), en meðal ránpokadýranna (Dasyuromorphia) leynast margar spennandi tegundir sem eru lítt þekktar. Pokadýr eru eitt helsta einkenni Ástralíu og margir halda að þau finnist eingöngu þar en þau er einnig að finna í Nýju- Gíneu, Suður-Ameríku og Norður- Ameríku. Þróunarsaga þeirra er mjög viðburðarík og spannar meira en 125 milljón ár í öllum heims- álfum. Þróun pokadýra Spendýrum er oftast skipt í þrjá undirflokka; legkökudýr, pokadýr Pokadýr eða pokadýrasteingervingar hafa nú fundist í öllum heimsálfum. Núlifandi pokadýr finnast í Ástralíu, á eyjum í Suðaustur-Asíu, í Suður- Ameríku og Norður-Ameríku. Kínaposan er elsti pokadýrasteingervingur- inn en hann er um 125 milljón ára gamall. Talið er að þetta rándýr hafi lifað á ormum og skordýrum og komist um með því að hoppa milli trjágreina. Margar tegundir risapokadýra voru áður til í Ástralíu en þau dóu öll út fyrir um 47 þúsund árum, á svipuðum tíma og maðurinn fluttist þangað. Á meðal þeirra var pokaljónið sem var líklega eitt allra skelfilegasta rán- spendýr sem uppi hefur verið. Pokaljón gátu auðveldlega veitt risavamba sem voru á stærð við nútíma flóðhest. Í Ástralíu leynast ránpokadýr sem fáir vita um, þar á meðal eru pokamerðir, maurapokar og pokaskollar. Þessi dýr eiga það sameiginlegt að þurfa að veiða sér lifandi bráð og mat- seðillinn fer eftir stærð dýranna, frá nokkurra gramma hryggleysingjum til margra kílóa hryggdýra. Ránpokadýr eru af mörgum stærðum og gerðum; minnsta pokamúsin er einungis 4 grömm en pokaskollinn getur orðið 7–8 kíló. Því miður eru mörg þessara dýra í yfirvofandi útrýmingarhættu og helstu ástæður þess eru búsvæðaeyðing og innfluttar ágengar tegundir eins og kanínur, refir og kettir. Ritrýnd grein 1. mynd. Ungur pokaskolli (Sarcophilus harrisii). – A young Tasmanian devil. Ljósm./ Photo: KeresH. 78 3-4 LOKA.indd 139 11/3/09 8:33:37 AM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.