Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 58

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 58
Náttúrufræðingurinn 142 Pokamarðaætt (Dasyudidae) Einstaklingar af pokamarðaætt finn- ast í Ástralíu og Nýju-Gíneu og til ættarinnar teljast 69 núlifandi tegundir af 21 ættkvísl.20,21 Meðal þeirra eru pokaskollar, pokakettir (quolls) og ýmsar stærðir og gerð- ir pokamúsa og pokahreysikatta. Sumar pokamýs (ættkvíslirnar Antechinus, Phascogale og Kaluta) og pokakötturinn Dasyurus hallucatus eiga það sameiginlegt að vera einu spendýrin í heiminum þar sem öll karldýrin í stofninum drepast að loknum fengitíma; þeir ná yfirleitt ekki eins árs aldri. Pokamerðir eru af öllum stærðum og gerðum. Sumir eru örsmáir eins og pokahreysikött- urinn Planigale tenuirostris, sem er eitt minnsta spendýr á jörðinni og vegur einungis 5–9 grömm, en aðrir eru nokkuð stórir, t.d. pokaskollinn (Sarcophilus harrisii) sem verður allt að 8–9 kíló að þyngd. Hér verður fjallað nánar um tvær ólíkar teg- undir pokamarða sem báðar finnast á Tasmaníu. Pokaskollinn er líklega þekktasti pokamörðurinn og fenja- pokamúsin (Antechinus minimus) var viðfangsefni meistaraverkefnis greinarhöfundar. Pokaskolli (Sarcophilus harrisii) Pokaskollinn er stærsta núlifandi ránpokadýrið og á stærð við lítinn hund. Þetta er eini núlifandi fulltrúi ættkvíslarinnar Sarcophilus og nú finnst hann einungis á Tasmaníu. Tegundin var áður útbreidd á megin- landi Ástralíu en varð líklega undir í samkeppninni við dingóhunda eins og pokaúlfurinn. Það er ekki erfitt að ímynda sér af hverju poka- skollinn (einnig kallaður Tasmaníu- djöfullinn) hlaut þessa nafngift (7. mynd). Dýrin eru kolsvört á litinn og fara um á nóttunni. Þegar þau eru í árásarhug eða æst verða eyrun eldrauð og hljóðin í þeim eru „djöful- leg“, sérstaklega þegar þau safnast saman yfir bráð og rífast um bestu bitana. Ekki er þó allt sem sýnist, því í raun eru þetta feimin dýr sem oft verða hundum að bráð.22 Finna má pokaskolla um alla Tasmaníu, meira að segja í úthverf- um, og þessi næturdýr veiða sér aðallega lítil spendýr í matinn. Þeir eru einnig duglegir að finna hræ og geta étið allt að 40% af sinni eigin líkamsþyngd á einni nóttu. Þeir hafa lengi haft það orð á sér að vera dýrbítar, en staðreyndin er sú að þau lömb sem þeir sjást éta hafa yfirleitt drepist af öðrum orsökum. Á fengi- tíma reyna karlarnir að makast við sem flestar kerlur og oft fylgir mikill hamagangur og læti. Kvendýrin geta verið með fjóra unga á spena 6. mynd. Pokaúlfar í dýragarðinum í Hobart, Tasmaníu. Fremra dýrið er kvendýr en það aftara karldýr. Myndin er tekin fyrir árið 1921 af óþekktum ljósmyndara. – A pair of thylacines in Hobart Zoo, Tasmania. Female is in foreground and male in background. The photo is taken prior to 1921 by an unknown photographer. 7. mynd. Heilbrigður pokaskolli (til vinstri) og pokaskolli sýktur af andlitskrabbameini. – A healthy Tasmanian devil (left) and a Tasmanian devil with facial tumour disease. Ljósm./Photos: Wayne McLean, Menna Jones. 78 3-4 LOKA.indd 142 11/3/09 8:33:42 AM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.