Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2009, Page 59

Náttúrufræðingurinn - 2009, Page 59
143 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags í pokanum, sem snýr aftur eins og hjá pokaúlfinum. Ungarnir verða sjálfstæðir eftir 40 vikur og fullvaxta á öðru eða þriðja ári.22 Þrátt fyrir miklar ofsóknir lifðu pokaskollarnir nokkuð góðu lífi á Tasmaníu til ársins 1996 en þá upp- götvaðist andlitskrabbamein með- al þeirra. Krabbameinið lýsir sér þannig að æxli myndast á andliti dýranna og í munni og veldur því að þau eiga erfitt með að éta og er dánarorsök yfirleitt sultur, sýkingar og/eða meinvörp.23 Þetta undarlega krabbamein virðist smitast á milli dýra þegar þau bítast á, sem er al- gengt á fengitíma og þegar tekist er á um mat. Við smit er næstum 100% dánartíðni innan sex mánaða.24 Við rannsóknir á sýktum stofnum hefur komið í ljós að mikil breyting hefur orðið á aldursdreifingu: Fá dýr lifa lengur en tvö ár (heilbrigðir poka- skollar geta orðið allt að sex ára), kynjahlutfall hvolpa sýktra mæðra hefur skekkst (fleiri kvenhvolpar) og dýr verða kynþroska fyrr en áður.25 Á rúmlega tíu árum hefur orðið 70% fækkun í pokaskollastofn- inum. Nú þegar er búið að setja hópa af ósýktum einstaklingum í skjól fyrir sjúkdómnum í von um að unnt verði að sleppa þeim eða afkomendum þeirra aftur út í nátt- úruna þegar hættan er liðin hjá. Einnig hefur verið rætt um að fjarlægja sýkt dýr úr náttúrunni en það hefur ekki verið talinn góður kostur.24 Sem betur fer hefur þessi sjúkdómur fengið verðskuldaða athygli og stuðningshópar og vís- indamenn berjast fyrir því að bjarga þessu einkennisdýri Tasmaníu. Fenjapokamúsin (Antechinus minimus) Fenjapokamúsin (8. mynd) er sjald- gæft rándýr sem finnst einungis á mjög sérstæðum kjarrbúsvæð- um.26 Þessi litlu dýr vega einungis um 40–70 grömm og þau veiða sér aðallega skordýr og aðra hrygg- leysingja til matar. Fenjapokamúsin notar langar klær sínar til að grafa eftir skordýrum og öðrum hrygg- leysingjum í jarðvegi og laufhrúg- um.27 Undirtegundin Antechinus minimus maritimus finnst á Tasmaníu og á eyjum milli Tasmaníu og meg- inlands Ástralíu en undirtegundin Antechinus minimus minimus finnst sunnarlega í fylkjunum Viktoríu og Suður-Ástralíu (9. mynd). Latneska heitið antechinus þýðir „broddgaltar- ígildi“ og minimus þýðir „minnstur“. Í raun er fenjapokamúsin ein stærsta Antechinus-tegundin en ástæða viður- nafnsins er að í upphafi taldist hún til pokakatta (Dasyurus) og var þá minnst af þeim.28 Mökunarferli fenjapokamúsar- innar, eins og annarra pokamúsateg- unda, byrjar nokkrum mánuðum fyrir fengitímann; þá hætta karl- arnir að éta og innri líffærin taka að hrörna29. Bæði kynin eru fjöllynd og karlarnir reyna að makast við eins margar kerlur og þeir geta en gefast að lokum upp, aðframkomnir af hungri, þjakaðir af sníkjudýrum og líffærin hætta að virka. Margir hafa undrast yfir svona fyrirkomulagi en þetta virðist hafa þróast nokkr- um sinnum hjá pokarándýrum í Ástralíu og vísbendingar eru um að svona mökunarkerfi hafi einnig þróast hjá pokadýrum Suður-Am- eríku.30 Lífsferill pokamúsa er í mjög föstum skorðum og tímasetning mökunar og hvenær ungarnir eru á spena passar við árstíðabundnar sveiflur í fæðu.21 Ungar pokamúsa eru lengi á spena og það er ekki hagstætt að eignast afkvæmi nema einu sinni á ári, þegar nóg er af fæðu.30 Hver móðir eignast um átta unga og það er afar orkufrekt 8. mynd. Fullvaxin fenjapokamús, kvendýr (til vinstri) og ungar á spena (til hægri). – Female Swamp Antechinus (left) and pouch young attached to teats (right). Ljósm./ Photos: Rannveig Magnúsdóttir. 9. mynd. Útbreiðsla fenja- pokamúsar í Ástralíu.28 – Distribution of the Swamp Antechinus in Australia.28 78 3-4 LOKA.indd 143 11/3/09 8:33:43 AM

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.