Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 68
Náttúrufræðingurinn
152
Hver var Darwin?
Charles Robert Darwin fæddist árið
1809. Faðir hans var auðugur læknir
og afi hans, Eramus Darwin, var
frægt skáld. var í skóla heima hjá
sér þar til móðir hans lést en hann
var þá átta ára gamall. Þá var hann
sendur í heimavistarskóla í Shrews-
bury. Darwin fékk boðlegar en ekk-
ert sérstakar einkunnir þar. Þegar
hann var 16 ára var hann að ósk
föður síns sendur til Edinborgar að
læra læknisfræði.
Darwin hafði þó meiri áhuga á
veiðum og að safna bjöllum. Skóla-
meistarinn í Edinborgarháskóla var
ekki hrifinn af áhugamálum Darw-
ins og kallaði þau tímasóun. Ekki
var skólameistarinn sá eini sem var
ekki skemmt yfir hegðun Darw-
ins. Faðir hans hafði um það að
segja: ,,Þér er sama um allt nema
skotveiðar, hunda- og rottuveiðar
og þú verður alltaf fjölskyldu þinni
til skammar.“2
Eftir að hafa verið við nám í Edin-
borg í tvö ár var ljóst að Darwin yrði
aldrei læknir. Hann var blóðhrædd-
ur og þoldi ekki að sjá fólk þjást. Því
var hann næst sendur í prestaskóla í
Cambridge.
Í Cambridge kynntist Darwin
manni að nafni John Henslow sem
bauð honum pláss á rannsóknar-
skipinu HMS Beagle árið 1831 (3.
mynd). Darwin sló til og varði
næstu fimm árum um borð í HMS
Beagle, sem kortlagði strendur
Suður-Ameríku (4. mynd). Darwin
sendi þúsundir sýna til vinar síns
Henslow og fyllti margar bækur
með glósum um það sem fyrir
augu hans bar. Sendingar Darwins
vöktu athygli meðal náttúrufræð-
inga heima í Bretlandi og Darwin
varð viðurkenndur sem nákvæm-
ur og góður vísindamaður. Ferð
Darwins var ævintýri sem entist
honum alla ævi, hann uppgötvaði
höfrungategund (sem hann nefndi
eftir skipherra ferðarinnar og káetu-
félaga sínum Dolphinus fitzroyi),
hann fann mikið safn af steingerv-
ingum, vann að jarðfræðirannsókn-
um í Andesfjöllum, lifði af stóran
jarðskjálfta í Chile og setti fram
kenningu um myndun kóralrifja, en
hann taldi að myndun þeirra tæki
að minnsta kosti milljón ár.
Eftir að hann kom til baka úr ferð-
inni eyddi hann tíu árum í að flokka
og vinna úr öllum gögnunum sem
hann safnaði á ferð sinni, hann
yfirgaf England aldrei aftur.2 Hann
hafði haldið dagbók sem orðin var
770 blaðsíður á lengd. Á einhverjum
tímapunkti fór hann að hugsa um
uppruna tegunda. Fyrsta glósubók-
in varðandi uppruna tegunda er
frá 1837. Hann skrifaði uppkast að
kenningunni árið 1842 sem var 230
blaðsíður.2
Einnig ákvað Darwin að hann
ætlaði ekki að verða piparsveinn
og því réðist hann í það verk að
finna sér kvonfang. Frænka hans,
Emma Wedgewood, varð fyrir val-
inu (5. mynd). Hún var að sögn góð
húsmóðir og afar trúuð. Hún ásamt
karli föður hans gerðu Darwin það
kleift að stunda rannsóknarstörf sín
af miklum krafti. Darwin var hepp-
inn að eiga ríkan föður því hann
gat þá helgað líf sitt rannsóknar-
störfum sem ekki var algengt á
þessum tíma.
Á árunum milli 1842 og 1857
brallaði Darwin ýmislegt, hann
átti tíu börn og skrifaði gríðarlega
langt fjögurra verka rit um hrúð-
urkarla.2,b Darwin gekk þó ekki
heill til skógar því mestalla ævi
eftir að hann kom úr svaðilförinni
um suðurhöf þjáðist hann af dul-
arfullum sjúkdómi. Sumir telja að
heilsuleysi hans hafi orsakast af
hugarkvölum sem hann leið vegna
þess að hann vildi alls ekki særa
konu sína og góðvini, sem voru
mjög kristin og kenningar hans í
þeirra augum voru villutrú. Aðrir
2. mynd. Darwin sjö ára gamall (1816), ári
áður en móðir hans lést. Þarna er hann með
blómapott í hendi af einhverjum ástæðum.
3. mynd. Darwin varði fimm árum um borð í herskipinu HMS Beagle í rannsóknar-
leiðangri sínum á árunum 1831 til 1835.
b Darwin sagði að þeim skrifum loknum að hann hataði hrúðurkarla meira en nokkur annar maður, skiljanlega.2
78 3-4 LOKA.indd 152 11/3/09 8:33:46 AM