Náttúrufræðingurinn - 2009, Side 69
153
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
telja þó að hann hafi verið með ein-
hvern óþekktan hitabeltissjúkdóm
sem hann hafi náð sér í á ferð sinni
með HMS Beagle.3
Ekki er víst að Darwin hefði
gefið neitt út um uppruna tegunda
nema fyrir það að maður að nafni
Alfred Russell Wallace sendi honum
bréf í byrjun sumars árið 1858 þar
sem hann setti fram mjög svipaða
kenningu og Darwin sjálfur hafði
sett fram tuttugu árum fyrr. Darwin
var nú gripinn miklu hugarangri; ef
hann myndi gefa út kenningu sína
nú yrði hann sakaður um að stela
kenningu þessa unga, efnilega vís-
indamanns, en ef hann gerði ekkert
og Wallace gæfi út kenningu sína
væri allt verk Darwins farið í súginn.
Hann leitaði ráða hjá vinum sínum,
Thomas Henry Huxley og Charles
Lyell, og úr varð að kenning Wallace
og Darwins voru kynntar saman.
Og Darwin ákvað að gefa út stuttan
útdrátt um þróunarkenningu sína
til að tryggja það að enginn myndi
fá heiðurinn annar en hann.3
Whitewill Elwin, bókagagnrýn-
andi fyrir Quarterly Review, var ekki
spenntari en svo fyrir útgáfu þess-
arar bókar að hann ráðlagði Darwin
að skrifa frekar bók um dúfur. Sem
betur fer lét Darwin það sem vind
um eyru þjóta.2
Þessi stutti útdráttur nefndist
Uppruni tegundanna. Bókin sló um-
svifalaust í gegn og seldist fyrsta
upplagið upp á einum degi.c Upp
hófust gríðarlegar deilur í vís-
indaheiminum um þýðingu kenn-
ingarinnar fyrir uppruna mannsins.
Vinir Darwins, Huxley og Joseph
Hooker, vörðu kenningu Darw-
ins fyrir umheiminum á meðan
Darwin vann rannsóknarstörf á
sveitasetri sínu. Þessir vinir Darw-
ins voru gríðarlega harðir í horn
að taka og Huxley var kallaður
,,Bolabítur Darwins“.d Það má segja
að deilurnar hafi náð hápunkti
árið 1860 þegar Samuel Wilber-
force biskup og Huxley rökræddu
í Oxford um þróunarkenninguna.
Wilberforce spurði Huxley hvort
hann vildi fremur að apatengslin
væru í móður- eða föðurætt. Hux-
ley svaraði að bragði að hann vildi
fremur vera kominn af apa heldur
c Fyrsta upplag var þó aðeins 1.250 eintök, en gott á fyrsta degi engu að síður.
d Hann kallaði sig reyndar sjálfur því nafni. Hann sagði við Henry Osbourne, nemanda við Harvard um miðjan áttunda áratug 19. aldar, að hann hefði
alltaf verið bolabítur Darwins og þyrfti að gæta hans. Charles Blinderman og David Joyce: The Huxley file http://aleph0.clarku.edu/huxley/guide4.
html. Skoðað 7.12.2008.
5. mynd. Emma Wedgewood, eiginkona
Darwins.
4. mynd. Leiðin sem Darwin fór með HMS Beagle.
en vel gefnum manni sem notaði
gáfur sínar til að fela sannleikann
(6. mynd).3
Darwin eyddi seinni árum ævi
sinnar á sveitasetri sínu. Hann varði
ótrúlegum tíma í að rannsaka fugla-
drit til að komast að því hvernig
fræ bærust milli landa. Hann skrif-
aði bók um eitt aðaláhugamál sitt,
ánamaðka og mikilvægi þeirra fyrir
jarðveginn.
78 3-4 LOKA.indd 153 11/3/09 8:33:47 AM