Náttúrufræðingurinn - 2009, Page 70
Náttúrufræðingurinn
154
Þróunarkenningin
Darwin sagði sjálfur um upphaf
þróunarkenningar sinnar þetta:
,,Í október 1838, það er fimmtán
mánuðum eftir að ég hóf kerfis-
bundna rannsókn mína, vildi svo
til að ég las mér til skemmtunar
bók [Thomas Robert] Malthusar
um Fólksfjöldann. Ég var vel undir
það búinn að gera mér grein fyrir
lífsbaráttunni sem fer fram hvar
sem er, því að ég hafði gert sleitu-
lausar athuganir á venjum dýra
og jurta. Mér flaug því strax í hug
að við þessar aðstæður mundu
hagstæðar breytingar á lífverum
haldast en óhagstæðar breytingar
mundu líða undir lok.“4
Þar sem lífverur eru fjölbreyti-
legar þá verða óhjákvæmilega til
lífverur sem hæfari eru til búsetu í
tilteknu umhverfi heldur en aðrar
lífverur sömu tegundar. Þær lífverur,
sem búa að heppilegum eiginleik-
um í tilteknu umhverfi, eignast fleiri
afkvæmi heldur en lífverur sem
búa að óheppilegum eiginleikum í
tilteknu umhverfi. Á löngum tíma
mun því stofn þessara lífvera breyt-
ast og aðlagast umhverfi sínu. Því
má segja að náttúran gangi til verka
eins og bóndi sem ætíð setur bestu
sauðkindurnar sínar á og smám
saman verður fjárstofn hans betri.
Darwin gerði sér grein fyrir því að
stofnum lífvera fjölgaði ævinlega
svo mikið að barátta yrði um fæðu
og lífsrými. Því myndi fjölbreytileiki
innan tegundar hafa áhrif á hver
kæmist af og hver ekki. Því byggir
náttúruval á þremur stoðum.5
1. Allar lífverur eru fjölbreytilegar.
2. Breytileiki erfist milli kynslóða.
3. Lífverur eiga mismörg afkvæmi.
Í bókinni Uppruni tegundanna eru
í raun tvö meginatriði, þau eru nátt-
úruval og þróun lífsins. Það seinna
fjallar um hvernig sumar dýrateg-
undir deyja út og sumar breytast og
enn aðrar standa í stað. Fyrra atriðið
er ferli sem útskýrir hvernig þessi
þróun gæti átt sér stað. Kenningin
er afar vel rökstudd og full af vel
unnum og nákvæmum gögnum
sem studdu kenningu hans.6
Í efnisyfirliti bókarinnar kemur
ágætlega fram hversu fjölbreytt
þessi rök eru: Gögn um kynbóta-
starf manna með húsdýr og plöntur
í fyrsta kaflanum. Gögn um út-
breiðslu dýrategunda í mismun-
andi heimsálfum. Hann kemur með
dæmi um steingervinga til að sanna
að til hafi verið lífverur frábrugðnar
þeim sem lifðu í dag. Gögn um mis-
munandi skeið í jarðsögunni.
Þetta er aðeins hluti af rökunum
sem Darwin notfærði sér við að
sýna fram á kenningu sína. Bók
hans er þannig upp byggð að gögn-
in falla saman í eina ljúfa heild, eins
og púsluspil. Í niðurlagi bókarinnar
segir Darwin:
,,Það er forvitnilegt að gera sér í
hugarlund árbakka með flóknum
gróðri af mörgum tegundum þar
sem fuglar syngja í runnum, marg-
vísleg skordýr þjóta um loftið og
maðkar skríða um raka jörðina –
og hugleiða síðan að allar þessar
hugvitssamlegu gerðu myndir
lífsins, sem eru svo ólíkar en jafn-
framt háðar hver annarri með svo
flóknum hætti, skuli allar hafa
orðið til samkvæmt lögmálum
sem eru að verki allt í kringum
okkur.
Í víðasta skilningi eru þessi lög-
mál: vöxtur ásamt æxlun; erfðir
sem leiðir af æxlun; breytileiki
fyrir beinan og óbeinan tilverkn-
að ytri lífsskilyrða og vegna þess
hvað er notað og hvað ekki; fjölg-
unarhlutfall sem er svo hátt að
það leiðir til lífsbaráttu og þess
vegna til úrvals náttúrunnar sem
hefur í för með sér sundurleitni í
eðli og útdauða þeirra lífgerða
sem taka ekki framförum. Styrj-
öld náttúrunnar, hungursneyð og
dauði, leiðir þannig beint af sér
æðsta fyrirbærið sem við getum
hugsað okkur: æðri dýr verða til.
Það er tign yfir þessari lífssýn
þar sem lífið er undirorpið ýmsum
öflum en lífsandinn hefur í önd-
verðu bærst í örfáum myndum
eða aðeins einni. Og, meðan jörð-
in hefur haldið áfram hringsóli
sínu samkvæmt hinu óbreytan-
lega lögmáli þyngdarinnar, hefur
svo einfalt og óbrotið upphaf leitt
af sér ótal myndir, bæði frábær-
lega fagrar og undraverðar – og
þessi þróun heldur enn áfram.“4
Í þessum málsgreinum kemur
bersýnilega fram ást Darwins á nátt-
úrunni og áhuginn sem hann hafði
á lífinu.
Áhrif Darwins
Það fyrsta sem við þurfum að gera
til að skilja hvernig Darwin breytti
sýn manna á heiminn er að kanna í
hvernig heim hann fæddist. Darwin
var maður sinna tíma, með sín við-
horf, sín gildi, og þurfti því fyrst að
breyta sinni eigin hugsun áður en
hann gat ráðist í það verk í að breyta
viðhorfum mannkynsins.
Heimur gærdagsins
Þegar Charles Darwin fæddist 1809,
sama dag og Abraham Lincoln, var
heimurinn afar frábrugðinn því sem
hann er í dag. Orrustan um Waterloo
átti sér stað sex árum síðar og batt
enda á útþensluskeið Frakklands.
Kaþólska kirkjan hafði aldrei verið
áhrifaminni og Vestur-Evrópa var
smám saman að breytast úr bænda-
samfélagi í nútíma skipulag. Kol,
járn og stál voru að sigra heiminn og
verksmiðjur tóku við af verkstæð-
um handverksmanna. Heimurinn
lét hráefni og mat í skiptum fyrir
fjöldaframleiddar vörur iðnríkjanna.
Þó voru seglskip og hestar helsti
6. mynd. Huxley vildi fremur vera kominn
af apa heldur en manni sem notaði gáfur
sínar til að koma í veg fyrir að sannleikurinn
kæmi fram.
78 3-4 LOKA.indd 154 11/3/09 8:33:47 AM