Náttúrufræðingurinn - 2009, Qupperneq 73
157
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
hana var lag af vatni, svo lag af lofti
og svo rétt undir tunglinu var lag af
eldi. Stjörnur og plánetur voru gerð-
ar úr svokölluðu fimmta frumefni
og þær voru kristallaðir hnettir sem
voru á föstum sporbaug í kringum
jörðina. Utan um allt þetta var svo
himnaríki og helvíti undir fótum
manna.g Það gefur augaleið að það
er umtalsvert þægilegra að búa á
þessari jörð heldur en á jörð sem er
einhver afkimi í óendanlega stórum
alheimi.
Sérréttindastaða mannsins sem
miðpunkts alheimsins var í hættu.
En þrátt fyrir að Isaac Newton
og Kóperníkus hafi feykt Guði
af himnum þá var ekki nokkur
minnsti vafi í hugum fólks að Guð
væri skapari alls. Það lá í augum
uppi – hver annar hafði hannað
þessar fjölbreyttu og merkilegu
lífverur? Öllum „af hverju“-spurn-
ingum var hægt að svara að lok-
um með tilvísun í guðlega for-
sjón. Heimspekingurinn Friedrich
Nietzsche var svo sannfærður að
hann lýsti Guð látinn í frægu riti
undir lok 19. aldarinnar.
Darwin minnkaði mannskepn-
una enn frekar með tilliti til heimsins,
allt í einu var aldur jarðarinnar ekki
lengur 6.000 ár. Aldur lífsins var
mældur í mörg hundruð milljónum
ára og í dag er hann talinn vera 3,5
milljarðar ára. Það er mikið hærri
tala en maður getur gert sér í hugar-
lund. Menn höfðu alist upp við að
Guð væri yfir sköpunarverkinu og
þeir mættu nota það eftir eigin hent-
ugleikum. En þegar í ljós kom að við
erum aðeins neðanmálsgrein í sögu
lífsins, aðeins örfáar sekúndur úr
hinum langa degi lífsins, eru mikið
af spurningum sem þarf að svara. Til
dæmis spurningum um rétt manna
til að undirroka lífverur jarðarinn-
ar. Er hin aumi maðkur eitthvað
réttindaminni heldur en maðurinn
með sitt þróaða taugakerfi? Þessum
spurningum hefur ekki verið svarað
enn þann dag í dag.
Áhrif Darwins á
félagsvísindi
Það voru þjóðhagfræðingar sem
tóku upp á því fyrstir að rannsaka
samfélög manna með smásjá. Rann-
sóknir Malthusar á fólksfjölda voru
meðal þess fyrsta sem kom út úr
því.
Hagfræðingar voru þeir fyrstu
sem höfðu einhverskonar ,,lífræna“
sýn á samfélagið, þeir töldu sam-
félög þróast og breytast með tím-
anum.
Herbert Spencer var hagfræðing-
ur og heimspekingur sem setti fram
hina frægu setningu, hinir hæfustu
lifa af.
Í Englandi á 19. öld voru kjör-
aðstæður fyrir einhverskonar félags-
lega kenningu sem tæki mið af
kenningum Darwins um náttúruval.
Herbert Spencer leit svo á að ekki
ætti að taka fram fyrir hendurnar
á þróuninni með því að koma í
veg fyrir samkeppni. Það ætti að
leyfa hinum ,,hæfustu“ að komast
á toppinn, þar sem þeir væru þeir
gáfuðustu, og leyfa þeim ,,veik-
ustu“ að vera á botninum þar sem
þeir ættu ekki skilið að vera annars
staðar. Svona hugarfar hefur alltaf
verið til og er kallað ,,félagslegur
darwinismi“. Síðustu áratugir 20.
aldarinnar voru miklir uppgangs-
tímar fyrir einstaklingshyggju í ætt
við félagslegan darwinisma.h
En það voru fleiri en bara félags-
legir darwinistar sem fundu rétt-
lætingu í skrifum Darwins á sínum
stefnum. Sósíalistar fundu í darw-
inisma stuðning við tortryggni sína
gagnvart trúarbrögðum og trú sína
á að breyting væri óumflýjanleg.
Sumir fundu einnig beinan stuðn-
ing við sósíalíska hugmyndafræði í
Darwin, þeir sögðu að hin hæfustu
samfélög myndu lifa af og stéttabar-
átta myndi veikja samfélög í baráttu
sinni við önnur. Því þyrfti að afnema
stéttaskiptingu og vinna saman
óeigingjarnt til að vinna baráttuna
við önnur samfélög. Karl Marx sjálf-
ur var afar hrifinn af kenningum
Darwins og raunar svo hrifinn að
hann sendi Darwin áritað eintak af
riti sínu Auðmagnið. Fátt bendir þó
til að Darwin hafi lesið það, þar sem
það var á þýsku og Darwin var ekki
sérlega sleipur í henni. Marx hafði
þetta að segja um bókina Uppruni
tegundanna í bréfi til Engels árið
1862: ,,Það er athyglisvert hvernig
Darwin fann í dýrum merkurinnar
hið enska samfélag, með verkaskipt-
ingu, samkeppni, nýjum mörkuðum,
uppfinningum og malthusískri bar-
áttu við að lifa af.“i
Einnig fundu fleiri stjórnmála-
stefnur hæli hjá Darwin. Peter Kro-
potkinj lagði meiri áherslu á það
að manngæska og samhjálp væri
komin til vegna þróunar mannsins
og því bæri að leggja rækt við þessar
dyggðir þar sem þær væru leiðir til
betra samfélags.17
Merkilegt verður að teljast að
bæði friðarsinnar og hernaðarsinn-
ar fundu rök fyrir sinni stefnu í
Darwin. Sumir töldu að náttúran
notaði stríð til að grisja mannkynið,
flokka þá veiku út og drepa þá. Sýn
hernaðarsinna á stríð breyttist þó
eftir fyrri heimsstyrjöld þegar hinir
veiku voru skildir eftir heima þar
sem þeir voru ekki hæfir til hern-
aðar og heilum kynslóðum heil-
brigðra ungra manna var slátrað í
skotgröfunum.
Friðarsinnar fundu þó einnig efni
í darwinisma, bentu á það að blóð-
ug átök væru mjög sjaldgæf milli
einstaklinga eigin tegundar og vís-
uðu í félagslega hegðun á borð við
gáfur, hugrekki, fórnfýsi og kærleik
í skepnum. Einnig vitnuðu þeir í
Darwin sjálfan sem var ekki hrifinn
af herþjónustu og stríði; herþjónusta
kæmi í veg fyrir að heilbrigðir ungir
menn myndu fjölga sér á besta aldri
og stríð væri líklegt til að fækka
hinum heilbrigðu ungu mönnum
umtalsvert.17
g Reyndar var það Dante Alighieri sem skilgreindi helvíti svona vel í skemmtiriti sínu Hinn guðdómlegi gleðileikur (La divina commedia). Hann taldi að sálin
væri gerð úr þessu fimmta frumefni og leitaði því upp til himna, en líkaminn leitaði niður til helvítis.15
h Það er að segja einstaklingshyggju eins og Milton Friedman boðaði í riti sínu, Capitalism and Freedom, árið 1962.16
i http://www.marxists.org/archive/marx/works/1862/letters/62_06_18.htm. Skoðað 7. nóvember 2008.
j Peter Kropotkin var rússneskur landfræðingur, dýrafræðingur og anarkisti, fæddur 1842.
78 3-4 LOKA.indd 157 11/3/09 8:33:49 AM