Gerðir kirkjuþings - 1998, Page 112
1998
30. KIRKJUÞING
4. mál
Ef um er að ræða samþykktir um kenningarleg málefiii, guðsþjónustuhald, helgisiði,
skím, fermingu eða altarissakramenti þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða, enda hafi
prestastefna fjallað um þau og samþykkt.
Afgreiðsla mála á kirkjuþingi er því aðeins gild að 2/3 hlutar kirkjuþingsmanna séu á
fundi.
Atkvæðagreiðsla fer frarn á þann hátt, að kirkjuþingsmaður réttir upp hönd, en
nafnakall eða skriflega atkvæðagreiðslu má viðhafa, ef þess er óskað, og forseti getur
endurtekið atkvæðagreiðslu ef óglögg þykir. Lýsir forseti úrslitum.
Avallt skulu liggja fyrir hæfilega margir nafnalistar þingmanna.
Fundarsókn,
26. gr.
Skylt er kirkjuþingsmönnum að sækja alla boðaða fundi þingsins, nema nauðsyn
banni eða leyfi forseta komi til.
Aðgangur áheyrenda.
27. gr.
Aheyrendum er heimill aðgangur ef húsrúm leyfir, nema öðruvísi sé ákveðið af
kirkjuþingi.
Agavald forseta.
28. gr.
Öllum kirkjuþingsmönnum, svo og áheyrendum, er skylt að hlíta valdi forseta og
settum reglum. Forseti má beita vítum, ef fulla nauðsyn ber til.
Afbrigði. Breytingar á þingsköpum.
29. gr.
Veita má afbrigði frá þingsköpum þessum er 2/3 greiddra atkvæða koma til, enda séu
2/3 kirkjuþingsmanna á fundi.
Þingsköpum kirkjuþings verður ekki breytt nema 2/3 greiddra atkvæða komi til enda
séu 2/3 kirkjuþingsmanna á fundi.
Störf nýkjörins kirkjuþings.
30. gr.
Biskup Islands setur fyrsta kirkjuþing og stýrir þinginu á fýrsta fundi eftir
kirkjuþingskjör, uns forseti hefur verið kosinn, sbr. 32. gr. Hefur hann öll sömu
réttindi og ber sömu skyldur og kjörinn forseti.
31. gr.
I upphafi fyrsta fundar eftir kirkjuþingskjör skal kjósa kjörbréfanefhd, sbr. 18. gr. Að
loknum störfum kýs nefhdin úr sínum hópi ffamsögumann sem gerir þinginu grein
fýrir áliti og tillögum hennar um afgreiðslu kjörbréfa. Fresta skal þingfundi meðan á
athugun kjörbréfa stendur. Að lokinni rannsókn kjörbréfa skal fundi fram haldið og
koma þau þá til afgreiðslu þingsins.
107