Gerðir kirkjuþings - 1998, Side 280
Fylgiskjal nr. 3.
Frásðgn af fundi nefnda ríkis og kirkju um kirkjujarðir
í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 10. janúar 1997.
Mættir eru af hálfú ríkisins Þorsteinn Geirsson, Halldór Amason, Sveinbjöm Dagfinnsson,
Hjalti Zóphóníasson og Stefán Eiríksson. Af hálfu kirkjunnar em mættir Þorbjöm Hlynur
Amason, Þórir Stephensen og Halldór Gunnarsson.
Þorsteinn Geirsson setti fundinn. Fyrir fundinum liggja eftirfarandi drög að samkomulagi:
Islenska ríkið og þjóðkirkjan gera með sér eftirfarandi
samkomulag
um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar:
1. gr.
Kirkjujarðir og aðrar kirkjueignir sem þeim fylgja, að frátöldum prestssetmm og því sem
þeim fylgir, em eign íslenska ríkisins. Andvirði seldra jarða rennur í ríkissjóð. Umsýsla og ráð-
stöfun umræddra eigna fer eftir gildandi lögum á hveijum tíma.
2. gr.
íslenska rikið skuldbindur sig til þess, á þeim grundvelli sem að framan greinir, að greiða
laun presta þjóðkirkjunnar og starfsmanna biskupsembættisins. Þá skuldbindur ríkið sig til að
setja reglur um umgengni á kirkjustöðum.
3. gr.
1. Ríkissjóður greiði laun:
a. Biskups Islands og vígslubiskupa.
b. 138 starfandi presta og prófasta þjóðkirkjunnar. i
c. 18 starfsmanna biskupsembættisins.
2. Fjölgi skráðum meðlimum þjóðkirkjunnar um 5.000 miðað við íbúaskrá þjóðskrár 1. des-
ember 1996 skuldbindur ríkið sig til að greiða laun 1 prests til viðbótar því sem greinir í b-lið
1. mgr. Sama á við um frekari fjölgun. Fækki skráðum meðlimum þjóðkirkjunnar um 5.000
miðað við íbúaskrá þjóðskrár 1. desember 1996 lækkar talan í b-lið 1. mgr. um 1. Sama á við
um frekari fækkun.
3. Fjölgi prestum um 10, sbr. það sem greinir í 1. mgr., skuldbindur ríkið sig til að greiða laun 1
starfsmanns biskupsstofu til viðbótar því sem greinir í c-lið 1. mgr. Sama á við um ffekari
fjölgun. Fækki prestum um 10, sbr. það sem greinir í 2. mgr., lækkar talan í c-lið 1. mgr. um
1. Sama á við um frekari fækkun.
4. Um ráðningar þeirra sem nefndir eru í 1. mgr. fer eftir gildandi lögum á hverjum tíma.
5. Um greiðslu launa til framangreindra starfsmanna þjóðkirkjunnar fer eftir lögum um Kjara-
dóm og kjaranefnd, nr. 120/1992, með áorðnum bre>tingum, eða lögum um kjarasamninga
opinberra starfsmanna, nr. 94/1986, með áorðnum breytingum, eftir því sem við getur átt.
6. Greiðslur til kristnisjóðs vegna seldra kirkjujarða falla niður. Þó skal ríkissjóður greiða ár-
lega, næstu 8 ár, upphæð er svarar til fastra árslauna 1 sóknarprests.
7