Gerðir kirkjuþings - 2001, Page 69

Gerðir kirkjuþings - 2001, Page 69
endurgjaldi eins og að framan er rakið, tók smátt og smátt að sér að tryggja með ákveðnum hætti rekstur embætta og yfirstjómar kirkjunnar í stað þess að arður og tekjur af eignum kirkjunnar stæðu undir þeim rekstri. Full ástæða er því til að skoða þann möguleika að binda endurgjald til þessara sjóða með tvíhliða samningi með íjárhagsskuldbindingu af hálfu ríkisins á móti eignaafhendingu af hálfu Þjóðkirkjunnar með ákveðinni álagsgreiðslu árlega til kirkjunnar. Virðist eðlilegast að endurgjald ríkisins renni til kirkjumálasjóðs. Þá verður að leggja sérstaka áherslu á, í ljósi reynslunnar, að þannig verði samið að framsetning á ijárlögum sýni raunverulegt eðli greiðslna (endurgjalds) ríkisins til kirkjunnar en ekki að þær líti út eins og venjuleg fjárheimild á fjárlögum, eins og verið hefur undanfarin ár. Þann 4. september 1998 gerði íslenska ríkið og Þjóðkirkjan samning sín á milli á grundvelli kirkjujarðasamkomulagsins frá 10. janúar 1997. I 3. gr. samningsins er ákveðið að ríkið greiði árlegan rekstrarkostnað prestembætta og prófasta og annan kostnað en laun, sem tilgreindur sé í úrskurði kjaranefndar og miðað við kr. 89.5 milljónir árlega. Rökstyðja má að þessi rekstrarkostnaður embættanna, einkum aksturskostnaður sé of lágt metinn, sem þyrfti að bæta á móti afsali eigna. í 5. gr. er kveðið á um að kr. 30 milljónir séu greiddar til reksturs Biskupsstofu og vegna embætta Biskups íslands og tveggja vígslubiskupa, ferðir, dagpeninga, utanferða, þ.e.a.s. alls rekstrarkostnaðar Biskupsstofu og biskupanna. Það má einnig rökstyðja að það sé allt of lágt framlag og þyrfti einnig að bæta. Þá er rétt að víkja stuttlega að Prestsmötunni, sem fylgdi prestssetrunum. Hún var tekjur presta af kirkjueignum, einnig eignum bændakirkna allt frá fornu fari sjá t.d. Alþingissamþykkt 1. júlí 1629, sem hélst áfram í 5. gr. laga um laun presta nr. 46/1907, allt til laga nr. 54/1921, sem heimilaði sölu prestsmötunnar, þar sem söluandvirðið átti að renna til kirkju þess prestakalls, sem naut hennar. Þetta gekk ekki eftir. Lög um embættiskostnað sóknarpresta m. 36/1931 komu að nokkru leyti á móti afnárni prestsmötunnar og áttu að tryggja prestinum tekjur til að geta mætt lágmarks embættiskostnaði. Þegar prestsmatan var endanlega felld niður með lögum nr. 15/1942 lá ekki fyrir hversu mikið hafði verið selt. og hve mikið var selt. Fyrir lá, sbr. fylgiskjal 5, bls. 56 - 57, að í það minnsta vantaði upphæð, sem samsvaraði grunnlaunum 7 til 8 presta. Þetta þyrfti einnig að bæta með aukinni fjárhagsskuldbindingu ríkisins til Þjóðkirkjunnar. Staða vígslubiskups á Hólum er með öðrum hætti en vígslubiskupsins í Skálholti og biskups íslands. Hann situr í prestssetri sem er án jarðnæðis. Biskup íslands og vígslubiskupinn í Skálholti hafa embættisbústað. Embætti vígslubiskups á Hólum, sem var einnig embætti sóknarprests, var breytt með starfsreglum á Kirkjuþingi árið 2000 þannig að hann gegnir nú aðeins embætti vígslubiskups. Þegar tekið var upp prestssetur á Hólum voru gefin fyrirheiti um jarðnæði o. fl. sem ekki hafa verið efnd. Því væri eðlilegt að líta til þess, að breyting verði hér á, t.d. í líkingu við það, sem gert var varðandi Skálholt með aukinni ijárhagsskuldbindingu ríkissjóðs. Staða Skálholts sem sjálfstæðrar eignar Þjóðkirkjunnar var fest með lögum nr. 32/1963 með ákvæði um árlegt framlag til staðarins, kr. 1 milljón, en sú ijárhæð hefur ekki fylgt verðlagsvísitölu í árlegri greiðslu til staðarins. Eins og fyrr segir hefur umsjá prestssetra verið á hendi dóms - og kirkjumálaráðherra allt fram til 1. janúar 1994 er prestssetrasjóður tók við umsýslunni. Astand prestssetra var almennt mjög lélegt þegar prestssetrasjóður tók við umsýslu þeirra og sum þeirra algerlega óíbúðarhæf. Mörg óleyst mál voru - og eru - til staðar sem varða réttindi prestssetranna t.d. landamerkjamál. Skuldbindingar hafa fallið á prestssetur sem binda prestssetrasjóð í dag og hafa leitt til mikilla viðbótarútgjalda. 65
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.