Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007
Fréttir DV
ÞETTA HELST
ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST
FÁ EKKI RAÐGREIÐSLUR
Innflytjendur án íslensks
ríkisborgararéttar fá ekki
notið raðgreiðslna hjá
kreditkortafyrirtækjun-
um. Fyrirtækin hafa geflð
kaupmönnum fyrirmæli um að
hafna raðgreiðsluviðskiptum
við útlendinga vegna þess að of
margir hafi yfirgefið landið og
skilið eftir sig skuldahala. Predrag
Móraca, innflytjandi frá Serbíu og
íslenskur ríkisborgari, skiltrr ekki
hvers vegna verið sé að refsa fyr-
irmyndarborgurum með þessum
hætti. „Konan mín einfaldlega
trúði ekki sínum eigin eyrum. Ég vil vita hverjum datt í hug þessi út-
færsla því ég fatta ekki hvernig þetta er hægt allt í einu og margir vinir
mínir eru furðu lostnir. Hvað er næst og hversu langt verður gengið?"
sagði Móraca í viðtali við DV.
í 3M3
FRJALSLYNDIR STYÐJA
ÞJÓÐKIRKJUNA
Ð
Frjálslyndi flokkurinn er
að hverfa ffá þeirri stefhu
sinni að aðskílja beri ríki og
kirkju. I Málefnahandbók
Frjálslynda flokksins, sem
geíin var út nú fyrir alþing-
iskosningar, segir að aðskiljaberi
ríki og ldrkju. Nú virðist annað
hljóð komið í sttokkinn. „Ég hugsa
að stefnan sé að breytast varðandi
afstöðu til Þjóðkirkjunnar" sagði
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
maðurFrjálslynda flokksins, í
samtali við DV. Magnús Þór Haf-
steinsson, varaformaður Frjáls-
lynda flokksins, tekur í sama
streng og telur að endurskoða
þiurfl áherslur flokksins. „Ég geri ráð fyrir að á næsta
landsþingi verði tekið fyrir hvort breyta skuli stefnuskránni. Það er með
þennan flokk eins og aðra, steftiumálin eru alltaf til skoðunar," sagði
hann.
vage X 4,6
fjarstýrður torfœru trukkur.
Öflugasta útgáfan til þessa.
ómsTunafíHúsiD
FARBANNIÐ HELDUR EKKI
Það sem af er þessu ári
hafa fimm sakborningar
flúið land og rofið far-
bann. Eftirliti með erlend-
um sakborningum hér
á landi er mjög ábótavant
og með stækkandi Schengen-
svæði verður það alltaf auðveldara
að yfirgefa landið. Nauðgarar,
ofbeldismenn og þjófar hafa komist
óhindrað úr landi. I síðustu viku
mætti Nathaniel David Taylor ekki
fyrir dómara vegna alvarlegrar
líkamsárásar. Hann rauf farbann í
sumar og flúði af landinu. Þá hafa
tveir Pólverjar, sem úrskurðaðir
voru í farbann grunaðir um grófa
nauðgun á Selfossi, flúið réttvísina og landið.
Nethyl 2, sími 5870600,
www.tomstundahusid.is
HITTMALIÐ
Brynjólfur Árnason, sveitarstjóri Grímseyjar-
hrepps, er grunaður um að hafa keypt hæðarmæli fyrir 290 þús-
und krónur sem hann skrifaði á hreppstjórann. Þetta er aðeins
brot af því fjármálamisferli og skjalafalsi sem Brynjólfur er grun-
aður um. Brynjólfi hefur verið boðið að segja af sér embætti sveit-
arstjóra en hann hefur ekki viljað gera það.
Grímsey Brynjólfui hefur ekki viljað
segja af sér embætti þótt lionum hafi
staðið það til boða.
SKRIFAÐI
HÆÐARMÆLI
A HREPPSTJÓRANN
EINAB ÞOB SI6URÐSS0N
blaðamcidur skrifar
1
Brynjólfur Amason, sveitarstjóri
Grímseyjarhrepps, keypti samkvæmt
heimildum DV hæðarmæli fyrir 290
þúsund krónur. Brynjólfur lét það líta
þannig út að mælirinn væri keyptur
fyrir Bjarna Magnússon, hreppstjóra
í Grímsey. Þær upplýsingar komu
ffam á nótu sem fylgdi mælinum.
Bjarni kom hins vegar hvergi nærri
kaupum á mælinum.
Þetta er aðeins brot af því fjár-
málamisferli og skjalafalsi sem
Brynjólfur er grunaður um. Sveitar-
stjórnarmenn ásamt endurskoðend-
um hafa rannsakað gögn hreppsins
undanfarnar vikur. Síðan rannsókn
hófst hefur margt misjafnt komið í
ljós í fjármálum hreppsins sem rekja
má til Brynjólfs.
Notaður í Reykjavík
Samkvæmt heimildum DV nutu
einstaklingar tengdir Brynjólfi í
Reykjavík góðs af hæðarmælinum.
Þegar mælirinn var keyptur skrifaði
hann nafn hreppstjórans á nótuna
sem fylgdi með mælinum og lét það
líta þannig út að hann keypti mæl-
inn. Mælirinn skilaði sér hins vegar
ekki til Grímseyjar og leikur grunur á
að hann hafi verið notaður af kunn-
ingjum Brynjólfs í Reykjavík.
Upp komst um mál Brynjólfs þeg-
ar DV fjallaði um þjófnað hans á
12.900 lítrum af olíu ffá árinu 2003
til ársins 2007 þegar Brynjólfur starf-
aði sem umboðsmaður Olíudreifing-
ar hf. Brynjólfur greiddi upphæðina
hins vegar til baka en fyrir þjófnað-
inn var hann dæmdur í þriggja mán-
aða skilorðsbundið fangelsi. Aðr-
ir sveitarstjórnarmenn höfðu ekki
heyrt um þjófnaðinn þegar blaða-
maður DV náði tali af þeim. I kjöl-
Mælirinn skilaði sér
hinsvegarekkiti!
Crímseyjar og leikur
grunur á að hann hafi
verið notaður í Reykja-
vík.
farið hófu þeir rannsókn á bókhaldi
hreppsins og við þá rannsókn kom
margt misjafnt í ljós.
Skrifaði afsökunarbréf
DV hefur áður fjallað um kaup
hans á skotbórhulyftara sem kost-
aði hreppinn fimm til sex milljónir
króna. Ekki hafði fengist samþykki
fyrir kaupunum og bar Brynjólf-
ur því við að lyftarinn hefði
verið borgaður úr hans
eigin vasa. Þegar endur-
skoðendur gerðu at-
hugasemd við kaupin
á skotbómulyftaran-
um í vor reyndi Brynj-
ólfur að hylma yfir
þau. Hann er sagður
hafa falsað afsökunar-
beiðni frá endurskoð-
anda hreppsins til sjálfs
sín. í bréfinu stóð meðal
annars að mistök hefðu
átt sér stað þegar at-
hugasemdir voru gerðar
vegna kaupa hreppsins
á lyftaranum. Beðist var
velvirðingar á mistökunum
og tekið fram að ekkert óeðli-
legt hefði verið við kaupin. Þau
hefðu verið kostuð af Brynjólfi og
að hreppurinn hefði ekíd komið
nálægt kaupunum.
Vill ekki segja af sér
Brynjólfi hef-
ur verið boðið
að segja af sér embætti sveitarstjóra.
Hann hefur hins vegar ekki viljað
segja af sér en Brynjólfur fór í veik-
indaleyfi til Akureyrar skömmu eftir
að málið kom upp. Gunnar Hann-
es Hannesson heftir tekið við starfi
Brynjólfs á meðan hann er fjarver-
andi. Garðar Ólason sveitarstjórnar-
maður er orðinn varaoddviti.
Ómögulegt verður að teljast að
Brynjólfur haldi starfi sínu sem
sveitarstjóri. Til að skera úr um hvort
Brynjólfur eigi að hætta sem sveitar-
stjóri þarf að halda fund með sveitar-
stjórnarmönnum, sveitarstjóranum
og öðrum málsaðilum. Málið hefur
ekki enn verið kært til lögreglunnar
en samkvæmt heimildum DV verð-
ur það líklega gert milli jóla og nýárs
eða fljótlega eftir að
nýtt ár gengur í
garð.