Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007
Helgarblaö PV
Allt að tólffaldur munur er á kostnaði við að setja upp og halda úti léni á íslandi og í Danmörku. Árgjald léns
með .com-endingu er einn tólfti af árgjaldi léns með .is-endingu. Vinnuhópur á vegum samgönguráðuneytisins
vinnur nú að hugmyndum um framtíðarskipan lénamála. Jens Pétur Jensen, framkvæmdastjóri Internets á
íslandi, segir að verið sé að bera saman epli og appelsínur.
RANDYRLEN
ÆSá s
mei
^mað 1
^*yrii
SES^ heii
á sem setur upp heimasíðu
með íslenskri .is-endingu þarf
að borga margfalt hærra verð
ir lénið en sá sem setur upp
heimasíðu með erlendri end-
ingu.
Tuttugu þúsundasta virka lénið
með .is-endingu var skráð hjá Internet
á íslandi, ISNIC, í nóvember.
Stoínkostnaður við að koma upp
léni á íslandi er 12.450 krónur. Inni-
falið í því er stofngjald og ársgjald fyr-
ir fyrsta notkunarárið. Arsgjaldið fyrir
að halda uppi .is-léni er 7.918 krónur.
Sé lénið með .com-endingu, eins og .
það kemur fyrir á vefsíðunni whois.
com, er ársgjaldið aftur á móti í kring-
um 650 krónur á ári, en .com er í eigu
fyrirtækisins Verisign. Þá er kostnað-
urinn við uppsemingu léns á íslandi
tólffaldur á við Danmörku.
Úthlutun léna er alfarið í umsjón
ISNIC, en fyrirtækið var stofnað árið
1995 og tók við rekstri sem Samtök um
upplýsinganet rannsóknaraðila á Is-
landi höfðu sett á laggirnar árið 1987.
Þaðan var það selt af ríkinu til íslands-
síma árið 2000 sem síðar fór undir
Teymi. Modemus ehf. keypti í mars á
þessu ári 88,15 prósent í Interneti á ís-
landi, en þar af eiga Jens Pémr Jensen,
framkvæmdastjóri ISNIC, og Islands-
póstur saman yfir 50 prósent.
Helst illa á formönnum
Nú er að störfum vinnuhópur um
framtíðarskipan lénamála á Islandi,
hann var settur á laggimar nú síðsum-
ars. Formenn þess starfshóps hafa
ekki verið langlífir því þriðji formað-
urinn tekur við nú í janúar. Hópnum
var falið að fara yflr hvernig úthlut-
un léna er háttað hérlendis og huga
að leiðum til hagsbóta. Að sögn Ró-
berts Marshall, aðstoðarmanns sam-
gönguráðherra, er litið í því samhengi
til ríkja í kringum ísland, líkt og Fær-
eyja og Danmerkur. Róbert segir ýmis
dæmi um að lénakostnaður sé marg-
falt meiri á fslandi en f öðmm ríkjum.
Viðkomandi á lénið
Jens Pémr Jensen, framkvæmda-
stjóri Internets á Islandi, segir þann
grundvallarmun á þessu að ISNIC
sé rótarlénsskráningaraðili. Ekki sé
hægt að búa til lén nema á einum
stað í einu, en þau séu búin til út frá
staðli sem kallaður er IDN. Hann segir
grundvallarmuninn á .is-lénunum og
mörgum úti í heimi þá að ISNIC skaffl
öll lén sem láti svo öðrum eftir að hýsa
þau. Þar af leiðandi er viðkomandi
frjálst að gera hvað sem hann vill við
lénið ef hann vill flytja sig milli hýsing-
araðila.
Jens Pémr segir að í mörgum lönd-
um, þar á meðal í Danmörku, sé mál-
um háttað þannig að hýsingaraðilar
séu komnir með tögl og hagldir í út-
hlutun léna og eignarhajdi þeirra. Þar
með séuþeirkomnirbeggjavegnavið
borðið og geti því hindrað viðskipta-
vini sína í að flytja sig annað ef þeir
eru ósáttir við þjónustu hýsingaraðil-
ans þar sem þeir geta sagst eiga lénið.
Hann bendir á að mörg lönd hafi far-
ið illa út úr ástandi sem þessu, þar á
meðal .rus í Rússlandi og .cn í Kína.
Dýrt en traust
Jens Pétur viðurkennir að ,is sé
dýrt lén en segir á móti að það sé af-
skaplega traust. „Við viðhöldum því að
skráningar séu sem réttastar þannig
að við gemm alltaf rakið lénin til eig-
enda eða ábyrgðarmanna. Við erum
með vélrænan búnað sem fer yfir all-
ar skráningar og ef einhverjar reynast
ekki réttar er viðkomandi gefinn kost-
ur á leiðréttingu. Ef engin berst lokum
við fyrir lénið," segir Jens Pétur.
Jens Pémr segir þetta vera ólflct því
sem gerist í mörgum örðum löndum,
þar sem eftirliti með þessum málum sé
ábótavant. Þetta verði til þess að auð-
veldara sé að fylgjast með hvort verið
sé að nota lénin til einhvers óæskilegs
ráðabruggs. Hann segir að vinnuhóp-
urinn sem nú er að störfúm verði fyrst
og fremst að hugsa til þess að hug-
myndirnar um breytingar komi ekki
niður á gæðunum á íslenskum lén-
um. „Ef menn eru að horfa til þess að
lækka kostnað held ég að menn ættu
að horfa til þess hvort fella megi nið-
ur virðisaukaskattinn á lénunum. Út-
lendingar sem vilja koma sér upp .is-
léni þurfa til að mynda ekki að borga
hann," segir Jens Pétur.
Jens Pémr segir um 30 milljónir
renna í ríkissjóð á ári vegna sölu á
lénum. Miðað við 20 þúsund lén
þar sem _____ eru
rukkaðar
7.918
krónur
í árs-
gjöld
eru
tekj-
urn-
ar af
þeim
tæp-
ar 160
milljónir
króna.
roberthb@dv.is
Róbert Marshall Segir
muninn margfaldan
samanborið við önnur lönd.
EITT BESTA ÚRVAL LANDSINS Á HEILSUDÝNUM
FRI LEGUGREI
og fagleg ráðgjöf
á heilsu- og
sjúkradýnum
www.rumgott.is
Verslunin Rúmgott • Smiðjuvegi 2 • Kópavogi • Sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16