Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007
Umræða DV
HVAÐ BAR HÆST í VIKUNNI?
U/rtlímoííeKfHaLeir'
W w IV W wulfimomenthrtler.com
By Mikael Wulff & Anders Morgenthaler
Svavar sex ára upplifir sín
fyrstu stóru svik
V\
Dúlli, Bóbó...Skalli?! Hvað eruð þið
að gera við sparigrísinn minn?
Systkinin sameinuð á ný
„Það var svolítið sögulegt sem gerðist hjá
mér um jólin. Við erum þrjú systkinin og
höfum undanfarin tíu ár ekki getað eytt jól-
unum saman. Fólk hefur verið erlendis, ég
fór til dæmis út í nám og svo á ég systur sem
hefur verið talsvert fjarverandi.
Þetta var sem sagt í fyrsta skipti í ára-
tug sem við vorum öll systkinin í faðmi
fjölskyldunnar. Ég er ekki frá því að það
hafi verið foreldrum mínum til mikillar
ánægju að hafa öll börnin sín hjá sér í íyrsta
skipti í langan tíma. Þetta voru afskap-
lega skemmtilegir endurfundir. Það skiptir
mestu máli í lífinu að eiga góða að og þetta
var það sem bar hæst hjá mér í vikunni.
Hvað fréttir og annað varðar hef ég lít-
ið séð markvert þótt ég sé mikill fréttafík-
ill, enda jólin nýbúin og blöð lítið komið.
Venjulega fylgist ég mjög vel með."
Þórdís Elva Bachmann, leikari og leikskáld
Samfylkingin mótmælir
„Að mínu mati ber það hæst að Þor-
steinn Davíðsson haii verið skipaður sem
dómari. Þetta eru merkilegar fréttir og ekki
síst í ljósi viðbragða frá Samfylkingunni.
Þeir hafa lýst yfir óánægju sinni með þessa
ráðningu og það sýnir að þessi ríkisstjórn
stendur ekki alltaf saman. Samfylking-
armenn eru búnir að finna sig aftur, þeir
hafa nú unnið með Sjálfstæðisflokknum í
nokkra mánuði og eru núna búnir að fatta
hvernig það er að vinna með sjálfstæðis-
mönnum.
Það verður mjög athyglisvert að sjá
hvaða rök eru að baki þessari ráðningu.
Árni Mathiesen hefur enn ekki fært al-
mennileg rök fyrir máli sínu en hann hef-
ur sagst vera ósammála nefndinni. Hvort
þetta er nægilega gott svar, það veit ég
ekki," segir Paul F. Nikolov, varaþingmaður
vinstri grænna.
Paul F. Nikolov, varaþingmaður vinstri
grænna
Ellefu tónleikar Frostrósa
„Jólin bar auðvitað hæst í vikunni. Það
fer ekki á milli mála," segir Regína Ósk
Óskarsdóttir söngkona. Hún hefur lítið
frí tekið sér á árinu en er nú loks farin að
slaka á. „Það má eiginlega segja að frá
septembermánuði hafi ég verið fullbókuð
út árið. Það hefur verið mikið að gera og
ég kann stundum ekki að slaka á. Síðustu
daga hef ég hins vegar náð að sofa vel og
mikið," segir hún.
Regína er yfirkennari í söngskóla sem
var að ljúka fýrir jólin. Því fylgdi bæði erill
og skemmtilegheit, og strax er farið að skrá
á námskeið á næsta ári. „Síðan var ég að
gefa út plötu og söng á ellefu tónleikum
með Frostrósum í desember. Það var mikið
álag, bæði andlega og raddlega. En nú er
ég komin í afslöppun þar til skólinn byrjar
aftur. Ég ákvað að eftir Frostrósir þyrfti ég
að þegja aðeins," segir hún hlæjandi og
ætíar sannarlega að endurnýja batteríin í
fríinu.
Regína Ósk Óskarsdóttir, söngkona
Kirkjusókn og kaupmáttur
„Það voru náttúrlega jólin. Mér finnst
gott þegar jólin fá að vera jólin þar sem
fjölskyldan kemur saman og heldur í góðar
hefðir. f mínum huga stendur það upp úr
þessa vikuna.
Mér fannst ánægjulegt að sjá að met var
slegið í kirkjusókn landsmanna um þessi
jól. Ég held að við getum þakkað andstæð-
ingum kirkjunnar fyrir hressilegan mál-
flutning síðustu vikur ársins. í ljósi þeirrar
umræðu áttaði þjóðin sig á þvf að enginn
veit hvað átt hefur fýrr en misst hefur og
stefndi í kirkju fyrir jólin.
Síðan var athyglivert að fylgjast með því
að kaupæðið fyrir jólin eykst bara ef eitt-
hvað er. Það helst í hendur við kaupmátt
hvers tíma og svo virðist vera sem neysla
og kaupmáttur þjóðarinnar hafi verið mik-
ill síðustu ár. Að því leytinu til er það bara
jákvætt og vonandi verður áframhald á því.
Hins vegar óttast ég blikur á lofti um að
það kunni að vera að breytast og dragi úr
kaupmætti í kjölfarið.
Annars óska ég öllum gleðilegrar hátíð-
ar og þakka fyrir gott samstarf á árinu."
Óskar Bergsson, varaborgar.fulltrúi
Framsóknarflokksins