Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007
Helgarblað PV
Aðeins tvítug hóf hún að
vinna á danskri sauma-
stofu, eftir það varð ekki
aftur snúið. f dag rekur hún
saumastofuna og verslun-
ina Textiline á Laugavegi 101 sem
hefur lifað farsælu lífi í heil þrettán
ár. Jóhanna Harðardóttir, sauma-
kona og eigandi, gaf okkur innsýn
inn í heim saumaskaparins.
Hlýjar móttökur
Það eru margir sem hafa komið
við á saumastofunni og versluninni
Textiline á Laugavegi 101 í gegnum
tíðina og látið sauma á sig dýrind-
is kjóla, kjólföt eða látið laga eitt
og annað. Þegar dyrunum á þess-
ari þekktu saumastofu er lokið upp
tekur á móti manni lífsglöð, bros-
andi Jóhanna Harðardóttir, sauma-
kona og eigandi verslunarinnar.
Jóhanna er þekkt fyrir einstaklega
persónulega og góða þjónustu í
verslun sinni. Þó mikið sé að gera
gefur Jóhanna sér alltaf smá tíma til
að spjalla við viðskiptavini sína um
daginn og veginn. Hún saumar ekki
bara falleg föt, heldur hefur einnig
áhuga á að vita hvert tilefnið er fyr-
ir sérsaumuðu fötin og sýnir fólki
að hún gerir þetta með heilum hug.
„Ég á mjög stóran hóp af tryggum
og góðum fastakúnnum sem hafa
fylgt mér í gegnum árin, bæði fyrir-
tæki og einkaaðilar. Mér þykir mjög
vænt um viðskiptavini mína," segir
Jóhanna.
Sjálfmenntuð
Jóhanna er sjálfmenntuð en hún
byrjaði að fikta við að sauma um
tvítugt. Hún hóf störf á saumastofu
í Danmörku og saumaði þar ýmis
sýnishorn fýrir tískusýningar. „Þar
lærði ég nánast allt sem ég kann en
ég hef nú einnig tekið ýmsa kúrsa í
gegnum árin," segir Jólianna.
Hún tók sig til árið 1994 og hóf
þá eigin rekstur þegar hún ákvað að
opna verslun í Skeifunni. „Ég byrj-
aði með búðina og saumastofuna
þar en flutti reksturinn síðan nið-
ur á Laugaveg 101, fjórum árum
seinna."
Blaðamanni leikur forvitni á
að vita hvernig það kom til að ung
kona sem var á kafi í barnauppeldi
tók sig til og dembdi sér í djúpu
laugina með fyrirtækjarekstur.
„Ég hef alltaf verið að sauma og
haft brennandi áhuga á saumaskap
og öllu því sem tilheyrir. Mér fannst
á þessum tíma vanta saumastofu
þannig að ég ákvað að slá til," seg-
ir Jóhanna
Breyttir tímar
Það er óhætt að segja að tím-
arnir hafi breyst töluvert síðan Jó-
hanna byrjaði með verslun sína.
„Þegar ég byrjaði með reksturinn
lagði ég mikið upp úr sölu á vefn-
aðarvöru. Einnig var til boða fyr-
ir kúnnann að leigja sér tíma og
nýta sér alla sníða- og saumaað-
SKEMMTILEGAST AÐ
SAUMAGLÆSILEGA
SAMKVÆMISKJÓLA
stöðuna," segir Jóhanna. f gegnum
árin hafa áherslurnar svo breyst
gríðarlega mikið að mati sauma-
konunnar. „í dag leggjum við að-
aláhersluna á saumastofuna bæði
fyrir fyrirtæki og „private" kúnn-
ann. Við sinnum mörgum fyrir-
Glæsilegt hárskraut Það verður
eflaust slegist um þetta stórglæsi-
lega hárskraut fyrir áramóta- og
nýárspartíin.
tækjum í Reykjavík með þeim hætti
að sjá um aílar fatabreytingar fyrir
þau. Einnig saumum við mikið eft-
ir máli," segir Jóhanna. Þó svo að
áhersla á saumastofuna hafi auk-
ist til muna síðustu ár er þó allt-
af mikil stemning í kringum búð-
ina sjálfa sem enn er starfrækt í
dag. í búðinni leggur Jóhanna að-
aláherslu á að vera með falleg efni
í kjóla, mikið af ýmsu skrauti í hár
og á fatnað. Nýjasta æðið í versl-
uninni er án efa glæsilega hatta-
skrautið og skrautspangirnar sem
Jóhanna hefur hannað og saumað
sjálf. „Flest kvöld og nætur í desem-
ber fóru í að hanna og sauma span-
gir með ýmsu skrauti á. Það var
meira að segja hálfslegist um þær í
búðinni á Þorláksmessu þegar úr-
valið var að minnka og borgarbú-
ar voru komnir í hálfgert panik að
klára jólagjafainnkaupin. Nú er ég
hins vegar að einbeita mér að nýju
hattaskrauti og fleiru fyrir gaml-
árs- og nýársfagnaðina." Þetta er þó
ekki allt því einnig býður Jóhanna
upp á fataleigu þar sem í boði eru
brúðarkjólar, samkvæmiskjólar og
smókingföt.
Mörgæsir og umferðarskilti.
Á hverju vori fara af stað árleg-
ar fegurðarsamkeppnir. Þá streyma
fallegar snótir inn á saumastofu Jó-
hönnu til að láta sauma á sig fallega
kjóla. Glamúr og semelíusteinar
hafa einkennt kjóla fegurðardrottn-
inganna í áratugi en síðustu ár hafa
kjólarnir aðeins verið að breytast
að mati Jóhönnu. „Stelpurnar eru
að verða djarfari í að velja öðruvísi
kjóla heldur en gengur og gerist.
Sem betur fer eru ekki allir steypt-
ir í sama mótið. Mér fínnst það
mjög skemmtilegt þegar þær koma
með flottar hugmyndir og við vinn-
um svo saman út frá því," segir Jó-
hanna. Það eru þó fleiri en fegurð-
ardrottningarnar sem láta sauma á
sig kjóla og þess háttar. „Það er allt-
af stór hópur sem lætur sérsauma á
sig. Við sérsaumum mjög mikið af
kjólum á konur á öllum aldri fyrir
hin ýmsu tilefni."
Á þeim þrettán árum sem Jó-
hanna hefur rekið saumastofuna
sína hefur hún þurft að sauma ým-
islegt skemmtileg og spaugilegt.
„Það skrítnasta sem ég hef saum-
að eru örugglega allir dimmi-
sjón-búningarnir sem ég hef gert
í gegnum tíðina. Ég hef saumað
allt frá mörgæsum til umferðar-
skilta. Ég verð þó að viðurkenna að
mér finnst alltaf skemmtilegast að
sauma glæsilega samkvæmiskjóla,"
segir Jóhanna.
Uppi um öll fjöll
í dag eru börn Jóhönnu upp-
komin og einnig hafa bæst barna-
börn í hópinn en ætli það gangi
aldrei illa að sameina fjölskyldulíf-
ið og reksturinn? „Það gengur bara
mjög vel, þetta er allt svo heim-
ilislegt hjá okkur. Barnabörnin fá
stundum að koma og vera uppi á
saumastofunni. Þar eiga þau sinn
dótakassa. Og ekki má gleyma
henni Bellu prinsessu, en það er
hundurinn minn sem er alltaf með
okkur á saumastofunni. Þannig að
það er óhætt að segja að þetta sé
Saumakonan Saumakonan Jóhanna
Harðardóttir er eigandi verslunarinnar
Textiline á Laugavegi 101.
mjög fjölskylduvænt fyrirtæki," seg-
ir Jóhanna. Það er auðheyrt að líf-
ið snýst að miklu leyti um vinnuna
enda líka um áhifgamál og ástríðu
að ræða. Það hlýtur þó einhver tími
gefast til að huga að áhugamálun-
um, eða hvað? „Þegar ég er ekki í
vinnunni er ég uppi um öll íjöll. Ég
er mikil útivistarkona og elska að
fara í langa göngutúra með Bellu
minni og einnig fer ég á göngu-
skíði á veturna. Síðan er ég dugleg
að sinna barnabörnunum þegar ég
hef tíma," segir þessi orkumikla og
duglega kona að lokum.