Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Síða 40
40 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007
Helgarblað DV
I Gríðarlegur samdráttur í hagkerfinu sem birtist í hrapi hlutabréfa
í Kauphöllinni á síðari hluta ársins mun koma fram með vaxandi
þunga í upphafi nýs árs. Mikill fjöldi hluthafa sem veðjuðu á útrás-
arfyrirtæki eins og Exista og FL Group situr eftír með
sárt ennið og hefur tapað miklum peningum. Gjald-
þrotum einstaklinga fjölgar mjög, bankarnir leysa
til sín vaxandi fjölda eigna og munu eftír megni
reyna að fela sístækkandi eignamöppur sínar.
Þetta gerist samfara kólnun í hagkerfinu í kjölfar
þess að framkvæmdum lýkur á Austfjörðum og
samdráttarins mun því gæta á mjög mörgum svið-
um. Snemma í mars sér völvan mikinn óróa í samfé-
laginu vegna fjármálaóreiðu og þungbærra vandræða hjá áberandi
útrásarfyrirtæki.
■ Þetta verður þungur vetur og erfiður fyrir þá sem
skulda mikið og margir sem áður bárust mikið á
munu þurfa að draga mjög saman seglin. Sérstak-
lega verður ástandið á húsnæðismarkaðnum erfitt
vegna offramboðs og verðstöðnunar og völvan sér
ríkið hafa einhver afskipti af þætti bankanna á því
sviði.
■ Persónuleg gjaldþrot nokkurra þekktra einstaklinga í viðskiptalíf-
inu í kjölfar þessa samdráttar munu vekja töluverða athygli fjölmiðla
og áður umsvifamikill viðskiptajöfur, nánar tiltekið Hannes Smára-
son, mun flytja af landi brott eftir skipbrot af því tagi snemma árs.
■ Ýmsar eignatilfærslur verða í viðskiptalífinu á fyrri hluta ársins
og sérstaka athygli mun vekja breytt eignarhald á Símanum og nýir
eigendur sem koma að TM. Fyrirtæki tengd gamla Sambandinu og
Framsóknarflokknum verða umsvifameiri á nýju ári en nokkru sinni
fyrr. Sérstaklega munu tiltektir Finns Ingólfssonar vekja umtal og
jafnvel hneykslun en aðdáun í bland. Margir verða til þess að segja
að Sambandið teljist endurreist þegar líða tekur á árið. Völvan sér
einnig Ólaf Ólafsson sem kenndur er við Samskip koma mikið við
þessa sögu.
■ Þótt framkvæmdum sé lokið við Kárahnjúka að
nafninu til hverfur sú ffamkvæmd ekki úr kastljósi
fjölmiðla því uppgjör og arðsemi virkjunarinn-
ar verður tilefni til mikillar hneykslunar og reiði í
samfélaginu. Friðrik Sophusson, forstjóri Lands-
virkjunar, mun láta af störfum á árinu.
■ Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands,
hefur mætt nokkru andstreymi og gagn-
rýni meðal annars vegna ferðakostnaðar
og risnu en hann á athyglisvert ár í vænd-
um. Ólafur gefur kost á sér áfram til emb-
ættís forseta en snemma ársins mun hann
tjá sig opinberlega um atburði líðandi
stundar með þeim hætti að eftír verður
tekið. Margir verða til þess að gagnrýna
hann fyrir að blanda sér í þjóðmál umfram
það sem embættið eigi að gera og and-
stæðingar hans herða sóknina á hendur
honum.
■ Dorrit Moussiaeff verður áfram eftírlæti
þjóðarinnar en verður fótaskortur á miðju
ári þegar hún móðgar þjóðfrægan lista-
mann í beinni útsendingu. Atvikið vekur
þó meiri kátínu en hneykslan og dregur
ekki dilk á eftír sér.
\iyi\
l Fjölmiðlamarkaðurinn á fslandi verður áffam vettvangur breyt-
inga. 365 samsteypan mun draga saman seglin í sjónvarpsrekstri og
völvan sér skugga yfir Stöð 2 vegna samdráttar og mannabreytinga.
Tilraunir til þess að hleypa nýju lífi í stöðina munu ekki ganga vel.
■ Þeir Páll Magnússon og Þórhallur Gunnarsson
munu halda áfram að veita nýju blóði um æðar
risans f Efstaleiti og ýmis nýmæli þar á bæ munu
vekja mikla athygli á árinu. Sérstaklega munu til-
raunir RÚV sem tengjast bloggheiminum vekja
athygli og njóta nokkurrar velgengni fyrst í stað.
Völvan sér samt umtalsverðar deilur um viðkvæmt
fréttamál sem kemur upp á fyrrihluta ársins og tengist
þekktum stjórnmálamanni. Kastljósið og vinnubrögð þess mun sæta
mikilli gagnrýni í tengslum við það og einhverjir víkja úr sæti sínu.
■ Tímaritum fækkar á markaðnum en samdráttur verður á auglýs-
ingamarkaði þegar kólnar í efhahagsh'finu á fyrri hluta ársins. Sá
samdráttur kemur einnig niður á útgáfu dagblaðanna. Sérstaklega
mun harðna í ári hjá Árvakri sem berst við taprekstur og á nýju ári
verður útgáfu 24 stunda hætt. DV mun hjara við harðan kost en út-
gáfa þess gæti breyst á árinu og útgáfudögum fækkað.
■ Dómsmál á hendur fjölmiðlum verða færri á nýju ári og þegjandi
samkomulag á ritstjórnum um að stíga varlega tíl jarðar.
■ Útgáfu Nyhedsavisen í Kaupmannahöfn verður hætt snemma á ár-
inu ef ekki um áramót og önnur áform um blaðaútgáfu erlendis sett
til hliðar. Völvan sér eignatilfærslur tengdar þessum breytíngum.
■ Völvan sér ekki betur en að nýtt vikurit um fréttamál muni líta
dagsins ljós á árinu. Þetta er blað í stíl gamla Helgarpóstsins og
munu fyrstu tölublöðin vekja athygli en síðan misstígur blaðið sig
herfilega og leggur upp laupana vegna þess að aðstandendur þess
missa allt traust lesenda og verða að athlægi. Völvan sér þekkta
bræður sem hafa marga fjöruna sopið í blaðamennsku og útgáfu
tengjast þessari sneypuför.
m
Ekki verða öll tíðindi ársins ill tíðindi eða dapurleg
því margt verður til þess að kæta þjóðina á nýju ári.
Gott veður, ágætt tíðarfar og skemmtilegir hlutir
í hversdagslífinu munu kæta landann því sífellt
fleiri munu leggja sig fram um að njóta þeirra
lífsgæða sem peningar fá ekki keypt. ísland verður
nefnilega áfram á nýju ári best í heimi.
Dorrit Moussaieff
Vekur athygli á árinu
sem endranær.
SKUGGAHLIÐAR
AMFELA
■ Breiðavíkurmálinu er langt ffá því lokið. Skýrsla
nefndarinnar sem kennd er við Breiðavík mun
vekja hörð viðbrögð því þar koma upp á yfirborð-
ið enn fleiri saknæmir þættir þessa máls. Völvan
sér gerendur í afbrotum á Breiðavík birtast í fjöl-
miðlum í kjölfarið með dapurlegum hætti.
■ Mál af líkum toga og
Breiðavíkurmál mun
koma fram í dagsljós-
ið á árinu og snýst um
fósturforeldra sem hafa
notið trausts félagsmála-
yfirvalda áratugum saman
en reynast ekki traustsins
verðir.
■ Hrottalegt morðmál mun setja svip á ffétta-
flutning á árinu og er það enn einu sinni tengt
fíkniefnainnflutningi erlendra manna sem eru
búsettir á fslandi. Erfiðlega gengur að upplýsa
málið en völvan telur að það eigi upptök sín og
vígvöll í samfélagi rétt utan við Reykjavík.
Mri
ITA
Mi
■ Völvan sér miklar deilur um knattspymu og starfsemi
samtaka á þeim vettvangi á nýju ári þar sem enn verður
deilt hart um launamál og jafhrétti. Gengi FH á fótbolta-
vellinum heldur áfram að dala en Valur á afar gott ár
fram undan á grasinu og líklega verða þeir meistarar í
úrvalsdeild á árinu Svo er að sjá sem meistarar FH muni
vinna bikardeildina og fá þannig nokkrar sárabætur.