Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Síða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Síða 47
PV Sport FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 47 eitthvað inn í þetta sem ég skildi og ég gat unn- ið út frá því til að bæta mig sem handbolta- maður. Maður verður alltaf að meta það hvenær maður á að berjast áfram eða staldra við til að segja við sjálfan sig að hlutimir séu í tómu tjóni og betra sé að reyna annað. Ég fer oft í naflaskoðun, kannski of mikið, en ég hef alltaf sagt að ef fólk ætíar að standa sig í því starfi sem það er í þurfi það að vera í endaíausri naflaskoðun. Stöðugt að gagnrýna sjálft sig og aðstæðurnar sem það er í. Það leið- ir að vísu alltaf til ákveðinnar sjálfsdýrkunar. Þessi eiginleiki hefur ekki alltaf búið í mér. Þú lærir þetta ekki í skóla. Það eina sem hann kennir þér er það að einhver utanaðkomandi dæmir þig og þú tekur einkunn frá kennara eins og hverju öðm hundsbiti, hvort sem þú færð 8 eða 5. Þú efast aldrei um þá sem dæma þig en þarna varð ákveðin vakning hjá mér og ég fór að vera gagnrýnni á allt í kringum mig," segir Ólafur. Vill vera vinur þjálfaranna Magdeburg vann þýska meistaratitilinn á þriðja ári Ólafs hjá liðinu árið 2002. Ólaf- ur segir að Alffeð Gíslason hafi átt stærstan þátt í árangrinum. „Hann kom inn í félagið og breytti öllu skipulagi sem var allt orðið svo skítugt eitthvað. Gamli þjálfarinn var bara í því að hrauna yfir menn og engin stefna. Alli kom þarna inn og bjó til taktískan, líkamlegan og húmanískan strúktúr. Þeir vom með pen- inga á milli handanna og hann náði að sam- eina menn með ólíkan bakgrunn að ákveðnu markmiði. Hann tók þrjú ár í það að byggja lið- ið upp og svo fómm við að vinna. Þannig á að vinna hlutina. Ég á mjög gott samband við Alfreð. Við höf- um lent í ýmsu og komist í gegnum ýmislegt saman sem verður ekki af okkur tekið. Það sem tengir fólk saman. Ég er svo heppinn að ég hef endað vel hjá öllum þjálfurum. Ég veit ekki hvort ég hefverið að gera þeim greiða eða þeir mér, en mér hefur alltaf fundist ég vera svo heppinn að hitta á réttu þjálfarana. Hver hluti lífs míns finnst mér endurspeglast í þeim þjálfumm sem ég hefverið með. Ég er eiginlega vinur þjálfaranna og vil vera vinur þeirra eftir að þeir hætta. Eðli það er eitthvað varið í íþróttamenn eiga þeir að vera fúlir ef þeir eru í slíkum aðstæðum," segir Ólafur. Hinn sanni Spánn Ólafi líkar lífið vel á Spáni og segir að í Ci- udad megi finna hinn sanna Spán, ómengað- an af utanaðkomandi áhrifum. „Þar eru engir túristar og ef þú vilt sjá Spán ferðu þangað. Ef þú vilt sjá póstmódernískt glamúrlíf ferðu til Barcelona. Lífið hérna er æðislegt og allt saman er mjög afslappað. Hinn dæmigerði Spánverji í kringum mig er blanda af Don Kíkóta og Sansjó Pansa. Léttur geðveiklingur sem er með háleitar hugsjónir en veit um leið að það besta sem hann gerir er að stunda kynlíf og borða góðan mat, nautnaseggur. Ég hef að nokkru leyti tileinkað mér þennan hugsun- arhátt." Hættur að gleyma sér í augnablikinu Ólafur hampaði Spánarmeistaratitlin- um á sínu fyrsta ári hjá Ciudad Real árið 2003. Hann segist hins vegar ekki hafa gleymt sér í augnablikinu. „Fyrsti meist- aratitillinn á Spáni var frábær, en eins og Phil Jackson (þjálfari LA Lakers í NBA- deildinni) segir er ég hættur að gleyma mér í fagnaðarlátunum. Fagnaðarlæt- in skipta öllu máli þegar þú ert ungur og ekkert annað kemst að. Þegar maður eld- ist fattar maður hins vegar að þetta er svo stutt augnablik og það sem skiptir meira máli er allt þetta sem þú gerir fram að þeim tímapunkti að vinna. Allar æfmgarn- ar og annað sem þú hefur lagt á þig. Maður hættir því að gleyma sér í augnablikinu. Þú einblínir frekar á heildarmyndina. Það er bæði gott og slæmt. Þegar ég vinn titil sé ég heildarmyndina og gleymi mér ekkert í fagnaðarlátum. En á sama tíma nýt ég þess betur að mæta á æfingar og finnst gaman. Þetta snýst um að grípa augnablikið og vera þar sem maður er hverju sinni. Það mætti því segja að ég lifi fyrir hvern dag en á sama tíma á ég erfitt með að gleyma mér í augnablikinu, eins undarlega ogþað hljómar," segir Ólafur. L ' I W málsins samkvæmt ert þú ekki vinur þeirra nákvæmlega á þeim tímapunkti sem þeir eru að þjálfa þig, en minn draumur er alltaf sá að eiga þá að vinum eftir að ég er búinn að vera hjá þeim. Það er svolítið skrítið að segja það en Viggó fór aftur í það að verða þjálfari manns úr því að vera vinur þegar hann tók við lands- liðinu," segir hann. Ciudad Real Ólafur stóð sig frábærlega hjá Magdeburg og er enn þann dag í dag markahæsti leik- maður liðsins ffá upphafi. Ólafi fannst hann vera búinn að na þeim markmiðum og upp- lifa það sem hann vildi hjá þýska liðinu. Því vildi hann henda sér í djúpu laugina, upplifa eitthvað nýtt og gekk til liðs við Ciudad Real á Spáni árið 2003 sem er eitt af stærstu liðum í Evrópu. „Það var eiginlega ekkert eftir fyrir mig til þess að gera í Magdeburg. Ég þekkti allt inn og út. Mín sýn er sú að þegar þú ert búinn að gera það sem þig langar að gera en held- ur áfram ertu alltaf að velta steininum í sama farinu. Það er þægilegt en það vantar ögrun- ina. Ég vildi frekar komast í einhverja óreiðu og takast á við nýjar aðstæður. Eins viðurkenni ég það að ég fékk betri samning og það skipti máíi. Einnig var þetta betra lið og á þessum tíma var verið að safna saman einhverjum stjörnum. Fyrstu árin vorum við með öm- urlegan þjálfara. Við unnum að vísu titilinn á fýrsta ári mínu en það var ekkert á bak við það sem hann var að gera. Fyrir tveimur árum kom Talant Duisbaev og þá breyttust hlutirnir til hins betra. Líkt og var þegar Alfreð kom til Magdeburg hefði ég farið frá liðinu. Þar var maður kominn sem sá heildarmyndina allan tímann og var með framtíðarsýn. Það fer í taugarnar á mér þegar það er ekkert plan og engin markmið um það hvar menn standa eftir mánuð. Ef Landsliðið getur vel unnið stórmót Ólafur hefur um árabil verið burðarás í ís- lenska landsliðinu. Hann hefur jafnan leik- ið vel með liðinu og var til að mynda marka- hæsti maður Evrópumótsins árið 2002. Frá árinu 2005 hefur hann borið fyrirliðaband- ið sem hann tók við af uppeldisfélaga sínum úr Val, Degi Sigurðssyni. Hann ber þá von í brjósti að landsliðið sigri á stórmóti og Ólaf langar að vera með þegar það gerist. „Það væri hrikalega gaman að ná að vera með í því að sigra á einu móti. Ekki vera nýhættur og þá fara strákarnir að vinna eitthvað. Þótt það væri ekki nema að vera svona Björn Nil- sen sem var Svíi sem náði einu móti áður en hann hætti. Hann tók eitt víti held ég í mót- inu þegar þeir unnu heimsmeistaratitilinn árið 1990 en var búinn að vera mjög góður í lengri tíma áður en Wislander og fleiri kallar komu fram. Það getur vel gerst að landsliðið vinni eitt- hvað. Við erum að koma upp með marga góða örvhenta leikmenn og Snorri er öflugur á miðjunni. Auðvitað er vinstri skyttan ákveð- ið vandamál. Logi er kandídat en hann þarf að læra svo mikið áður en hann fer að falla almennilega inn í þetta. Svo vantar alla mark- vörslu, þar þurfum við að bæta okkur." Landsliðið er ástæða þess að ég er enn að spila „Ástæðan fyrir því að ég er ennþá að spila er sú að ég er að bíða eftir þessu augnabliki. Ef ekki væri fyrir landsliðið væri ég líklega hætt- ur að spila. Ég sé engan tílgang í því að vera að æfa hér og vera góður en nýta það síðan ekki í landsliðið. Svo getur vel verið að maður sé að skemma eitthvað í landsliðinu." Hvemig þá? „Það getur alltaf verið tvíbent hvenær einhver er að hjálpa liði. Þó leikmaður skori sjö mörk er hann ekki endilega að hjálpa liði. Menn þurfa að vera réttu mennimir í skipulaginu og það er þjálfaranna að meta hve- nær leikmaður er að hjálpa til," segir Ólafur. *"■ Hann segir að hann hafi oft haft það á til- finningunni á stórmóti að hann væri í liði sem gæti unnið titil en vonbrigðin hafi allt- af verið tilfinningin sem lifði að móti loknu. „Það þarf ekki að leita langt eftír svekkelsinu. Ég hélt að augnablikið væri með okkur í síð- ustu keppni því við vorum ansi góðir þá. En það gekk ekki og tapið gegn Dönum var grát- legt," segir Ólafur en fsland tapaði eftirminni- lega fyrir Dönum í Evrópumótinu árið 2006 í framlengdum leik. „Fram undan eru ólympíuleikarnir og ég hef þá von að við getum staðið okkur vel þar. Ég er nokkuð spenntur fyrirþeim. Það er allt- af sérstakt að spila á ólympíuleikunum því ég hef þá trú að þeir séu hafnir yfir alla mark- aðshyggju en þess í stað búi eitthvað húman- ískt og heimspekilegt í þessum ólympíuloga," segir Ólafur. Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að spila með landsliðinu? „Þó nokkuð mikla. Þetta er nokkuð sem maður á alltaf að virða. Mað- ur má ekki gleyma rótum sínum. Muna eftir því þegar maður var að vaða snjóinn á Hlíð- arenda og þegar ég fékk símtalið um það að búið væri að velja mig í landsliðið." Heimspekin og framhaldið Ólafur er með BA-gráðu í heimspeki og hann segir hana hjálpa sér mjög mikið í daglegu lífi. „Ég nota heimspekina mikið í hinu daglega lífi. Hún hjálpar mér þegar ég er í þessum daglega fasa. I henni get ég kafað ofan í veruleika rithöfunda, hugsuða og líf fólks. Það finnst mér frábært því þá get ég farið út úr þessum heimi sem ég er í. Á milli þess sem ég æfi reyni ég að komast í sem flesta heima. Þannig verður lífið svo- lítið fjölbreytilegt þótt það sé ekki beinlínis af þessum veruleika sem ég er í dagsdag- lega," segir Ólafur. Ólafur er 34 ára og farið er að síga á seinni hluta ferils hans. Hann hugsar til framtíðar og segist langa að fara að snúa sér að öðru í bráð. „Það eru breytingar fram undan hjá mér. Líklegast hætti ég í handbolta eftir eitt og hálft ár, þótt það sé ekki endanleg ákvörðun. Ég ætla ekk- ert endilega að koma til íslands þótt það sé snilldarland ef maður kemst nógu oft í burtu frá því," segir Ólafur Stefánsson, fyr- irliði íslenska landsliðsins í handknattleik, að lokum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.