Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Page 59
DV Ættfræöi
FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 S9
MAÐURÁRSINS
Geir H. Haarde
forsætisráðherra
Starfsferill
Geir fæddist í Reykjavík 8.4. 1951
og ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá MR 1971, BA-prófi í hagfræði
við Brandeis University í Waltham
í Massachusetts í Bandaríkjunum
1973, MA-prófi í alþjóðastjómmálum
við Johns Hopkins University, School
of Advanced International Studies
í Washington DC í Bandaríkjunum
1975 og MA-prófi í þjóðhagfræði við
University of Minnesota í Minneapol-
is í Bandaríkjunum 1977.
Geir var blaðamaður við Morg-
unblaðið á sumrin 1972-77, hag-
fræðingur í alþjóðadeild Seðlabanka
fslands 1977-83, aðstoðarmaður
fjármálaráðherta 1983-87, varaþm.
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík frá
1983, er alþm. frá 1987, var formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins
1991-98, var fjármálaráðherra 1998-
2005, utanríkisráðherra 2005-2006
og hefur verið forsætisráðherra frá
15.6. 2006. Hann var varaformaður
Sjálfstæðisflokksins frá 1999 og hefur
verið formaður flokksins frá síðasta
landsfundi 2005.
Geir var formaður SUS 1981-
85, forseti Norðurlandaráðs 1995,
formaður þingmannahóps vest-
rænna ríkja innan Alþjóðaþing-
mannasambandsins 1992-94, sat
í framkvæmdastjóm sambandsins
1994- 98 og var varaforseti þess
1995- 97,formaðurflokkahópsíhalds-
manna innan Norðurlandaráðs
1995-97, sat í utanríksmálanefnd
Alþingis frá 1991 og var formaður
hennar 1995-98.
Fjölskylda
Eiginkona Geirs er Inga Jóna
Þórðardóttir, f. 24.9. 1951, viðskipta-
fræðingur og fyrrv. borgarfulltrúi og
oddviti borgarstjórnarflokks Sjálf-
stæðisflokksins. Hún er dóttir Þórðar
Guðjónssonar, skipstjóra og útgerð-
armanns á Akranesi sem er látinn,
og k.h., Marseh'u Guðjónsdóttur hús-
móður.
Börn Geirs og Ingu Jónu em Borgar
Þór Einarsson, f. 4.5.1975 (stjúpsonur
Geirs), var í sambúð með Unni Svövu
Jóhannsdóttur og eru börn þeirra
Breki Þór, f. 1998, Marselía Bríet, f.
1999 og Sigrún Líf, f. 1994 (stjúpdóttir
Borgars); Helga Lára, f. 27.1. 1984;
HildurMaría, f. 15.11.1989.
Dætur Geirs frá fyrra hjónabandi,
og Patriciu Mistretta Guðmundsson,
em Ilia Anna, f. 28.7. 1977, í sam-
búð með Ágústi Fjeldsted og er dóttir
þeirra Ingibjörg Anna, f. 2005; Sylvía,
f. 9.6. 1981, í sambúð með Gunnari
Bjarnasyni og er sonur þeirra Róbert
Bjarni, f. 2004.
Bræður Geirs: Bemhard Haarde, f.
31.1. 1938, d. 2.3. 1962, bankamaður
í Reykjavík; Steindór Helgi Haarde, f.
12.9.1940, byggingaverkfræðingur og
dósent við HR, búsettur á Seltjarnar-
nesi, kvæntur Jórunni Hönnu Berg-
mundsdóttur, húsmóður og tækni-
teiknara, og eiga þau þrjú börn.
Hálfsystir Geirs, samfeðra, var Lilly
Kinn, f. 25.12. 1922, d. 2012. 1995,
húsmóðir í Noregi og eignaðist hún
eina dóttur.
Foreldrar Geirs: Tomas Haarde, f.
í Sandeid á Rogalandi í Noregi 14.12.
1901, d. 18.5. 1962, símaffæðingur í
Reykjavík, og k.h., Anna Steindórs-
dóttir, f. 3.5. 1914, d. 22.2. 2006, hús-
móðir.
Ætt
Anna var dóttir Steindórs Helga,
forstjóra Bifreiðastöðvar Steindórs
Einarssonar, b. í Ráðagerði, bróður
Elínar, ömmu Björns R. Einarssonar
Jiljómsveitarstjóra, föður séra Gunn-
ars á Selfossi. Einar var sonur Björns,
b. á Litla-Hálsi, bróður Kristínar,
langömmu Gissurar, föður Hannes-
ar Hólmsteins prófessors. Björn var
sonur Odds, b. á Þúfu í Ölfusi Björns-
sonarj bróður Katrínar, langömmu
Vals leikara, föður Vals, fyrrv. banka-
stjóra, og langömmu Garðars, föður
Guðmundar H., fyrrv. alþm. Móðir
Björns á Litla-Hálsi var Jórunn, syst-
ir Magnúsar á Hrauni, langafa Aldís-
ar, móður Ellerts B. Schram, alþm.
og fyrrv. forseta ÍSÍ. Jórunn var dótt-
ir Magnúsar ríka, hreppstjóra í Þor-
lákshöfn Beinteinssonar, b. í Þor-
lákshöfn Ingimundarsonar, b. á Hóli
Bergssonar, ættföður Bergsættar
Sturlaugssonar.
Móðir Steindórs Helga var Guð-
rún Steindórsdóttir, b. í Landakoti í
Reykjavík, bróður Jóns í Gröf, afa Ól-
afs Jóhanns Sigurðssonar rithöfund-
ar, föður Ólafs Jóhanns, rithöfund-
ar og forstjóra. Steindór var sonur
Matthíasar, kaupmanns í Hafnar-
firði, bróður Árna, verslunarmanns
í Hafnarfirði, langafa Matthíasar
Mathiesen, fyrrv. fjármálaráðherra,
föður Árna Mathiesen fjármála-
ráðherra. Annar bróðir Matthíasar,
KOWVRSIXS
Geir Hilmar Haarde forsætis-
ráðherra stiniplaði sig inn
sem nýr formaður Sjálfstæð-
isflokksins með góðurn
kosningaúrslitum í alþingis-
kosningunum síðastliðiö vor.
Með ríkisstjórnarsamstarfi
við Samfylkinguna gekk hann
á svig við vilja Morgunblaös-
ins og hins hnignandi flokks-
eigendafélags og gjörbreytti
þar með hinu pólitíska
landslagi síðastliðin tólf ár.
kaupmanns í Hafnarfirði, var Páll,
langafi Ólafs Björnssonar, hagfræði-
prófessors og fyrrv. alþm., og Guð-
rúnar, móður Vilmundar ráðherra,
Þorvalds hagfræðiprófessors og Þor-
steins heimspekiprófessors Gylfa-
sona. Matthías var sonur Jóns, pr. í
Arnarbæli Matthíassonar, stúdents
á Eyri, bróður Markúsar, langafa Ás-
geirs Ásgeirssonar forseta. Matthí-
as var sonur Þórðar, ættföður
Vigurættar Ólafssonar, ættföð-
ur Eyrarættar Jónssonar, langafa
Jóns forseta.
Móðir Önnu var Ásrún Sig-
urðardóttir, b. í Sigluvík á Sval-
barðsströnd Jónssonar, bróð-
ur Ásmundar, afa Guðmundar
Benediktssonar ráðuneytis-
stjóra. Móðir Ásrúnar var Anna,
systir Guðnýjar, ömmu Halldórs
Laxdal. Anna var dóttir Grfrns, b.
í Garðsvík, og Sæunnar Jónsdótt-
ur frá Látrum. Móðir Sæunnar var
Jóhanna Jóhannesdóttir, b. í Greni-
vík Árnasonar. Móðir Jóhannesar var
Sigríður Sörensdóttir frá Ljósavatni.
Móðir Sigríðar var Guðrún Þorvalds-
dóttir, pr. á Hofi Stefánssonar, skálds
í Vallanesi Ólafssonar, prófasts og
skálds á Kirkjubæ Einarssonar, próf-
asts og skálds í Heydölum Sigurðs-
sonar.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra
Starfsferill
Ingibjörg Sólrún fæddist í
Reykjavík 31.12.1954 og ólst þar upp.
Hún lauk stúdentsprófi frá MT 1974,
BA-prófi í sagnfræði og bókmenntum
frá Hf 1979, var gestanemi í sagnfræði
við Kaupmannahafnarháskóla 1979-
81 og stundaði cand. mag. nám í
sagnfræði við HÍ 1981-83.
Ingibjörg Sólrún stundaði ým-
is almenn störf með námi 1974-81,
var starfsmaður dönsku póstþjón-
ustunnar 1979-81, var borgarfulltrúi
Kvennaframboðs í Reykjavík 1982-
86 og Kvennalistans í Reykjavík
1986-88, sat í borgarráði 1987-88,
var ritstjóri tímaritsins Veru 1988-
90 og sinnti ýmsum ritstörfum og
blaðamennsku 1990-91, var alþm.
fýrir Kvennalistann í Reykjavík 1991-
94, borgarstjóri í Reykjavík 1994-2003
og borgarfulltrúi frá 1994, vþm. fýrir
Samfylkinguna í Reykjavík 2003, 2004
og 2005, alþm. fyrir Samfýlkinguna í
Reykjavík frá 2005, var varaformaður
Samfylkingarinnar 2003-2005 og er
formaður hennar frá 2005. Ingibjörg
Sólrún var formaður Stúdentaráðs
Hf 1977-1978, sat í skipulagsnefnd
Reykjavíkurborgarl982-86,satífélags-
málaráði Reykjavíkurborgar 1986-89,
var formaður borgarráðs 1994-2003,
var formaður stjórnar Lífeyrissjóðs
starfsmanna Reykjavíkur 1994-2002,
sat í stjórn Landsvirkjunar 1999-2000,
var formaður miðborgarstjórnar
1999-2002, formaðurstjómarSlökkvi-
liðs höfuðborgarsvæðisins 2000-
2003, í stjóm Samtaka sveitarfélaga
á höfúðborgarsvæðinu 2002-2003,
formaður dómnefndar um sldpulags-
samkeppni vegna Tónlistar- og ráð-
stefnuhúss 2001, formaður stjórnar
Aflvaka frá 2002 og formaður hverf-
isráðs miðborgar frá 2002.
Ingibjörg Sólrún sat á
Allsherjarþingi SÞ 1987, sat í þing-
mannanefnd EFTA/EES 1991-1994,
hefur setið í stjórnarskrárnefnd frá
2005, sat í utanrfkismálanefnd Al-
þingis 1991-1993, félagsmálanefnd
1991-1994, heilbrigðis- og trygg-
inganefnd 1991-1994, efnahags- og
viðskiptanefnd2005-2006ogífslands-
deild þingmannanefndar EFTA frá
2005. Hún hefúr setið í bankaráði
Seðlabanka fslands frá 2003.
Ingibjörg Sólrún skrifaði bókina
Þegar sálin fer á kreik, minningar Sig-
urveigar Guðmundsdóttur kennara,
útg. 1991. Þá hefur hún skrifað fjölda
greina í blöð og tímarit um almenn
stjórnmál og kvenréttindamálefhi.
Fjölskylda
Ingibjörg Sólrún giftíst 29.7. 1994
Hjörleifi Sveinbjamarsyni, f. 11.12.
1949, deildarstjóra hjá fslenska
útvarpsfélaginu. Hann er sonur
Sveinbjörns Einarssonar barnakenn-
ara og k.h. Huldu Hjörleifsdóttur hús-
móður.
Synir Ingibjargar Sólrúnar og Hjör-
leifs eru Sveinbjöm, f. 26.1.1983, nemi
íbókmenntafræðiviðHÍ; Hrafnkell, f.
10.11.1985, nemi.
Systkin Ingibjargar Sólrúnar em
Kristínn Hilmar, f. 25.11. 1945, vél-
stjóri í Reykjavík; Halldóra Jenný,
f. 14.11. 1947, kennari í Reykjavík;
Kjartan, f. 9.7. 1950, rekstrarstjóri hjá
Reykjavíkurborg; Óskar Sveinn, f.
26.9. 1951, stýrimaður og verkstjóri í
Reykjavík.
Foreldrar Ingibjargar Sólrúnar em
Gísli Gíslason, f. 30.11.1916, d. 23.10.
2006, verslunarmaður í Reykjavík, og
k.h., Ingibjörg J. Níelsdóttir, f. 23.2.
1918, húsmóður.
Ætt
Gísli var sonur Gísla þjóðhaga-
smiðs á Haugi, bróður Jóns, móð-
urafa Helgu Sigurjónsdóttur, fyrrv.
bæjarfulltrúa í Kópavogi. Systír
Gísla á Haugi var Guðrún, lang-
amma Hrafnhildar Stefánsdóttur
lögfræðings. Gísli var sonur Brynjólfs,
hreppstjóra og dbrm. á Sóleyjarbakka
Einarssonar, bróður Matthíasar, lang-
afa Haralds Matthíassonar mennta-
skólakennara, föður Ólafs, fyrrv. alþm.
Matthías var einnig langalangafi
Alfreðs Flóka. Einar var sonur Gísla,
b. á Sóleyjarbakka Jónssonar, b.
á Spóastöðum Guðmundssonar,
ættföður Kópsvatnsættar Þorsteins-
sonar. Móðir Gísla á Haugi var
Valgerður, systír Bjama, afa Guð-
mundar blinda í Víði. Móðir Valgerðar
var Gróa Gísladóttír, systír C
á Hæli, langafa Steinþórs, 1
alþm., föður Gests skattstjóra.
Móðir Gísla verslunarmanns
var Kristín Jónsdóttír, b. í Austur-
Meðalholtum í Flóa Magnússonar,
b. á Baugsstöðum Hannessonar,
af Bergsætt. Móðir Kristínar var
Kristín, systír Guðnýjar, ömmu
Sigurjóns Ólafssonar myndhöggv-
ara og langömmu Erlings Gísla-
sonar leikara, föður Benedikts, leik-
ara og leikstjóra. Kristín var dóttir
Hannesar, hreppstjóra í Kaldaðarnesi,
bróður Þorkels í Mundakotí, langafa
Guðna Jónssonar prófessors og
Ragnars í Smára. Hannes var sonur
Einars, spítalahaldara í Kaldaðar-
nesi Hannessonar, ættföður Kaldað-
arnesættarinnar Jónssonar.
Ingibjörg er dóttír Níelsar, b. á
Kóngsbakka Sveinssonar, sjómanns á
Skagaströnd, Guðmundssonar. Móð-
ir Níelsar var María, systír Jóns á Más-
stöðum, föður Ingibjargar J. Ólafsson,
fyrrv. aðalframkvæmdastjóra KFUM
á Norðurlöndum, og langafa Guðrún-
ar Halldórsdóttur, fyrrv. forstöðukonu
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra er almennt
talin hafa sWrkt stöðu sína
og Samfylkingarinnar
með stjórnarsamstarfi við
Sjálfstæöisflokkinn eftir
kosningarnar síðastliðið vor.
Sú slcoðun er meðal annars
byggð á þeirri afstöðu að svo
stór stjórnmálaflokkur hefði
ekld með góðu inóti getað verið
utan stjórnar öllu lengur í þeirri
hröðu samfélagsþróun sem hér
hefur átt sér stað síðastliöinn
áratug og ekki sér fyrir endann
á. Með stjórnarsamstarfi Sjálf-
stæðisflokks og Samfylkingar
komu formenn þessara
flokka á sögulegum sáttum og
gjörbreyttu pólitísku landslagi
hér álandi.
Námsflokka Reykjavíkur og alþk.
Kvennalistans. María var dóttír Ólafs,
b. á Barkarstöðum Pálssonar.
Móðir Ingibjargar var Halldóra,
systir Rósu, móður Hallgríms Guðjóns-
sonar, fyrrv. Irreppstjóra í Hvammi í
Vatnsdaf, og móður Þórhildar, konu
Jóns ísbergs, fyrrv. sýslumanns og
móðurArngrfrnsfsberghéraðsdómara.
Halldóra var dóttir fvars, sjómanns
frá Skeggjastöðum Jóhannessonar,
og Ingibjargar Kristmundsdóttur,
systur Þorleifs, föður Þórarins, skálds
á Skúfi, afa Þorleifs Kristmundssonar,
prófasts á Kolfreyjustað, og langafa
Þórðar Skúlasonar, framkvæmdastjóra
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
»
1