Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Qupperneq 60
60 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007
Helgarblað DV
Glimmerogglamúr
Oft þarf einungis lítið til að gera gott áramótapartí ennþá þetra.Til dæmis að
skreyta vel og skemmtilega og hafa eitthvað ákveðið þema í litavali.
Glimmer og glamúr er alltaf vinsælt á áramótunum og svo er einstaklega
skemmtilegt að hafa það að reglu að allir eigi að mæta með grímu. Svo er
jafnvel hægt að verðlauna þann sem mætir með flottustu grímuna.
Mangómargaríta
Vi bolli skrælt mangó
40 ml tequila
ISmlcointreau
V* lime
• Kreistið safann úr lime-inu (blandarann.
Bætið við mangóinu og blandið saman
við lime-safann. Þvi næst er tequila,
cointreau og klökum hellt út í og haldið
áfram að blanda öllu saman. Þegar
klakinn er mulinn og drykkurinn
tilbúinn er honum hellt i kokkteilglas og
skreyttur að vild, til dæmis með lime.
Kampavíns-
kokkteill
Uppskriftfyrireinn:
m 1 sykurmoli
Dass af Angostura bitter
Dassafbrandí
Kampavín
Kirsuber
Setjið sykurmolann (botninn á
kampavínsglasinu og hellið örlitlum
Angostura bitter í
glasið, bara rétt yfir
sykurmolann. Bætið því
næstlitlum slurkaf
brandí í glasið og fyllið
svo upp með
kampavíni að eigin vali. Þeir sem vilja
geta bætt einu kirsuberi út í glasið til
skreytingar.
Áramóta-
hlaðborð
Nú eru margir sem halda stór matarboð
á gamlárskvöld til að fagna nýja árinu
með vinum og ættingjum. Áður en
hafist er handa við að búa til mat fyrir
slíka stórveislu erýmislegt sem þarf að
t leiöa hugann að.Til dæmis er sniðugt
að hafa eins konar hlaðborð á
boðstólum með mörgum smærri
réttum í stað einnar stórrar máltíðar til
að allirfinni séreitthvað við sitt hæfi. Þá
er gott að reiða sig á gamlar og góðar
uppskriftir sem þú veist að koma vel út
og vera ekki með nema tvær nýjar
uppskriftir. Maður veit aldrei hvað gæti
klikkað og þá er gott að hugsa til þess
að hinir réttirnir séu þó allavega góðir
og klassiskir.
CHILI-RISARÆKJUR
Nú þegar flestir hafa sprengt sig út
á gómsætum steikum og ljúffengum
kjötréttum yfir jólin er tilvalið að
breyta örlítið til á gamlárskvöld og
gæða sér á spennandi sjávarréttum.
Chili-risarækjurnar eru réttur sem
hentar vel í áramótaboðinu. Jafnt
sem smáréttur með fleiri réttum
eða bara einn og sér. Njótið vel og
gleðilegt nýtt ár!
CHILI-RISARÆKJUR
FYRIR FJÓRA
• 500 g risarækjur
• 2 msk. sólblómaolía
• 2 msk. engifer, saxað
• 2 hvítlauksgeirar, smátt skornir
• Kjami úr einu sítrónugrasi, smátt
saxaður
• 1 rautt chili-aldin, smátt skorið
• 3 dvergbítar, smátt skornir (má
sleppa)
• 1 msk. sítrónusafi
• 1 msk. sojasósa
• 1 sítróna (efvill)
Skelhreinsið rækjumar, efþarf, en
skiljið örlítinn enda eftir.
Hitið olíu í potti og steikið engi-
fer, hvítíauk, sítrónugras, chili-aid-
in og dvergbít. Bætið sítrónusafa og
sojasósu út í og látið malla við vægan
hita í um það bil 10 mín. Takið af hit-
anum og setjið í skál ásamt rækjun-
um. Blandið vel saman og látið bíða í
3 klukkustundir í ísskáp. Steikið rækj-
urnar á pönnu í augnablik eða þar til
þær em orðnar bleikar. Berið fram
með salati og brauði. Gott er skera
niður sítrónur og hafa með rækjun-
um.
«
SHALIfflAR^
INDIAN - PAKISTANI CUISINE
AUSTURSTRÆTI 4, Tel. 5510292 www.shalimar.is