Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Page 61
DV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 61
Áramótavín
Vlllibráð er oft á matseðlinum
yfir áramót og þá gildir að
velja aðeins það besta.
Þeir sem hafa efni á stóru
vínunum frá Bordeaux
og Búrgúnd eiga að láta það eftir
sér. Sjálfur er ég mikill aðdáandi ít-
alskra vína en úrval þeirra hefur auk-
ist verulega síðustu árin. Cabernet
Sauvignon og Shiraz-vín frá
Ástralíu og Kaliforníu passa
einnig vel með villibráð og
öðru úrvalskjöti.
Vándamálið ligg-
ur í reykta kjöt-
inu og með-
lætinu. Súrsað
og sykrað
meðlæti fer illa með vín
þótt í sjálfu sér eigi það
ekki að stoppa nokkurn
mann. Óþarfi samt að
eyða um efni fram.
Hangikjöt er algjör
vínböðull og væn-
legra að drekka með
því malt og appelsín
eða bara bjór. Ham-
PÁLMI JÓNASSON
vinsérfræðingur DV
borgarhryggur er líka erfiður en þar
kemur bæði rautt og hvítt til
greina. Sjálfur hef ég notað
Shiraz frá Ástralíu eða gott Ri-
oja-vín en hér eru skoðanir
manna mjög skiptar. Kalkúnn
býður einnig upp á ótal mögu-
leika í hvítu og rauðu.
Fyrir jól
nefndi
ég rauð-
vínin
Mar-
chese Antinori
Chianti Classico
(2090 kr), Fontodi
Chianti Classico
(1890 kr) d'Aren-
berg Footbolt
(1790kr)og Berin-
ger Clear Lake Zin-
fandel (1820 kr).
Einnig hvitvínin Ca-
sal di Serra (1590 kr),
Lalande Pouilly Fuissé
(2070 kr), Tenuta
Sant'Antonio (1490 kr)
og Klein Constantia
Sauvignon Blanc (1490
Quinta do Crasto Reserva
OldVines 2004
Dumbrautt og bráðskemmtilegt vín frá Portúgal
sem ég er sannfærður um að eldist vel í vínkjallara í
nokkur ár. Lykt af plómum í púrtvíni, fíkjum og dökk-
um skógarberjum. Bragðmikið og ávaxtaríkt með
jarðarberjum, karamellu, kryddi, sveskjusteini og
plómum. Vínið er í góðu jafnvægi með mjúku og
góðu tanníni. Áfeng sulta, dökkt súkkulaði og eik i
eftirbragði sem minnir jafnvel á
, / Freyju lakkrísdraum. Frábært vín sem
111 i.l. geymist örugglega vel. 2.090 krónur.
Baron de Ley Finca
Monasterio 2004
Baron de Ley-víngerðin var stofnuð 1985 af
nokkrum fagmönnum í Rioja á Spáni og fyrstu
vínin komu á markað 1990. Höfuðstöðvarnar eru í
fallegu Benediktsmunkaklaustri frá 16. öld. Þetta er
nú almenningshlutafélag og aðalvíngerðarmenn-
irnir eru Gonzalo Rodrigez og Fernando Gonzalez.
Finca Monasterio er80%Tempranillo og er 18
mánuði í frönskum eikartunnum. Dökkt súkkulaði,
dökk ber og öndvegis vindlar áberandi í nefi.
Einnig súkkulaðikaramella með sólberjum,
kirsuberjum, brómberjum og kerfli. Eik í munni,
plómur, kirsuber, súkkulaði, kaffi, tannín og örlítill
anis. Enn dálítið ferkantað og þurfti góða öndun.
Rosabolti sem versnar örugglega
j j ekki í skápnum. 2.190 krónur.
Montes Alpha Syrah 2004
Víngerðarmaðurinn Aurelio Montes stofnaði
Montes-víngerðarhúsið með nokkrum öðrum
en það er eitt þekktasta vínfyrirtæki Chile.
Aurelio er enn aðalvíngerðarmaður Montes.
Þetta vín er úr Shiraz (90%), Cabernet
Sauvignon (7%) og Viognier (3%). Rosalega
þykk og góð lykt. Vindlatóbak, leður, jörð,
plómur og dökk ber, aðallega brómber.
Sveskjur og pipar áberandi í munni með
plómum, kirsuberjum og pipar. Jafnvel mildur
Tópas. Versnar örugglega ekki í vínkjallara
næstu misserin. 2005 árgangurinn er á leið í
hillurnar og hann fær enn betri
dóma. Mjög gott vín á frábæru
■ I 11 verði. 1.590 krónur.
Enzo Rinaldi er síðasti matgæð-
ingur ársins í helgarblaði DV.
Matgæðingur síðustu viku, Leone
Tinganelli, skoraði á Jón Elvar Haf-
steinsson en vegna mikilla anna
vegna jólahátíðarinnar gat Jón því
miður ekid orðið við áskoruninni.
Rinaldi tók hins vegar seinni áskorun
vinar síns Leones og býður upp á
andabringur með sema teriaky-sósu
og lambafillet með pestó og dijon-
sinnepsdressingu.
„Þetta eru mínar eigin uppskrift-
ir og ég hef oft matreitt þetta," seg-
ir Enzo sem er einmitt matreiðslu-
meistari og hefur starfað sem slíkur
síðastliðin tíu ár, meðal annars á La
Primavera. Núna er hans aðalvinna
hins vegar sem sölustjóri heildsölu.
„Ég er að flytja inn matvörur ffá
Spáni og ítalíu. Ég kokka þó stundum
á Rossopomodoro og Vín og skel."
Andabringur með
sesam teriaky-sósu
Fyrirtvo
• 2andabringur
• 1 flaska teriaky-sósa
• 30 g sesamfræ
• Salt og pipar eftir smekk
Pönnusteikja bringuna þó ein-
göngu þar sem fitan liggur, salta og
pipra. Setja inn í ofn við 180 gráður
í 25 mín. Taka úr ofninum og skera í
þunnar sneiðar. Sósan er sett yfir.
Sósan
Setja allt innihald flöskunnar í
pott, 50 g af sylcri sett út í. Hræra og
bíða eftir að sjóði. Setja sósuna inn í
ísskáp til að kæla hana í um það bil
15 mín. Að lokum eru sesamfræin
sett út í.
Sætar kartöflur
• 2 stk. sætar kartöflur
• 2 rifaf hvítlauk
• Timian
Sjóða sætu kartöflurnar og þegar
þær eru soðnar stappa saman eins
og kartöflumús. Saxa timian og
hvítlauk og bæta út í. Gott er að setja
smá smjörklípu út í í lokin.
Lambafillet með pestó
og dijon-sinnepsdressingu
Fyrir tvo
• 2 lambafillet
• 1 stór skeið grænt pestó
• 1 stór skeið dijon-sinnep
Blanda saman pestó og dijon.
Marinera kjötið og setja strax inn í
ofn. 180 til 200 gráður í 20-25 mín.
Bera fram með fersku salati.
Ferskt salat
• Rucola
• Rauðlaukur
• Tómatar
• Olífur
Allt skorið smátt, setja smá olífu-
olíu yfir og í lokin salta og pipra.
„Égskora á tengdamömmu
mína, Láru Sandholt, aö vera
nœsti matgœðingur. Hún er
snilldarkokkur."
Humarhúsið • Amtmannstíg í • 101 Reykjavík • Sími: 561 3303 • humarhusid.is