Peningamál - 01.02.2000, Qupperneq 52
Árið 1998 voru þessar tekjur um 0,5 ma.kr. og var
arðsemi fjármunastofnsins um 2,3%. Aðeins 52 af
dóttur- og 12 af hlutdeildarfyrirtækjum Íslendinga
erlendis skiluðu hagnaði árið 1998. Árin 1988-1998
voru tekjur Íslendinga að meðaltali um 0,2 ma.kr. á
ári og arðsemi fjármunastofnsins á sama tímabili var
2,3%.6 Athygli vekur að hagnaðurinn skuli ekki vera
meiri. Arðsemin er helmingi minni en í beinni fjár-
festingu erlendra aðila í atvinnurekstri á Íslandi.
Þessi staðreynd er athyglisverð, því að forsvarsmenn
íslensks atvinnulífs hafa oft kvartað yfir því að
umhverfi íslenskra fyrirtækja sé ekki nægjanlega gott
og að þau búi við verra umhverfi en atvinnulíf víða
erlendis. Það má varpa fram ýmsum skýringum á
þessari slöku arðsemi. Nærtækustu skýringarnar eru
þær að Íslendingar fjárfesti í atvinnugreinum sem
skila lágum arði og í umhverfi sem þeim gengur illa
að ná tökum á.
PENINGAMÁL 2000/1 51
6. Til samanburðar má nefna að árin 1997 og 1998 nam ávöxtun erlendrar
verðbréfaeignar íslenskra lífeyrissjóða um 15% hvort árið.
Rammi 2 Þættir sem hafa áhrif á beina erlenda fjárfestingu fyrirtækja
Tafla 4 Tekjur Íslendinga af beinni fjárfestingu í
atvinnurekstri erlendis
Ma.kr. á verðlagi hvers árs 1995 1996 1997 1998
Arðgreiðslur ................................. 0,1 0,0 0,1 0,1
Endurfjárfesting ........................... -0,2 0,4 0,0 0,2
Hreinar vaxtagreiðslur ................. 0,0 0,1 0,2 0,2
Samtals......................................... -0,1 0,5 0,3 0,5
Heimildir:
UNCTAD, World Investment Report 1998.
UNCTAD, World Investment Report 1999.
IMF Committee on BOP statistics, ársskýrsla 1998.
Ákvörðun fyrirtækis um að fjárfesta í öðru landi er niður-
staða flókins ferlis. Slík niðurstaða getur fengist þegar
þarfir erlenda fyrirtækisins og það sem móttökulandið
hefur að bjóða mætist. Áhrifaþáttum við val á móttöku-
landi erlendrar fjárfestingar má skipta í tvennt: Í fyrsta
lagi þætti sem stjórnvöld hafa áhrif á og í öðru lagi þætti
sem einkenna hagkerfið eða eru til staðar í því. Í fyrra til-
fellinu má nefna stefnu stjórnvalda gagnvart erlendri fjár-
festingu og það umhverfi sem ríkisvaldið skapar atvinnu-
starfsemi. Dæmi um það eru efnahagslegur, stjórnarfars-
legur og félagslegur stöðugleiki, skattastefna, alþjóða-
samningar, einkavæðing, viðskiptastefna o.s.frv. Dæmi
um þætti sem tengjast hagkerfinu sjálfu má hins vegar sjá
í meðfylgjandi yfirliti. Í stuttu máli má segja að fyrirtæki
fjárfesti beint utan heimalands til að nálgast nauðsynlega
framleiðsluþætti og eignir, til að auka skilvirkni með því
að nálgast ódýra framleiðsluþætti og loks til að nálgast
markaði. Hér fyrir neðan er farið aðeins nánar út í þessa
þætti.
Markmið fyrirtækja
Að nálgast framleiðsluþætti/eignir
Að bæta skilvirkni
Að nálgast markaði
Heimild: World Investment Report 1998.
Aðaláhrifaþættir hagkerfis
• Hráefni, orka • Ódýrt vinnuafl • Vel menntað vinnuafl
• Tækniþekking, nýjungagirni og aðrar áskapaðar eignir (t.d. fræg vöru-
merki) hjá einstaklingum og fyrirtækjum
• Efnislegir innviðir (samgöngumannvirki, fjarskipti, orkukerfi)
• Verð framleiðsluþátta/eigna, leiðrétt fyrir framleiðni
• Verð annarra aðfanga
• Þátttaka í samstarfi eins og EES/NAFTA
• Stærð markaðar og meðaltekjur á íbúa • Hagvöxtur
• Aðgangur að svæðisbundnum mörkuðum og alþjóðamörkuðum
• Séreinkenni neytendamarkaðar • Uppbygging og gerð markaðar